04. nóvember 2015
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og ríkisins hefst á morgun
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og ríkisins hefst fimmtudaginn 5. nóvember kl. 12:00. Atkvæðagreiðslan er rafræn og eiga allir félagsmenn SFR sem starfa hjá ríkinu að fá bréf með leiðbeiningum og kjörlykli í pósti heim til sín. Prentun bréfsins var lokið, pökkun var í gangi og stefnt á póstlagningu í dag sem A-póst, sem þýðir að bréfið verður borði út á morgun, fim. 5. nóvember.