18. febrúar 2016
NSO fundur í Kaupmannahöfn
SFR tekur þátt í samstarfi systurfélaga á Norðurlöndum sem kallast NSO (Nordiska statstjänstemannaorganisationen). Formaður og framkvæmdastjóri SFR sitja í dag fund samtakanna þar sem verið er að fara yfir þau verkefni sem heitast brenna á félögunum, ásamt því að undirbúa árlega ráðstefnu NSO sem haldin verður í Færeyjum síðar á árinu. Mikilvæg mál sem ofarlega eru á baugi eru staða efnahagsmála, staða flóttamanna á vinnumarkaði, samstarf stéttarfélaganna, atvinnurekenda og stjórnvalda, framkvæmd kjarasamninga og önnur þau stóru verkefni sem Norðurlöndin standa nú frammi fyrir.