06. júní 2013
Er von á nýjum fjölskyldumeðlimi?
Styrktar- og sjúkrasjóður SFR greiðir fæðingarstyrki til nýbakaðra foreldra í SFR sem uppfylla skilyrði um sjóðsaðild. Styrkurinn er auðvitað jafnhár til kvenna og karla en hliðsjón er höfð af starfshlutfalli. Umsækjandi þarf t.a.m. að vera að lágmarki í 25% starfshlutfalli til að eiga rétt á styrk. Fullur styrkur er kr. 220.000,- vegna hvers barns og miðast við að foreldri hafi stundað 100% starf síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns /barna. Séu báðir foreldrar í SFR, sækja þau um hvort í sínu lagi. Sjá nánar.