15. september 2024
Mannauðskönnun sem gagnast opinberum vinnumarkaði
Stofnun ársins er ítarleg og vönduð mannauðskönnun á starfsskilyrðum, stjórnun og líðan á vinnustað sem Sameyki stendur að í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Reykjavíkurborg. Könnunin nær til launafólks á opinberum vinnumarkaði, ríflega 33 þúsund manns, og er þetta ein af umfangsmestu reglulegu vinnumarkaðskönnunum sem gerðar eru á Íslandi.