24. ágúst 2020
Tryggjum öryggi fólks - hækkum atvinnuleysisbætur
Í tillögum BSRB er snúa að aðgerðum stjórnvalda í tengslum við Covid er lögð áhersla á að stjórnvöld stuðli samhliða að því að tryggja félagslegan stöðugleika sem og efnahagslegan. Meginmarkmið aðgerða ætti alltaf að vera að tryggja öryggi og heilsu fólks, sérstaklega í framlínustörfum, en einnig heilt yfir í vinnu og einkalífi. Þá er lögð áhersla á að gripið verði til markvissra aðgerða með jafnrétti að leiðarljósi til að tryggja afkomu fólks og að stjórnvöld gangi lengra í stuðningi við heimilin en nú hefur verið gert. Tillögur BSRB miða einnig að því að skapa aukna eftirspurn í hagkerfinu og tryggja heilbrigði, velsæld og framleiðni til lengri tíma.