21. maí 2015
Ársfundur LSR - stærsta lífeyrissjóðs landsins
Á ársfundi LSR í dag kom meðal annars fram í máli Árna Stefáns Jónssonar formanns sjóðsins að samanlagðar eignir allra deilda sjóðsins væru nú rúmlega 535 milljarðar kr. og hefðu þær hækkað um 50,5 milljarða kr. frá árinu áður. Eignir A- deildar eru nú 296 milljarðar kr. og eignir B-deildar 227 milljarðar kr., en séreignir LSR eru rúmir 12 milljarðar kr. Ávöxtunin hefur verið afar góð, sagði Árni, eða um 8,9% raunávöxtun. Tekjur af fjárfestingum á árinu voru tæpir 50 milljarðar. Árni sagði einnig að ef horft væri til síðustu þriggja ára væru tekjur af fjárfestingum sjóðsins á því tímabili rúmlega 150 milljarðar króna.