Fréttir og greinar

17. september 2013

Lægst laun hjá hinu opinbera

Launakönnun2013-Launamunur-stettarfelog-bandalogLaunin eru hæst á almennum vinnumarkaði og munar þar talsverðu. Þetta sýna niðurstöður launakannana SFR, St.Rv. og VR. Félagsmenn VR eru með  tæplega 18% hærri heildarlaun en félagsmenn SFR og 28% hærri heildarlaun en félagsmenn St.Rv. að teknu tilliti til mismunandi samsetningar hópanna.

11. september 2013

Hreyfitorg; formleg opnun og málþing 13. september

HREYFITORG_300X300Á vef VIRK kemur fram að gagnvirki vefurinn Hreyfitorg verður opnaður með formlegum hætti fös.13. sept. kl. 14. Í tilefni opnunarinnar verður á sama tíma haldið málþingið Þjálfun almennings - ábyrg þjónusta, upplýst val. Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda fólki að finna hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni og stuðlar að heilbrigði og vellíðan. Þátttaka í opnuninni og málþinginu er án endurgjalds en skrá þarf þátttöku á vef Embættis landlæknis.

09. september 2013

BSRB ályktar um ríkisfjármál

BSRBmerkigottÁ heimasíðu BSRB segir frá ályktun stjórnar BSRB um ríkisfjármál sem samþykkt var á fundi bandalagsins sem haldinn var á Egilsstöðum fyrir helgina. Í ályktuninni er m.a. brýnt fyrir stjórnvöldum að frekari aðhaldsaðgerðir hjá hinu opinbera muni hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér og vinna gegn markmiðum stjórnvalda um að ná fram jöfnuði í ríkisrekstrinum.

23. ágúst 2013

Hvernig er þinni starfsþróun háttað á haustönn 2013?

2013-haust-bæklingur-litil-myndNú eru flestir komnir úr sumarfríi og því ekki úr vegi að minna á eitt mikilvægt verkefni sem allir starfsmenn verða að sinna en það er að huga að starfsþróun sinni. Bæklingar frá símenntunarmiðstöðvum eru byrjaðir að detta inn um póstlúguna og þar á meðal er bæklingur frá Fræðslusetrinu Starfsmennt þar sem má finna fjölbreyttar leiðir til að bæta við sig þekkingu og færni...