Sameyki Logo
Heim
15. desember 2014
Vel heppnað jólaball SFR og St.Rv.
Á laugardag var haldið afar fjölmennt og vel heppnað jólaball SFR og St.Rv. í Gullhömrum. Jólaballið sóttu rúmlega 400 manns, börn og fullorðinir. Þangað komu þrír jólasveinar og dönsuðu kringum jólatréð við mikla hrifningu barnanna.
Myndirnar tala sínu máli.
09. desember 2014
Jólin, jólin koma brátt... og vorönnin hjá Starfsmennt líka
Í nýútkomnu fréttabréfi Starfsmenntar kemur fram að nú á næstu vikum er kjörið að huga að námi á nýju ári og skoða hvað verður í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt á vorönninni. Skráningarsíður fyrir öll námskeið hafa verið settar upp og ekkert því til fyrirstöðu að skoða úrvalið og skrá sig. Setrið er einnig í samstarfi við nokkra skóla um hagnýtar námsleiðir sem efla fagmennsku og möguleika á spennandi starfsþróun. Þeir sem vilja nýta sér það þurfa að hafa hraðar hendur þar sem umsóknarfrestur rennur yfirleitt út nokkru fyrir jól.
04. desember 2014
SFR styrkir gott málefni
Stjórn SFR ákvað á fundi sínum nýverið að í stað þess að senda jólakort þá myndi félagið styrkja góð málefni, en þessi háttur var einnig hafður á í fyrra. Fulltrúar Samhjálpar og Hjálparstarfs kirkjunnar, þeir Bjarni Gíslason og Vörður Leví Traustasson komu af þessu tilefni og tóku við styrkjum frá félaginu, það var Árni Stefán Jónsson formaður SFR sem afhenti styrkina.
03. desember 2014
Jólafundur trúnaðarmanna
Jólafundur trúnaðarmanna var haldinn í vikunni og að venju var slegið á örlítið léttari strengi en venjulega. Þar hélt séra Bjarni Karlsson erindi um það hvað væri kynferðislega aðlaðandi, en hann hefur nám í kynlífssiðfræði að baki. Í erindi sínu fjallaði hann meðal annars um ýmsa þá þætti í menningu okkar sem gera karla stressaða og konur uppgefnar og gaf góð ráð til að létta á stressinu.
Atvinnulausir fá desemberuppbót
Vinnumálastofnun mun greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda þann 5. desember í samræmi við reglugerð sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur gefið út. Full desemberuppbót er 53.647 krónur en greiðsla til hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta á árinu. Sjá nánar hér.
01. desember 2014
Starfsfólk Fiskistofu fjölmennti til ráðherra
Stór hópur starfsfólks Fiskistofu sem beðið hefur í margar vikur eftir viðtali við Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirhugaðs flutning stofnunarinnar til Akureyrar fjölmennti í ráðuneytið nú í morgun. Starfsfólkið hafði fyrirfram fengið upplýsingar um að ráðherra væri alla jafna í húsinu á þessum tíma en í morgun var hann þó ekki á staðnum til að taka á móti áskorun frá hópnum. Það kom í hlut Kristjáns Skarphéðinssonar ráðuneytisstjóra að taka á móti hópnum sem var ekki ánægður með að hafa ekki enn fengið viðtal þrátt fyrir margar ítrekanir.
Jólaball - miðasala á skrifstofunni
Jólaball félagsins verður haldið að Gullhömrum, laugardaginn 13. desember kl. 14. Miðasala er á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89, 4. hæð, frá og með deginum í dag, miðaverð er 700 kr.
28. nóvember 2014
Stórskemmtilegt jólaföndur félaganna
Jólaföndur félaganna var haldið á Grettisgötunni í gærkvöld og tókst með afbrigðum vel. Leiðbeinendur voru þær Svava og Margrét Rafnsdætur en þær kenndu þátttakendum að búa til stóran og náttúrulegan hurðarkrans sem mun sóma sér vel á á aðventunni. Stemmningin var afar góð og mikil vinnugleði í loftinu undir notalegri jólatónlist.
17. nóvember 2014
Undirbúningur aðventu í Munaðarnesi
Laugardaginn 29. nóvember er boðið upp á námskeið í aðventukransagerð í Munðarnesi. Tilvalið fyrir saumaklúbba eða litla hópa að koma saman og föndra fyrir jólin. Einnig munu Börkur og Helena sem reka Munaðarnes Restaurant bjóða upp á smá jólahlaðborð að loknu föndri. Lokaskráning er miðvikudaginn 26. nóvember annað hvort hér á facebook eða í síma 852 1601.
09. nóvember 2014
Jólaföndur
Við bjóðum upp á jólaföndur fyrir félagsmenn St.Rv. og SFR tvö kvöld í nóvember. Hægt er að velja á milli þess að skrá sig 25. og 27. nóvember. Útbúinn verður hurðarkrans og hægt verður að velja um rauðan, hvítan og náttúrulitan. Námskeiðin eru frá kl. 18:00-20:0 (kvöldsnarl í boði á staðnum) Skráning fer fram hér. Efnisgjald er 3.700 kr á manninn.