07. október 2013
SFR leggur áherslu á aðkomu stéttarfélaganna
Félag forstöðumanna, Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála efndi til morgunverðarfundar í dag. Þar kynnti Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Árni Stefán Jónsson formaður SFR segir að á fundinum hafi fyrst og fremst komið fram almennar upplýsingar en það sé þó tvennt sem hann vilji sérstaklega benda á sem er mikilvægt fyrir félagsmenn SFR í náinni framtíð.“Í fyrsta lagi eru það áherslur ríkisstjórnarinnar um jöfnun kjara á vinnumarkaði, þ.e. samræmingu starfskjara milli opinberra starfsmanna og starfsfólks á almennum markaði. Þessu fagnar félagið að sjálfssögðu og býður fram krafta sína til að vinna að því markmiði. Enda hafi félagið bent á mismunun kjara síðast liðin ár m.a. með niðurstöðum launakannana.