1. október 2013

Glæsihús í Munaðarnesi


Orlofshús félagsins í Bjarkarási 3 og 5 hafa undanfarna mánuði verið í algjörri endurbyggingu. Húsin hafa verið stækkuð til muna, en þau eru nú rúmir 80 fermeter og í þeim eru 3 herbergi. Allt innanstokks var endurnýjað og eru húsin hin glæsilegustu. Þá voru pallarnir í kringum húsin stækkaðir mikið og ekki skemmir útsýnið yfir Norðurá.

Húsin eru nú opin fyrir bókanir frá og með 11. október og út janúar. Á orlofsvefnum má fá nánarði upplýsingar og skoða myndir af húsunum.

Munadarnes-Bjarkaras-nyr--bordstofa1

Munadarnes-Bjarkaras-nyr--eldhus1

 

Munadarnes-Bjarkaras-nyr--bordapalli1

Munadarnes-Bjarkaras-nyr--herbergi1