28. apríl 2017
Saga baráttu og sigra í 70 ár
Út er komin Saga SFR – Saga baráttu og sigra í sjötíu ár 1939-2009. Sagan er skráð af Þorleifi Óskarssyni sagnfræðingi og er ríkulega skreytt myndum úr starfi félagsins auk þess sem hana prýða myndir víða að frá þeim tíma sem um er fjallað enda leitaði höfundur fanga víða í heimildum, bæði í eigu félagsins og einnig í opinberum gögnum.