31. október 2024
Leitað er eftir konum til að taka þátt í vinnumarkaðsrannsókn
Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri óska eftir kvenkyns viðmælendum í vinnumarkaðasrannsókn sem ber yfirskriftina Verkakonur, vellíðan og velferðarkerfið, til að öðlast skilning á því hvernig ólíkir þættir eins og samræming fjölskyldu og atvinnulífs, félagsleg tengsl og vellíðan tengjast félagslegri og efnahagslegri stöðu og jafnframt að auka skilning á þeirri reynslu sem lágtekjukonur hafa af velferðarkerfinu og möguleg áhrifum þess á félagslegt misrétti.