1. mars 2015

Eingreiðsla 1. apríl 2015

Félagsmenn SFR sem starfa hjá ríki, sjálfseignastofnunum sem greiða eftir kjarasamningi SFR og ríkisins og Samtökum fyrirtækja í velferðaþjónustu fá samningsbundna eingreiðslu þann 1. apríl 2015. 

Eingreiðslan er  20.000 kr. miðað við fullt starf í febrúar 2015. Þeir sem eru í hlutastarfi og/eða störfuðu hluta úr febrúarmánuði fá hlutfallslega greiðslu.

Eingreiðslan nær til allra starfsmanna í föstu ráðningarsambandi utan þeirra sem eru í launalausu leyfi.