- mars 2015
Sameiginleg kröfugerð þriggja félaga lögð fram
Sameiginleg kröfugerð þriggja félaga lögð fram
Í dag lögðu samninganefndir SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna fram sameiginlega kröfugerð félaganna í komandi kjarasamningum. Félögin þrjú eru stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið og hópurinn sem samið verður fyrir telur rúmlega 5200 manns. Innan Landssambands lögreglumanna eru rúmlega 600 félagsmenn sem allir starfa hjá ríkinu, Sjúkraliðafélag Íslands semur fyrir um 1100 starfsmenn hjá ríkinu og innan SFR stéttarfélags eru rúmlega 3500 manns hjá ríkinu. Fundur með samninganefnd félaganna þriggja og samninganefnd ríkisins fór fram í húsnæði ríkissáttasemjara í dag.
Kröfugerðin skiptist í tvo hluta, annars vegar er um að ræða sameiginlegar kröfur félaganna og hins vegar eru sérkröfur hvers félags fyrir sig. Meginkröfurnar eru eftirfarandi:

Samninganefndir félagaanna þriggja stillu sér upp fyrir húsnæði sáttasemjara eftir vel heppnaðan fund.
Snorri Magnússon, formaður LL, Árni Stefán Jónsson formaður SFR og Kristín Á. Guðmundsdóttir formaður SLFÍ.
Samninganefndir félaganna þriggja ásamt samninganefnd ríkisins.
Samninganefnd ríkisins, Gunnar Björnsson formaður fyrir miðju.