1. júlí 2013

Framkvæmdir í Munaðarnesi á lokaspretti

Undanfarna mánuði hafa staðið yfir gagngerar endurbætur á húsum þrjú og fimm í Bjarkarási. Þar hafa húsin og pallarnir umhverfis þau verið stækkað þónokkuð. Endurbyggingin er með svipuðum hætti og gert var í húsum félagsins í Vörðuási og Bjarkarási nr. 10 í fyrra, enda hafa þær breytingar komið afar vel út og húsin vinsæl í kjölfarið. Húsin í Bjarkarásnum sem nú eru í endurbyggingu eru þó í við stærri og verða  eftir breytingar um 87 fm og pallurinn 83  fm. Um gagngera endurbyggingu er að ræða og skipt hefur verið um innréttingar,
glugga, hurðir, klæðningar o.fl. Í ágúst má búast við að frekari fréttum af opnum húsanna, en þau verða sett í útleigu um leið og framkvæmdum lýkur.

bustadur5-400

bustadur4-400

bustadur3-400

bustadur2-400