1. júlí 2013

Vinnur þú fjölbreytt skrifstofustörf? Þá gæti einingabært fjarnám á skrifstofubraut verið eitthvað fyrir þig.

Fræðslusetrið Starfsmennt hefur samið við Menntaskólinn í Kópavogi um að bjóða upp á einingabært fjarnám á skrifstofubraut I. Með þessu er setrið að koma til móts við þarfir starfsfólks sem vinnur fjölbreytt störf á skrifstofu s.s. í skólum eða framlínu stofnana.

Námið veitir 33 einingar og er dreift yfir 3 annir þar sem teknar eru um 11 einingar á önn.

Markmiðið er að efla færni og þekkingu skrifstofufólks til að takast á við fjölþætt og krefjandi verkefni sem einkenna nútímastarfsumhverfi.

Einnig er hægt að taka Skrifstofubraut I staðbundið á haustönn 2013 í MK.

Skráning og nánari upplýsingar hér.