1. janúar 2013

Framvegis hlýtur gæðavottun fræðsluaðila

Framvegis_gaedavottun
Ragnhildur B. Bolladóttir framkvæmdastjóri Framvegis tekur við viðurkenningu
um EQM-vottun frá Ingibjörgu Elsu Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra 
Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins

Framvegis miðstöð símenntunar hlaut í desember EQM (European Quality Mark) gæðavottun. Með gæðavottun EQM er staðfest að Framvegis stenst evrópskar kröfur um gæði fræðslustarfsemi. Fræðslumiðstöð atvinnulífsins  veitir gæðavottunina en Fræðslumiðstöðin hefur unnið að þróun gæðaviðmiða í fræðslustarfi fyrir fullorðna á liðnum árum.