1. janúar 2013

Páskaúthlutun

paskaungiPáskavikan í orlofshúsum SFR er frá 25. mars til 1. apríl.

Sækja þarf um hér og fara inn á liðinn UMSÓKNIR. Þar má einnig finna nánari upplýsingar um þau orlofshús SFR sem í boði eru.

Umsóknarfrestur er til og með 4. febrúar næstkomandi, úthlutað verður 6. febrúar. 

Vikan innanlands kostar 23.000 kr. og 40 punkta. 
Vikan  í Kaupmannahöfn kostar 77.000 kr. og 40 punkta. 

Svar við umsókn berst á það netfang sem valið er við innskráningu á orlofsvefinn.

Félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu geta snúið sér til skrifstofunnar í síma 525-8340. Lífeyrisþegar eiga einungis rétt á húsi um páska eftir að úthlutun lýkur. Þá er öllum frjálst að bóka hús.