• 1. Kaup
  • 2. Um vinnutíma
  • 3. Hlé frá vinnu, fæði og matstofa
  • 4. Orlof
  • 5. Ferðir og gisting
  • 6. Aðbúnaður og hollustuhættir
  • 7. Tryggingar
  • 8. Verkfæri og vinnuföt
  • 9. Afleysingar
  • 10. Fræðslumál
  • 11. Stofnanasamningar og samstarfsnefndir
  • 12. Réttur starfsmanna vegna veikinda og slysa
  • 13. Tilhögun fæðingarorlofs
  • 14. Iðgjöld í Fjölskyldu- og styrktarsjóð og Starfsendurhæfingarsjóð
  • 15. Lífeyrissjóður og viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar
  • 16. Uppsagnarfrestur
  • 17. Launaseðill og félagsgjöld
  • 18. Félagsmálefni
  • 19. Gildistími, samningsforsendur og atkvæðagreiðsla

        1. Kaup

          1.1 Mánaðarlaun

        • 1.1.1

          Mánaðarlaun starfsmanns sem gegnir fullu starfi, skulu frá og með 1. apríl 2024 greidd samkvæmt meðfylgjandi launatöflu (sjá fylgiskjal) sem tekur eftirfarandi breytingum á samningstímanum, nema annað leiði af launatöflum:

          1.4.20243,25% eða 23.750 kr.
          1.4.20253,50% eða 23.750 kr.
          1.4.20263,50% eða 23.750 kr.
          1.4.20273,50% eða 23.750 kr.
        • 1.1.2

          Brot úr mánaðarlaunum reiknast þannig, að deilt er með 21,67 í mánaðarlaunin og margfaldað með fjölda almanaksdaga annarra en laugardaga og sunnudaga frá upphafi eða til loka starfstíma.

        • 1.1.3

          Auk mánaðarlauna er heimilt að greiða önnur laun er starfinu fylgja með mánaðarlegri greiðslu. Önnur laun geta m.a. verið vegna reglubundinnar yfirvinnu og starfstengds álags sem ekki verður mælt í tíma. Önnur laun geta komið í stað yfirvinnukaups skv. gr. 1.5.

          1.2 Röðun starfa og mat álags

        • 1.2.1

          Við ákvörðun um röðun starfa í launaflokka skal fara eftir gr. 11.3.2.1.

        • 1.2.2

          Meta skal persónu- og tímabundna þætti, sbr. gr. 11.3.2.2 og 11.3.2.3, sem álagsþrep.

          1.3 Viðbótarlaun

        • 1.3.1

          Heimilt er að greiða viðbótarlaun umfram reglubundin mánaðarlaun. Ákvörðun um greiðslu viðbótarlauna skal tekin af forstöðumanni og vera í samræmi við reglur fjármála- og efnahagsráðherra um greiðslur viðbótarlauna. Fjárhæð viðbótarlauna skal byggja á málefnalegum sjónarmiðum. Greiða má viðbótarlaun í allt að sex mánuði en ef tilefni er til er heimilt að framlengja greiðslu þeirra um þrjá mánuði í senn en þó aldrei lengur en í tvö ár samfellt.

          1.4 Tímavinnukaup

        • 1.4.1

          Tímakaup í dagvinnu er 0,632% af mánaðarkaupi í hverjum launaflokki og þrepi.

        • 1.4.2

          Heimilt er að greiða tímavinnukaup í eftirfarandi tilvikum:

          1. Nemendum við störf í námshléum.
          2. Starfsmönnum sem ráðnir eru til skamms tíma vegna sérstakra, árvissra álagstíma ýmissa ríkisstofnana, þó eigi lengur en tvo mánuði.
          3. Starfsmönnum sem ráðnir eru til að vinna að sérhæfðum afmörkuðum verkefnum.
          4. Starfsmönnum sem starfa óreglubundið um lengri eða skemmri tíma, þó aðeins í algjörum undantekningartilvikum.
          5. Lífeyrisþegum sem vinna hluta úr starfi.

          1.5 Yfirvinnukaup

        • 1.5.1

          Yfirvinna er greidd með tímakaupi, sem skiptist í yfirvinnu 1 og yfirvinnu 2. Tímakaup yfirvinnu 1 er 0,9385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi en tímakaup yfirvinnu 2 er 1,0385% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi.
          Greiðsla fyrir yfirvinnu skal vera með eftirtöldum hætti:

          Yfirvinna 1kl. 08.00–17.00Mánudaga–föstudaga
          Yfirvinna 2kl. 17.00–08.00Mánudaga–föstudaga
          Yfirvinna 3kl. 00.00–24.00Laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga

          Tímakaup yfirvinnu 2 greiðist jafnframt fyrir vinnu umfram 38,92 stundir á viku (168,63 stundir miðað við meðalmánuð).

        • 1.5.2

          Öll vinna sem unnin er á stórhátíðum skv. gr. 2.1.4.3. greiðist með tímakaupi sem nemur 1,375% af mánaðarlaunum.

        • 1.5.3

          Sé yfirvinna fjarri föstum vinnustað ekki greidd skv. tímareikningi, skal semja um þá greiðslu fyrirfram við viðkomandi starfsmann og í samráði við félagið.

          1.6 Álagsgreiðslur - vaktaálag

        • 1.6.1

          Vaktaálag reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1.
          Vaktaálag skal vera:

          33,33%kl. 17.00–24.00Mánudaga–fimmtudaga
          55,00%kl. 17.00–24.00Föstudaga
          65,00%kl. 00.00–08.00Þriðjudaga–föstudaga
          55,00%kl. 08.00–24.00Laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga
          75,00%kl. 00.00–08.00Laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
          120,00%kl. 00.00–24.00Stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3, þó þannig að fá kl. 16.00–24.00 á aðfangadag og gamlársdag kl. 00.00–08.00 á jóladag og nýársdag er 165,00% álag.

          Brot úr klst. greiðist hlutfallslega.

        • 1.6.2

          Greiðsla fyrir bakvaktir skal reiknast af dagvinnukaupi sbr. gr. 1.4.1 með eftirtöldum hætti:

          33,33%kl. 17.00–24.00Mánudaga–fimmtudaga
          45,00%kl. 17.00–24.00Föstudaga
          45,00%kl. 00.00–08.00Mánudaga
          33,33%kl. 00.00–08.00Þriðjudaga–föstudaga
          45,00%kl. 00.00–24.00Laugardaga, sunnudaga, mánudaga og sérstaka frídaga
          120,00%kl. 00.00–24.00Stórhátíðardaga sbr. gr. 2.1.4.3, þó þannig að fá kl. 16.00–24.00 á aðfangadag og gamlársdag kl. 00.00–08.00 á jóladag og nýársdag er 165,00% álag.

          Brot úr klst. greiðist hlutfallslega. Um greiðslur fyrir útköll á bakvakt gilda gr. 2.3.3.1 og 2.3.3.2.

        • 1.6.3

          Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið. Greitt skal fyrir eyður í vinnutíma með vaktaálagi, skv. gr. 1.6.1.

        • 1.6.4

          Greiðsla fyrir eyður og bakvakt á dagvinnutímabili skv. gr. 2.2.1 er 33,33% álag.

          1.7 Persónuuppbót í desember

        • 1.7.1

          Persónuuppbót (desemberuppbót) á samningstímanum verður sem hér segir:

          Á árinu 2024106.000 kr.
          Á árinu 2025110.000 kr.
          Á árinu 2026114.000 kr.
          Á árinu 2027118.000 kr.

          Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða í allt að 6 mánuði vegna fæðingarorlofs. Áunnin persónuuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.

        2. Um vinnutíma

          2.1 Almennt

        • 2.1.1

          Vinnuvika starfsmanna í fullu starfi er 36 virkar vinnustundir.

        • 2.1.2

          Heimilt er að haga vinnu með öðrum hætti en í kafla þessum greinir með samkomulagi starfsmanna og forráðamanna stofnunar og með skriflegu samþykki samningsaðila.
          Samningsaðilum er heimilt að semja um rýmkun dagvinnutíma á virkum dögum, umfram þau tímamörk sem um getur í gr. 2.2.1.

        • 2.1.3

          Vinnutími starfsmanna skal vera samfelldur eftir því sem við verður komið.

        • 2.1.4

          Frídagar

          2.1.4.1Almennir frídagar eru laugardagar og sunnudagar
          2.1.4.2

          Sérstakir frídagar eru:

          1. Nýársdagur
          2. Skírdagur
          3. Föstudagurinn langi
          4. Laugardagur fyrir páska
          5. Páskadagur
          6. Annar í páskum
          7. Sumardagurinn fyrsti
          8. 1. maí
          9. Uppstigningardagur
          10. Hvítasunnudagur
          11. Annar í hvítasunnu
          12. 17. júní
          13. Frídagur verslunarmanna
          14. Aðfangadagur eftir kl. 12.00
          15. Jóladagur
          16. Annar í jólum
          17. Gamlársdagur eftir kl. 12.00
          2.1.4.3

          Stórhátíðardagar eru:

          1. Nýársdagur
          2. Föstudagurinn langi
          3. Páskadagur
          4. Hvítasunnudagur
          5. 17. júní
          6. Aðfangadagur eftir kl. 12.00
          7. Jóladagur
          8. Gamlársdagur eftir kl. 12.00

          2.2 Dagvinna

        • 2.2.1

          Dagvinna skal unnin á tímabilinu 08:00 - 17:00 frá mánudegi til föstudags.

        • 2.2.2

          Forstöðumanni stofnunar er heimilt að verða við óskum einstakra starfsmanna um sveigjanlegan vinnutíma á tímabilinu kl. 07:00 – 18:00 á virkum dögum. Leita skal samþykkis samningsaðila þegar slíkar heimildir eru veittar.

        • 2.2.3

          Dagvinnumaður sem vinnur hluta af vikulegri vinnuskyldu sinni utan dagvinnutímabils skv. gr. 2.2.1, skal fá greitt álag skv. gr. 1.6.1 á þann hluta starfs síns. Hafi verið samið um rýmkun á dagvinnutímabili, skv. 2. mgr. gr. 2.1.2 eða gr. 2.2.2, greiðist ekki álag utan þeirra tímamarka sem greinir í gr. 2.2.1.

          2.3 Yfirvinna

        • 2.3.1

          Yfirvinna telst sú vinna, sem fer fram utan tilskilins daglegs vinnutíma eða vaktar starfsmanns svo og vinna, sem innt er af hendi umfram vikulega vinnutímaskyldu þótt á dagvinnutímabili sé.

        • 2.3.2

          Öll vinna sem unnin er á sérstökum frídögum skv. gr. 2.1.4.2, greiðist sem yfirvinna skv. gr. 1.5 nema vinnan falli undir gr. 2.6.7.

        • 2.3.3

          Útköll

          2.3.3.1Þegar starfsmaður er kallaður til vinnu sem ekki er í beinu framhaldi af daglegri vinnu hans, skal greitt yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti 3 klst., nema reglulegur vinnutími hans hefjist innan þriggja klst. frá því hann fór til vinnu en þá greiðist yfirvinna frá upphafi útkalls fram til þess að reglulegur vinnutími hefst. Ljúki útkalli áður en 3 klst. eru liðnar frá lokum hinnar daglegu vinnu, skal greiða yfirvinnu fyrir tímann frá lokum hinnar daglegu vinnu til loka útkalls.
          2.3.3.2Ef útkall hefst á tímabilinu 00:00 - 08:00 frá mánudegi til föstudags, kl. 17:00 - 24:00 á föstudegi eða á almennum eða sérstökum frídögum skv. gr. 2.1.4.1 og 2.1.4.2, skal greitt yfirvinnukaup fyrir að minnsta kosti 4 klst. nema reglulegur vinnutími hefjist innan 3 og 1/2 klst. frá því að útkall hófst en í þeim tilvikum skal greiða 1/2 klst. til viðbótar við unninn tíma.
        • 2.3.4

          Hafi starfsmaður skv. lögum eða samningi skemmri vikulega vinnuskyldu en gert er ráð fyrir í gr. 2.1.1, skal vinna umfram hana greidd skv. gr. 2.3.5 og 2.3.6.

        • 2.3.5

          Óreglubundin vinna umfram hina skertu vinnuskyldu eða samfelld vinna skemur en einn mánuð, greiðist með því kaupi, sem greitt er fyrir yfirvinnu.

        • 2.3.6

          Reglubundin vinna dagvinnumanna innan dagvinnumarka, í einn mánuð eða lengur, allt að vinnuskyldu miðað við fullt starf, greiðist sem reiknað hlutfall af mánaðarlaunum enda hafi starfsmanni verið kynnt það áður en sú vinna hófst. Það sama gildir um reglubundna vinnu vaktavinnumanna, að uppfylltum sömu skilyrðum, óháð því hvenær sólarhrings sú vinna fer fram.

        • 2.3.7

          Öll yfirvinna skal greidd eftirá fyrir hvern mánuð eða hverja þrjátíu daga og komi til útborgunar eigi síður en 15 dögum eftir síðasta dag reikningstímabilsins. Sama gildir um greiðslu fyrir yfirvinnu á veikindatímabili.

        • 2.3.8

          Heimilt er starfsmanni, með samkomulagi við vinnuveitanda, að safna frídögum vegna yfirvinnu, á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili en yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun. Samkomulag skal vera um töku frísins og það skipulagt þannig að sem minnst röskun verði á starfsemi stofnunar. Frí samkvæmt framansögðu, vegna undanfarandi almanaksárs, sem ekki hefur verið nýtt fyrir 15. apríl ár hvert, eða við starfslok, skal greitt út á dagvinnutaxta viðkomandi starfsmanns við næstu reglulegu útborgun.
          Ef samkomulag er á milli aðila má einnig veita 1,62 klst. í frí í dagvinnu fyrir hvern yfirvinnutíma og fellur þá greiðsla yfirvinnukaups niður enda kemur hún í stað unninnar yfirvinnustundar.

        • 2.3.9

          Þegar starfsmenn vistheimila ferðast með og annast vistmenn á ferðalögum, skal hver ferðadagur reiknaður allt að 12 klst. Vinnutíma umfram reglubundna vinnuskyldu greiðist sem yfirvinna. Vegna næturgistingar á ferðalögum með vistmönnum greiðast að auki 2 klst.

        • 2.3.10

          Fjarvistaruppbót

          2.3.10.1Greiða skal fjarvistaruppbót vegna dvalar í lengri tíma við störf fjarri föstum vinnustað skv. kjarasamningi eftir því sem nánar er greint í samkomulagi þessu.
          2.3.10.2Fjarvistaruppbót greiðist vegna tímabundinna starfa á vinnustöðum í óbyggðum, á hafi úti eða sambærilegum vinnustöðum þar sem ekki er unnt að sækja vinnustað frá heimili eða fastri aðstöðu vinnuveitanda í byggð eða svo er ekki gert að ákvörðun vinnuveitanda.
          2.3.10.3Fjarvistaruppbót greiðist þannig að til viðbótar unnum tíma skal greiða eina klst. í yfirvinnu á dag frá og með þriðja degi samfelldrar fjarvistar, sem uppfyllir skilyrði gr. 2.3.10.2. Greiðsla þessi fellur niður sé greitt fyrir vinnu þessa skv. sérstökum samningum umfram það sem ákveðið er í kjarasamningi Sameykis.

          2.4 Hvíldartími

        • 2.4.1

          Gildissvið o. fl.
          Hvað varðar gildissvið, hvíldartíma, vinnuhlé og fleira vísast til samnings ASÍ, BHM, BSRB og KÍ og samninganefndar ríkisins, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga frá 23. janúar 1997, um ákveðna þætti er varða skipulag vinnutíma, sem fylgir kjarasamningi þessum sem fylgiskjal og telst hluti hans.

        • 2.4.2

          Daglegur hvíldartími - Um skipulag vinnutíma
          Vinnutíma skal haga þannig að á 24 stunda tímabili, reiknað frá skipulögðu/venjubundnu upphafi vinnudags starfsmanns, fái starfsmaður a.m.k. 11 klst. samfellda hvíld. Verði því við komið, skal dagleg hvíld ná til tímabilsins frá kl. 23:00 til 06:00.
          Óheimilt er að skipuleggja vinnu þannig að vinnutími á 24 klst. tímabili fari umfram 13 klst.
          Starfsmaður á rétt á a.m.k. 15 mínútna hléi ef daglegur vinnutími hans er lengri en 6 klst. Kaffi- og matarhlé teljast hlé í þessu sambandi.

        • 2.4.3

          Frávik frá daglegri lágmarkshvíld

          2.4.3.1

          Vaktaskipti. Á skipulegum vaktaskiptum er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld starfsmanna í allt að 8 klst. Þetta á t.d. við þegar starfsmaður skiptir af morgunvakt yfir á næturvakt samkvæmt skipulagi vaktskrár.

          Fráviksheimild þessi frá 11 klst. lágmarkshvíld á hins vegar ekki við þegar starfsmaður lýkur yfirvinnu og fer yfir á reglubundna vakt og öfugt.

          Þar sem hér er um frávik frá meginreglunni um 11 klst. samfellda hvíld að ræða, verður að gera þá kröfu til vaktkerfis að það sé skipulagt þannig að skipti milli mismunandi tegunda vakta séu sem sjaldnast á vaktahring og að jafnaði reyni ekki á frávik þetta oftar en einu sinni í viku. Vinnan skal því skipulögð með sem jöfnustum hætti.

          2.4.3.2

          Sérstakar aðstæður. Við sérstakar aðstæður er heimilt að stytta samfellda lágmarkshvíld í allt að 8 klst. og lengja vinnulotu í allt að 16 klst., þ.e.a.s. við ófyrirsjáanleg atvik þegar bjarga þarf verðmætum. Ennfremur þegar almannaheill krefst þess og/eða halda þarf uppi nauðsynlegri heilbrigðis- eða öryggisþjónustu.

          Sé heimildum til frávika frá daglegum hvíldartíma skv. þessum lið beitt, skal starfsmaður fá samsvarandi hvíld í staðinn. Í beinu framhaldi af slíkri vinnulotu skal veita starfsmanni 11 klst. hvíld á óskertum launum sem hann annars hefði fengið.

          2.4.3.3

          Truflun á starfsemi vegna ytri aðstæðna. Ef truflun verður á starfsemi vegna ytri aðstæðna, svo sem vegna veðurs eða annarra náttúruafla, slysa, orkuskorts, bilana í vélum eða öðrum búnaði eða annarra slíkra ófyrirséðra atvika, má víkja frá ákvæðum um daglega lágmarkshvíld að því marki sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir verulegt tjón þar til regluleg starfsemi hefur komist á að nýju.

          Um er að ræða tilvik sem ekki verða séð fyrir. Rétt er að kalla annan starfsmann til vinnu til að leysa þann starfsmann af sem ekki hefur náð tilskilinni hvíld, sé þess nokkur kostur.

        • 2.4.4

          Vikulegur hvíldardagur
          Á hverju 7 daga tímabili skal starfsmaður fá a.m.k. einn vikulegan hvíldardag sem tengist beint daglegum hvíldartíma og skal við það miðað að vikan hefjist á mánudegi. Starfsmaður á þannig að fá 35 klst. samfellda hvíld einu sinni í viku.
          Að svo miklu leyti sem því verður við komið, skal vikulegur hvíldardagur vera á sunnudegi og starfsmaður fá frí á þeim degi. Þó má stofnun með samkomulagi við starfsmenn sína fresta vikulegum hvíldardegi þar sem sérstakar ástæður gera slík frávik nauðsynleg, þannig að í stað vikulegs hvíldardags komi tveir samfelldir hvíldardagar á hverjum tveimur vikum.
          Sé sérstök þörf á að skipuleggja vinnu þannig að vikulegum hvíldardegi sé frestað, skal haga töku hvíldardaga þannig að teknir séu tveir hvíldardagar saman.

        • 2.4.5

          Frítökuréttur

          2.4.5.1Almenn skilyrði frítökuréttar. Hafi stjórnandi metið það svo að brýn nauðsyn sé til að starfsmaður mæti til vinnu áður en 11 klst. lágmarkshvíld er náð, skapast frítökuréttur, 1½ klst. (í dagvinnu) fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist. Ávinnsla frítökuréttar einskorðast ekki við heilar stundir. Starfsmaður á ekki að mæta aftur til vinnu fyrr en að aflokinni 11 klst. hvíld nema hann hafi sérstaklega verið beðinn um það. Mæti starfsmaður eigi að síður áður en hann hefur náð hvíldinni, ávinnur hann sér ekki frítökurétt.
          2.4.5.2Samfelld hvíld rofin með útkalli – Frítökuréttur miðað við lengsta hlé. Ef hvíld er rofin einu sinni eða oftar innan 24 stunda tímabils miðað við skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags starfsmanns, skal bæta það sem vantar upp á að 11 klst. hvíld náist, miðað við lengsta hlé innan vinnulotu, með frítökurétti, 1½ klst. (dagvinnu) fyrir hverja klukkustund sem vantar upp á 11 klst. hvíld.
          2.4.5.3Vinna umfram 16 klst. Hafi starfsmaður unnið samtals meira en 16 klst. á einum sólarhring, þ.e. hverjum 24 klst., miðað við skipulagt/venjubundið upphaf vinnudags starfsmanns, án þess að ná 8 klst. samfelldri hvíld, skal starfsmaður undantekningarlaust fá 11 klst. samfellda hvíld að lokinni vinnu, án frádráttar á þeim launum sem hann annars hefði fengið. Frítökuréttur, 1,5 klst. (dagvinna) safnast upp fyrir hverja klst. sem unnin var umfram 16 klst.
          2.4.5.4Aukinn frítökuréttur vegna samfelldrar vinnu umfram 24 klst. Í þeim sérstöku undantekningartilvikum að starfsmaður vinni samfellt fullar 24 stundir, skal frítökuréttur aukast þannig að hver heil stund umfram 24 veitir frítökurétt sem er 1,8% lengri en sá frítökuréttur sem næsta stund á undan gaf.
          2.4.5.5Vinna á undan hvíldardegi. Vinni starfsmaður skv. ákvörðun yfirmanns það lengi á undan hvíldardegi að ekki náist 11 klst. hvíld miðað við venjubundið upphaf vinnudags eða vaktar (sjá skýringaramma í gr. 2.4.2), skal starfsmaður mæta samsvarandi síðar við upphaf næsta reglubundna vinnudags, án frádráttar á þeim launum sem hann annars hefði fengið, ella safnast upp frítökuréttur, 1½ klst. í dagvinnu fyrir hverja klukkustund sem hvíldin skerðist.
          2.4.5.6Upplýsingar um frítökurétt á launaseðli. Uppsafnaður frítökuréttur skal koma fram á launaseðli og hann skal veittur í hálfum eða heilum dögum.
          2.4.5.7Frítaka. Frítökuréttur skal veittur í samráði við starfsmann enda sé uppsafnaður frítökuréttur a.m.k. fjórar stundir og skal frítaka ekki veitt í styttri lotum en það. Leitast skal við að veita frí svo fljótt sem auðið er eða með reglubundnum hætti til að koma í veg fyrir að frí safnist upp.
          2.4.5.8Greiðsla hluta frítökuréttar. Heimilt er að greiða út ½ klst. (í dagvinnu) af hverri 1½ klst. sem starfsmaður hefur áunnið sér í frítökurétt, óski hann þess.
          2.4.5.9Uppgjör við starfslok. Við starfslok skal ótekinn frítökuréttur gerður upp með sama hætti og orlof. Frítökuréttur fyrnist ekki.
        • 2.4.6

          Æðstu stjórnendur og aðrir þeir sem ráða vinnutíma sínum sjálfir.
          Aðilar þessir geta eðli málsins samkvæmt ekki áunnið sér frítökurétt, sbr. einnig gildissvið vinnuverndarákvæða um þá í tilskipun Evrópusambandsins nr. 93/104/EC, 1. tölul., a-liðar, 17.gr. og 4.mgr. 1.gr. framangreinds samnings aðila vinnumarkaðarins dags. 23.01.1997.

          2.5 Bakvaktir, bakvaktafrí

        • 2.5.1

          Með bakvakt er átt við að starfsmaður sé ekki við störf en reiðubúinn til að sinna útkalli. Það telst ekki bakvakt ef starfsmaður dvelst á vinnustað að beiðni yfirmanns. Um greiðslu fyrir bakvakt sjá gr. 1.6.2.

        • 2.5.2

          Starfsmaður á rétt á fríi í stað greiðslu álags fyrir bakvakt. 20 mínútna frí jafngildir 33,33% vaktaálagi, 27 mínútna frí jafngildir 45% vaktaálagi, 72 mínútna frí jafngildir 120% vaktaálagi og 99 mínútna frí jafngildir 165% vaktaálagi.

        • 2.5.3

          Bakvaktargreiðsla fellur niður þann tíma sem yfirvinnukaup er greitt.

        • 2.5.4

          Fyrir reglubundna bakvakt skal veita frí sem svarar mest 80 klst. fyrir 1200 klst. á bakvakt. Frí þetta skal veita hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Bakvaktafrí er að hámarki 80 stundir vegna ákvæðis 2.5.4 þótt bakvaktastundir séu fleiri en 1200. Leitast skal við að taka bakvaktafrí samhliða ávinnslu og svo fljótt sem unnt er.

        • 2.5.5

          Unnar stundir á bakvöktum skulu ekki dregnar frá þegar bakvaktarstundir á ári eru taldar, sbr. gr. 2.5.4.

        • 2.5.6

          Röntgentæknar á röntgendeildum skulu fá vetrarfrí til viðbótar almennu orlofi sem svarar 16 dögum fyrir hvert heilt ár í starfi.

        • 2.5.7

          Leyfi skv. gr. 2.5.4 og 2.5.6 má veita hvenær árs sem er en hvorki er heimilt að flytja það milli ára né bæta því við sumarleyfi.
          Heimilt er að semja við starfsmann um greiðslu í stað fría samkvæmt greinum 2.5.4 og 2.5.6. Greiðsla þessi miðast við tímakaup í dagvinnu samkvæmt gr.1.4.1.

        • 2.5.8

          Heimilt er með samkomulagi starfsmanna og forráðamanna stofnunar og með skriflegu samþykki samningsaðila að semja um annað fyrirkomulag greiðslu fyrir bakvaktir en að framan greinir. T.d. er heimilt að semja um ákveðinn fjölda klukkustunda fyrir bakvakt án tillits til tímalengdar. Ef samið er um aðrar bakvaktagreiðslur en um getur í gr. 1.6.2 skal, að teknu tilliti til útkallatíðni og lengdar útkalla á tilteknu viðmiðunartímabili, semja um að bakvaktagreiðslur falli ekki niður í útköllum, að hluta til eða öllu leyti.

          2.6 Vaktavinna

        • 2.6.1

          Þeir sem vinna á reglubundnum vöktum, skulu fá álag fyrir unnin störf á þeim tíma er fellur utan venjulegs dagvinnutímabils skv. gr. 2.2.1.

        • 2.6.2

          Þar sem unnið er á reglubundnum vöktum skal leggja fram drög að vaktskrá, sem sýnir væntanlegan vinnutíma hvers starfsmanns, sex vikum áður en hún tekur gildi. Endanleg vaktskrá skal lögð fram mánuði áður en fyrsta vakt samkvæmt skránni hefst, nema samkomulag sé við starfsmann um skemmri frest.
          Krefjist starfsemi stofnunar breytingar á vaktskrá skal hún gerð með samþykki starfsmanns. Ef vaktskrá er breytt með skemmri fyrirvara en 24 klst., skal viðkomandi starfsmanni greitt breytingargjald sem nemur 2% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Sé fyrirvarinn 24-168 klst. (ein vika) skal greiða breytingargjald sem nemur 1,3% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi. Hér er eingöngu átt við breytingu á skipulagðri vakt en ekki aukavakt.
          Taki starfsmaður vakt umfram vinnuskyldu, með minna en 24. klst. fyrirvara á tímabilinu kl. 17:00-24:00 á föstudögum, kl. 24:00-08:00 mánudaga til föstudaga, kl. 00:00-24:00 laugardaga, sunnudaga og sérstaka frídaga, sbr. gr. 2.1.4.2 miðað við 8 klst. vakt, skal greiða breytingargjald sem nemur 1,3% af mánaðarlaunum í hverjum launaflokki og þrepi og hlutfallslega fyrir lengri eða styttri vaktir.

        • 2.6.3

          Við samningu vaktskrár skal þess gætt að helgidagavinna skiptist sem jafnast á starfsmenn.

        • 2.6.4

          Að jafnaði skulu vaktir vera á bilinu 4 - 10 klst. Heimilt er, sbr. gr. 2.1.2, að semja um aðra tímalengd vakta.

        • 2.6.5

          Þar sem nauðsyn er á samvistartíma við vaktaskipti, skal fella hann inn í hinn reglulega vinnutíma.

        • 2.6.6

          Skipulagi vaktavinnu skal haga þannig að starfsmenn fái að jafnaði tvo samfellda frídaga í viku.

        • 2.6.7

          Árleg vinnuskylda vaktavinnufólks sem vinnur á reglubundnum vöktum skal að jafnaði vera sú sama og hjá dagvinnufólki. Vinnuskylda vaktavinnufólks lækkar því um 7,2 vinnuskyldustundir miðað við fullt starf vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga, skv. gr. 2.1.4.2, sem falla á mánudag til föstudags að undanskildum aðfangadegi og gamlársdegi sem skal vera 3,6 klukkustundir fyrir hvorn dag miðað við fullt starf. Að jafnaði skal taka út lækkun á vinnuskilum vegna sérstakra frídaga innan tímabils vaktskrár. Óski starfsmaður eftir því að safna upp vinnuskilum vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga skal hann tilkynna sínum yfirmanni um það fyrir framlagningu vaktskrár þegar ávinnsla á sér stað. Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsmanns enda verði því viðkomið vegna starfsemi stofnunar. Í þeim tilvikum þar sem vinnuskil vegna sérstakra frídaga og stórhátíðardaga flytjast á milli mánaða skal halda utan um það og starfsfólk upplýst reglulega. Vinna sem fellur á sérstaka frídaga og stórhátíðardaga skal auk þess launa með álagi skv. gr. 1.6.1.

        • 2.6.8

          Vægi vinnuskyldustunda vaktavinnu fólks
          Vinnuskyldustundir vaktavinnufólks utan dagvinnumarka skv. skipulagðri vaktskrá og innan vinnutímaskyldu hafa ólíkt vægi við útreikning vinnuskila. Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 33,33% og 55% vaktaálagi skv. gr. 1.6.1 hafa vægið 1,05 þannig að fyrir hverjar 60 mínútur reiknast 63 mínútur. Vinnustundir sem greiddar eru með 65% og 75% vaktaálagi skv. gr. 1.6.1 hafa vægið 1,2 þannig að fyrir hverjar 60 mínútur reiknast 72 mínútur. Þrátt fyrir framangreint skulu vinnuskil starfsmanns í fullu starfi aldrei fara undir 32 vinnustundir á viku að jafnaði (að meðaltali á launatímabili) og hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall.
          Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 120% vaktaálagi skv. gr. 1.6.1 hafa vægið 1,05 á tímabilinu 08:00-24:00 og vægið 1,2 á tímabilinu 00:00-08:00. Vinnuskyldustundir sem greiddar eru með 165% vaktaálagi hafa vægið 1,20.

        • 2.6.9

          Vaktahvati
          Starfsfólk sem vinnur vaktavinnu og uppfyllir skilyrði greinarinnar fær greiddan vaktahvata með eftirfarandi hætti. Vaktahvati greiðist sem hlutfall greiddra mánaðarlauna vegna fjölbreytileika og fjölda vakta á þremur síðustu uppgjörstímabilum samkvæmt skipulögðum vöktum innan vinnutímaskyldu. Lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda á því tímabili utan dagvinnumarka (á 33,33%, 55%, 65% og 75% álagi) eru 126 vinnuskyldustundir. Vaktir eru flokkaðar í fjórar tegundir; dagvaktir, kvöldvaktir (33,33% álag), næturvaktir á virkum dögum (65% álag) og helgarvaktir (55% og 75% álag). Þá skal lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda í hverri tegund vakta vera 45 vinnuskyldustundir. Starfsmaður þarf að standa vaktir í tveimur til fjórum tegundum vakta, 14 sinnum eða oftar að meðaltali á uppgjörstímabili til þess að njóta vaktahvata.
          Þegar starfsfólk hefur störf reiknast vaktahvati fyrir eitt uppgjörstímabil á fyrsta og öðrum mánuði í starfi þannig að lágmarksfjöldi stunda utan dagvinnumarka eru 42 og lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda í hverri tegund vakta eru 15. Eftir þrjá mánuði í starfi reiknast vaktahvati skv. 1. mgr. Það sama á við þegar samið er um breytingar á starfshlutfalli sem nema 40% eða meira til hækkunar eða lækkunar.

          Hlutfall vaktahvata miðast við eftirfarandi töflu :

           Tegundir vakta
          Fjöldi vakta1234
          19 10,0%12,5%12,5%
          18 7,5%12,5%12,5%
          17 7,5%10,0%12,5%
          16 2,5%7,5%12,5%
          15 2,5%2,5%10,0%
          14  2,5%7,5%
        • 2.6.10

          Starfsmenn sem vinna reglubundna vaktavinnu, skulu undanþegnir næturvöktum ef þeir óska er þeir hafa náð 55 ára aldri.

        • 2.6.11

          Um vinnutíma þeirra vaktavinnumanna, er fyrir gildistöku kjarasamnings fjármálaráðherra og BSRB frá 19. desember 1970 unnu 36 og 37 klst. vinnuviku, skal eftirfarandi gilda:
          Þegar skylduvinna er unnin kl. 24:00-08:00, á laugardögum eftir kl. 12:00 á hádegi eða sunnudögum, teljast 50 mín. jafngilda einni klst.
          Regla þessi gildir einungis um þá starfsmenn persónulega sem fullnægja ofangreindum kröfum um vinnutíma, enda leggi BSRB fram lista með nöfnum þeirra einstaklinga sem njóta þessara sérstöku réttinda.
          Ákvæði þetta tekur einungis til þeirra manna er voru í starfi 1. jan. 1974. Sjá samstarfsnefnd BSRB 23. febr. 1979.

        3. Hlé frá vinnu, fæði og matstofa

          3.1 Hlé frá vinnu

        • 3.1.1

          Starfsmönnum er heimilt að neyta matar og drykkja við vinnu sína þegar því verður við komið starfsins vegna og slík hlé eru hluti af virkum vinnutíma.

        • 3.1.2

          Heimilt er með samkomulagi stjórnenda stofnunar og einfalds meirihluta þeirra starfsmanna sem málið varðar að ákvarða dagleg hlé sem eru á forræði starfsmanna. Ákvörðuð lengd þeirra lengir daglega viðveru starfsmanna samsvarandi enda teljast slík hlé ekki til virks vinnutíma.
          Á þeim stofnunum þar sem hlé eru ákvörðuð með slíku samkomulagi og unnið er í hléinu að beiðni yfirmanns er greitt fyrir það með yfirvinnukaupi.

          Sjá nánar „Leiðbeiningar stýrihóps vegna betri vinnutíma“ og undirkafla um „Leiðbeiningar vegna ráðningarfyrirkomulagsins tímavinnu“ á mannaudstorg.is.

          3.2 Fæði og mötuneyti

        • 3.2.1

          Starfsmenn sem eru við störf á föstum vinnustað, skulu hafa aðgang að matstofu eftir því sem við verður komið. Matstofa telst sá staður í þessu tilviki þar sem hægt er að bera fram heitan og kaldan mat, aðfluttan eða eldaðan á staðnum. Húsakynni og aðstaða skulu vera í samræmi við kröfur viðkomandi heilbrigðisyfirvalda. Starfsmenn greiði efnisverð matarins en annar rekstrarkostnaður greiðist af viðkomandi stofnun.

        • 3.2.2

          Á þeim vinnustöðum þar sem ekki er starfrækt mötuneyti, skal reynt að tryggja starfsmönnum aðgang að nærliggjandi mötuneyti á vegum vinnuveitanda, eða látinn í té útbúnaður til að flytja matinn á matstofu vinnustaðar þannig að starfsmönnum sé flutningur matarins að kostnaðarlausu.

        • 3.2.3

          Ef stofnunin kaupir mat hjá öðrum aðila en greint er í gr. 3.2.2, skulu starfsmenn greiða fyrir sambærilegan mat upphæð er svarar til meðaltalsverðs er starfsmenn greiða í mötuneyti Stjórnarráðsins.

        • 3.2.4

          Starfsmaður sem hefur ekki aðgang að matstofu en ætti að hafa það skv. gr. 3.2.1 eða er á vakt þegar matstofa vinnustaðar er ekki opin, skal fá það bætt með fæðispeningum sem nema 638 kr. enda sé dagleg vinnuskylda starfsmanns 6 klukkustundir eða lengri.

        • 3.2.5

          Upphæð fæðispeninga breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við matvörulið vísitölu neysluverðs (01 Matur og drykkjarvörur) með vísitölu maí mánaðar 2024 sem grunnvísitölu (236,6 stig) miðað við undirvísitölur frá 2008.

        • 3.2.6

          Þar sem mötuneyti eru á vinnustöðum, skulu starfsmenn sem kaupa þar fæði, tilnefna 2 trúnaðarmenn úr sínum hópi til þess að fylgjast með rekstri mötuneytisins og eiga aðgang að reikningum þess.

          3.3 Skyldumatur, greiðslur

        • 3.3.1

          Starfsmönnum sem er gert að matast með skjólstæðingum sínum og aðstoða þá við borðhaldið, skulu undanþegnir því að greiða fyrir þær máltíðir enda sé þeim ekki umbunað fyrir það með öðrum hætti svo sem styttri vinnutíma eða greiðslu.

        4. Orlof

          4.1 Lengd orlofs

        • 4.1.1

          Orlof skal vera 30 dagar (216 stundir miðað við 36 virkar vinnustundir á viku) miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs skal vera hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns.

          4.2 Orlofsfé og orlofsuppbót

        • 4.2.1

          Starfsmaður skal fá 13,04% orlofsfé á yfirvinnu og álagsgreiðslur skv. samningi þessum.

        • 4.2.2

          Orlofsuppbót á samningstímanum verður sem hér segir:

          Á árinu 202458.000 kr.
          Á árinu 202560.000 kr.
          Á árinu 202662.000 kr.
          Á árinu 202764.000 kr.

          Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma.

          Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé. Áunnin orlofsuppbót skal gerð upp samhliða starfslokum.

          4.3 Orlofsárið

        • 4.3.1

          Orlofsárið er frá 1. maí til 30. apríl.

        • 4.3.2

          Ef breytingar verða á starfshlutfalli á orlofsárinu þarf að taka tillit til þess í launaútreikningi við töku orlofsins.

          4.4 Sumarorlof

        • 4.4.1

          Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til 15. september.

        • 4.4.2

          Starfsmaður á rétt á að fá allt að 30 daga orlof, þar af 15 daga samfellda, á sumarorlofstímabilinu, enda verði því við komið við vegna starfa stofnunar.

          4.5 Ákvörðun orlofs

        • 4.5.1

          Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsmann, hvenær orlof skuli veitt. Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsmanna um hvenær orlof skuli veitt enda verði því við komið vegna starfsemi stofnunar.
          Ákvörðun um sumarorlof skal liggja fyrir svo fljótt sem verða má og eigi síðar en 31. mars og tilkynnt starfsmanni með sannanlegum hætti, svo sem í tímaskráningarkerfi stofnunar, nema sérstakar aðstæður hamli.

        • 4.5.2

          Sé orlof eða hluti orlofs tekið utan sumarorlofstímabils, að skriflegri beiðni yfirmanns, skal sá hluti orlofsins lengjast um 25%.

          4.6 Frestun orlofs

        • 4.6.1

          Flutningur orlofs milli ára er óheimill, sbr. þó grein 4.6.2 og 4.6.3.

        • 4.6.2

          Ef starfsmaður tekur ekki orlof eða hluta af orlofi, að skriflegri beiðni yfirmanns, getur orlofið geymst til næsta orlofsárs, enda hafi starfsmaður ekki lokið orlofstöku á orlofsárinu. Sama gildir um starfsmann í fæðingar- og foreldraorlofi. Í slíkum tilvikum getur uppsafnað orlof þó aldrei orðið meira en 60 dagar. Upplýsingar um stöðu þegar áunnins og ótekins orlofs skulu vera starfsmönnum aðgengilegar í tímaskráningarkerfi stofnunar.

        • 4.6.3

          Veikist starfsmaður í orlofi, telst sá tími sem veikindum nemur ekki til orlofs, enda sanni starfsmaður með læknisvottorði að hann geti ekki notið orlofs.
          Tilkynna skal yfirmanni án tafar með sannanlegum hætti ef um veikindi eða slys í orlofi er að ræða.
          Í slíkum tilvikum er heimilt að flytja ótekið orlof til næsta árs, sbr. grein 4.6.2.

        • 4.6.4

          Komi starfsmaður úr öðru starfi án þess að hafa þar notið áunnins orlofs, þá á hann rétt á ólaunuðu orlofi í allt að 30 daga.

          4.7 Áunninn orlofsréttur

        • 4.7.1

          Greiða skal dánarbúi áunninn orlofsrétt látins starfsmanns.

          4.8 Orlofssjóður

        • 4.8.1

          Ríkissjóður greiðir sérstakt gjald í Orlofssjóð Sameykis. Gjald þetta skal nema 0,5% af heildarlaunum félagsmanna Sameykis í þjónustu ríkisins. Gjaldið skal greiða mánaðarlega eftir á skv. útreikningi launagreiðanda.

        5. Ferðir og gisting

          5.1 Ferðakostnaður samkvæmt reikningi

        • 5.1.1

          Kostnaður vegna ferðalaga innanlands á vegum vinnuveitanda skal greiðast eftir reikningi, enda fylgi fullnægjandi frumgögn. Sama gildir ef hluti vinnudags er unninn svo langt frá föstum vinnustað að starfsmaður þarf að kaupa sér fæði utan heimilis eða fasts vinnustaðar.

        • 5.1.2

          Starfsmenn skulu fá fyrirframgreiðslu áætlaðs ferðakostnaðar.

        • 5.1.3

          Um uppgjör ferðakostnaðar, þar með talið akstursgjald, fer eftir sömu reglum og um uppgjör yfirvinnu.

          5.2 Dagpeningar innanlands

        • 5.2.1

          Greiða skal gisti- og fæðiskostnað með dagpeningum, sé um það samkomulag eða ekki unnt að leggja fram reikninga.

        • 5.2.2

          Dagpeningar á ferðalögum innanlands skulu ákveðnir af nefnd skv. gr. 5.8.

          5.3 Greiðsluháttur

        • 5.3.1

          Fyrirfram skal af stofnun og starfsmanni ákveðið hvaða háttur á greiðslu ferðakostnaðar skal viðhafður hverju sinni.

          5.4 Vinnusókn og ferðir

        • 5.4.1

          Starfsmaður skal sækja vinnu til fasts ráðningarstaðar á eigin vegum og í tíma sínum.

        • 5.4.2

          Frá grein 5.4.1 eru eftirtalin frávik:

          5.4.2.1

          Starfsmanni skal séð fyrir ferð eða honum greiddur ferðakostnaður að og frá vinnustað ef öll eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

          • Að starfsmaður hefji eða ljúki vinnu á þeim tímum sem strætisvagnar ganga ekki.
          • Að heimili starfsmanns sé lengra en 1,5 km (loftlína) frá vinnustað.
          • Að vinnustaður sé innan leiðakerfis strætisvagna. Með leiðakerfi er átt við skipulagðar ferðir þar sem gert er ráð fyrir að minnsta kosti einni ferð á klukkustund innan hvers skilgreinds þéttbýliskjarna í viðkomandi tilviki.
          • Að ekki sé lengra en 1,5 km frá biðstöð að vinnustað.

          Starfsmanni er ekki séð fyrir ferð eða honum greiddur ferðakostnaður fyrir lengri vegalengd en sem nemur 15 km (loftlína) frá vinnustað.

          5.4.2.2Ef ákvæði greinar 5.4.2.1 eiga ekki við, en vinnustaður er innan þéttbýlis, skal starfsmanni séð fyrir ferðum að og frá vinnustað innan 15 km fjarlægðar (loftlína), en þó utan 1,5 km (loftlína), þegar starfsmaður hefur eða lýkur vinnu á tímabilinu frá kl. 00:00 til kl. 07:00 virka daga og frá kl. 00:00 til kl. 12:00 á almennum eða á sérstökum frídögum skv. gr. 2.1.4.2 og 2.1.4.3.
          5.4.2.3Þær stofnanir sem staðsettar eru a.m.k. 1,5 km utan ytri marka næsta þéttbýlis skulu, í stofnanasamningi skv. kafla 11, semja um greiðslur ferðakostnaðar fyrir þá starfsmenn sem ekki búa á staðnum.
          5.4.2.4Ef um sérstakar aðstæður er að ræða, til dæmis dvöl í óbyggðum, á sjó eða langdvöl á ferðum er í stofnanasamningi skv. kafla 11, heimilt að semja um greiðslu ferðakostnaðar.
          5.4.2.5Vegna aksturs til og frá Keflavíkurflugvelli reiknast ferðatími 30 mínútur hvern vinnudag.

          5.5 Ferðatími erlendis

        • 5.5.1

          Þegar starfsmaður fer utan að frumkvæði vinnuveitanda og á vegum hans skulu greiðslur vegna slíks óhagræðis vera með eftirfarandi hætti:
          Sé brottför flugs á virkum degi fyrir kl. 10:00 og/eða heimkoma eftir kl. 15:00 skal starfsmaður fá greiðslu sem nemur þremur álagsstundum á 33,33% álagi skv. gr. 1.6.1 fyrir hvort tilvik.
          Á almennum og sérstökum frídögum skal samsvarandi greiðsla nema sex álagsstundum á 55% álagi skv. gr. 1.6.1, án tillits til þess hvenær dags flugið er.
          Heimilt er að semja um frítíma í stað greiðslu ferðatíma, sbr. gr. 2.5.2.

          5.6 Dagpeningar á ferðum erlendis

        • 5.6.1

          Ferðakostnaður á ferðalögum erlendis, annar en fargjöld, greiðist með dagpeningum sem skulu ákveðnir af nefnd skv. gr. 5.7.

        • 5.6.2

          Af dagpeningum á ferðalögum erlendis ber að greiða allan venjulegan ferðakostnað, annan en fargjöld, svo sem kostnað vegna ferða að og frá flugvöllum, fæði, húsnæði, minniháttar risnu og hvers konar persónuleg útgjöld.

          5.7 Dagpeningar vegna námskeiða o.fl.

        • 5.7.1

          Dagpeningar vegna námskeiða, þjálfunar - og eftirlitsstarfa skulu ákveðnir af nefnd skv. gr. 5.8.

          5.8 Ferðakostnaðarnefnd

        • 5.8.1

          Upphæð dagpeninga skv. samningi þessum skal endurskoða þegar þörf er á og samningsaðili óskar þess, þó eigi sjaldnar en á þriggja mánaða fresti. Endurskoðunin skal unnin af nefnd er sé skipuð einum fulltrúa BSRB, einum fulltrúa BHM og tveimur fulltrúum tilnefndum af fjármálaráðherra.

        • 5.8.2

          Nefnd þessi skal einnig endurskoða flokkun landa eftir dvalarkostnaði svo og greiðslu fyrir afnot eigin bifreiða starfsmanna, sé notkun þeirra nauðsynleg vegna starfsins.

        • 5.8.3

          Náist ekki samkomulag í nefndinni, skal oddamaður tilnefndur af Hagstofu Íslands.

          5.9 Heimflutningur fjarri vinnustað

        • 5.9.1

          Þegar starfsmaður vinnur fjarri reglulegum vinnustað eða heimastöð þess vinnuflokks er hann tilheyrir, skal hann eiga rétt á ókeypis flutningi í vinnutíma til og frá heimili sínu eins og hér segir:

          1. Vikulega ef vegalengd frá dvalarstað vinnuflokks til heimastöðvar flokksins eftir aðalleið er innan við 150 km.
          2. Hálfsmánaðarlega ef sú vegalengd er 151 km eða meira. Starfsmanni skal tryggt eigi skemmra frí en 48 klst. milli ferða skv. þessum lið.
        • 5.9.2

          Þrátt fyrir ákvæði gr. 5.8.1 eiga vinnuflokkar rétt á ókeypis flutningi daglega í vinnutíma frá dvalarstað til heimastöðvar ef vegalengd frá heimastöð er innan við 60 km og færð eða veður hamla ekki heimflutningum.

        • 5.9.3

          Ef um einn eða tvo menn er að ræða, skulu þeim á sama hátt tryggðar ferðir að og frá vinnustað með ökutæki stofnunar eða á eigin bifreið gegn km-gjaldi.

        • 5.9.4

          Starfsmenn vinnuflokks mega semja sín á milli um að fækka heimferðum frá því sem getið er hér að framan, ef þeir hafa komið sér saman um að draga saman frí.

        • 5.9.5

          Framangreind ákvæði um ókeypis heimflutning eiga ekki við ef fjarlægð frá dvalarstað vinnuflokks til heimilis starfsmanns er meira en 1,5 sinnum vegalengdin frá dvalarstað vinnuflokks að heimastöð hans. Ef vegalengdin er 200 km eða meira frá dvalarstað vinnuflokks til heimastöðvar flokks, skal ferðast flugleiðis ef þess er kostur og óskað er enda sé áætlunarflugleið þar á milli.

        • 5.9.6

          Um heimflutning, sem ekki fellur undir ákvæðin hér að framan, skal semja hverju sinni.

          5.10 Gistiaðstaða

        • 5.10.1

          Sé starfsmanni sem er við störf fjarri heimili sínu, gert að gista í húsnæði sem er í eigu eða umráðum vinnuveitanda, skal það gistirými vera hlýtt og hreinlegt og viðlegubúnaður sambærilegur við það sem gerist á gistihúsum eftir því sem við verður komið.

        • 5.10.2

          Aðgangur skal vera að viðunandi snyrtiaðstöðu með heitu og köldu vatni í steypibaði, handlaugum og rennandi vatni í salernum.

        • 5.10.3

          Hjá vinnuflokkum þar sem mötuneyti eru starfandi, skal vera aðstaða til kælingar á matvælum. Þar skal einnig vera aðstaða til þvotta á fatnaði.

        • 5.10.4

          Ef gistirými er skáli í óbyggðum, skal gistiaðstaða eigi vera lakari en tíðkast í sæluhúsum Ferðafélags Íslands. Starfsmönnum skal lagður til allur viðlegubúnaður.

        • 5.10.5

          Hjá vinnuflokkum þar sem mötuneyti er starfandi utan heimastöðvar, skal vinnuveitandi leggja flokkunum til útvarpstæki.

        • 5.10.6

          Á tímabilinu júní - ágúst er heimilt að nota tjöld til gistingar þar sem torvelt er að sjá fyrir gistiaðstöðu með öðru móti. Tjöldin skulu vera traust og vönduð og í þeim skulu vera rúmstæði og hitunartæki.

        6. Aðbúnaður og hollustuhættir

          6.1 Réttur starfsmanna

        • 6.1.1

          Starfsmenn skulu njóta réttinda skv. lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, enda falli starf þeirra ekki undir önnur lög.

          6.2 Um vinnustaði

        • 6.2.1

          Vinnustaður skal þannig úr garði gerður, að þar sé gætt fyllsta öryggis og góðs aðbúnaðar og hollustuhátta, sbr. VI. kafla laga nr. 46/1980.

        • 6.2.2

          Gert er ráð fyrir því að starfsfólk geti sinnt reglubundnum störfum sínum innan hefðbundins vinnudags. Mikilvægt er að stofnanir setji sér viðverustefnu þar sem m.a. er skerpt á skilum milli vinnu og einkalífs. Í þeim tilvikum sem starfsfólk þarf að sinna vinnu utan hefðbundins vinnutíma skal það koma fram í starfslýsingu og starfskjörum viðkomandi. Að öðrum kosti skal greiða sérstaklega fyrir vinnuframlag sem yfirmaður krefst af starfsmanni utan hefðbundins vinnutíma.

          6.3 Lyf og sjúkragögn

        • 6.3.1

          Algengustu lyf og sjúkragögn skulu vera fyrir hendi á vinnustað til nota við fyrstu aðgerð í slysatilfellum. Lyf og sjúkragögn skulu vera í vörslu og á ábyrgð verkstjóra og trúnaðarmanna.

          6.4 Öryggiseftirlit

        • 6.4.1

          Á vinnustöðum skal vera fyrir hendi til afnota tæki og öryggisbúnaður, sem Vinnueftirlit ríkisins telur nauðsynlegan.

        • 6.4.2

          Skipa skal öryggisverði, öryggistrúnaðarmenn og öryggisnefndir í samræmi við II. kafla laga nr. 46/1980.

          6.5 Slysahætta

        • 6.5.1

          Varast skal eftir föngum, að starfsmaður sé einn við störf þar sem slysahætta er mikil.
          Um þetta atriði skal semja þar sem það á við.

          6.6 Læknisskoðun / veikindi

        • 6.6.1

          Á vinnustöðum þar sem sérstök hætta er á heilsutjóni starfsmanna, getur Sameyki óskað sérstakrar læknisskoðunar á starfsfólki. Telji sérmenntaður embættislæknir Vinnueftirlits ríkisins slíka skoðun nauðsynlega, skal hún framkvæmd eins og fljótt og unnt er.

        7. Tryggingar

          7.1 Slysatryggingar

        • 7.1.1

          Starfsmenn skulu slysatryggðir allan sólarhringinn fyrir dauða eða vegna varanlegrar örorku. Um trygginguna gilda mismunandi bótafjárhæðir og tryggingaskilmálar eftir því hvort starfsmaður verður fyrir slysi í starfi eða utan starfs. Um skilmála trygginga þessara gilda reglur nr. 30/1990 og nr. 31/1990 sem fjármálaráðherra hefur sett.

        • 7.1.2

          Dánarslysabætur eru:

          1. Ef hinn látni var ógiftur og lætur ekki eftir sig barn undir 18 ára aldri og hefur ekki séð fyrir foreldri eða foreldrum, 67 ára og eldri:

            vegna slyss utan starfs1.033.900 kr.
            vegna slyss í starfi1.033.900 kr.

            Rétthafar þessara dánarbóta eru lögerfingjar.

          2. Ef hinn látni var ógiftur en lætur eftir sig barn (börn) undir 18 ára aldri og/‌eða hefur sannanlega séð fyrir foreldri eða foreldrum, 67 ára og eldri:

            vegna slyss utan starfs3.167.100 kr.
            vegna slyss í starfi7.570.700 kr.

            Rétthafar þessara dánarbóta eru foreldrar og börn. Taki báðir þessir aðilar bætur, rennur 1/3 hluti bóta til foreldra en 2/3 hlutar bóta skiptast milli barna að jöfnu.

          3. Ef hinn látni var í hjúskap eða í sambúð sem að öðru leyti má jafna til hjúskapar og sem staðið hefur a.m.k. í 2 ár samfellt fyrir andlát hans, skulu bætur til maka eða sambúðaraðila vera:

            vegna slyss utan starfs4.332.600 kr.
            vegna slyss í starfi12.355.000 kr.

            Rétthafi dánarbóta þessara er viðkomandi maki eða sambúðaraðili.

          4. Ef hinn látni lætur eftir sig barn undir 18 ára aldri, til hvers barns:

            vegna slyss utan starfs1.033.900 kr.
            vegna slyss í starfi2.470.700 kr.

            Stundi barn hins látna á aldrinum 18-25 ára nám á framhaldsskóla- eða háskólastigi í a.m.k. sex mánuði ársins er hinn tryggði andast, á það sama rétt til bóta. Rétthafar dánarbóta þessara eru viðkomandi börn. Bætur greiðast til fjárhaldsmanns ófjárráða barns.

          5. Með börnum í 2. og 4. tölul. er átt við kynbörn, kjörbörn, stjúpbörn, börn sambúðaraðila og fósturbörn, sem hinn látni var framfærsluskyldur við, sbr. 53. gr. barnalaga, nr. 76/2003.

          6. Bætur greiðast aðeins samkvæmt einum af töluliðum 1, 2 eða 3. Til viðbótar við bætur skv. 2. og 3. tölul. geta komið bætur skv. 4. tölul.

        • 7.1.3

          Tryggingarfjárhæðir vegna varanlegrar örorku eru:

          vegna slyss utan starfs8.328.400 kr.
          vegna slyss í starfi21.972.700 kr.

          Bætur greiðast í hlutfalli við tryggingarfjárhæðirnar, þó þannig að hvert örorkustig frá 26-50% vegur tvöfalt og hvert örorkustig frá 51-100% vegur þrefalt.

        • 7.1.4

          Framangreindar tryggingarfjárhæðir miðast við vísitölu neysluverðs í apríl 2023, 588,3 stig. Við uppgjör bóta skal framreikna fjárhæðir sem giltu í september 2004 miðað við þær breytingar sem hafa orðið á vísitölu neysluverðs frá september 2004, 235,6 stig, til uppgjörsmánaðar bóta. Vísitölubinding bóta takmarkast við 3 ár frá slysadegi.

        • 7.1.5

          Verði vinnuveitandi skaðabótaskyldur gagnvart vátryggða, skulu slysabætur samkvæmt slysatryggingum þessum koma að fullu til frádráttar skaðabótum er honum kann að verða gert að greiða.

        • 7.1.6

          Verði starfsmaður fyrir líkams- eða munatjóni í starfi sínu við að sinna einstaklingi sem að takmörkuðu eða engu leyti getur borið ábyrgð á gerðum sínum, eða sinna einstaklingi sem dæmdur hefur verið til fangelsisvistar eða vistaður í fangelsi eða á stofnun af öðrum orsökum skal honum bætt það tjón sem hann verður fyrir vegna starfs síns.

          Við mat og uppgjör kröfunnar gilda almennar reglur skaðabótaréttarins. Embætti ríkislögmanns fjallar um bótakröfu samkvæmt grein þessari og annast uppgjör bóta í umboði fjármálaráðuneytisins

          7.2 Farangurstrygging

        • 7.2.1

          Farangur starfsmanna á ferðalögum á vegum vinnuveitanda skal tryggður samkvæmt reglum um farangurstryggingar, nr. 281/1988.

          7.3 Persónulegir munir

        • 7.3.1

          Verði starfsmaður sannanlega fyrir tjóni á algengum nauðsynlegum fatnaði og munum við vinnu, svo sem úrum, gleraugum o.s.frv., skal það bætt samkvæmt mati. Náist ekki samkomulag, skal farið samkvæmt mati eins fulltrúa frá hvorum aðila.

          Slík tjón verða einungis bætt ef þau verða vegna óhappa á vinnustað. Ekki skal bæta tjón ef það verður sannanlega vegna gáleysis eða hirðuleysis starfsmanns.

        8. Verkfæri og vinnuföt

          8.1 Verkfæri

        • 8.1.1

          Starfsmenn eru eigi skyldugir að leggja sér til verkfæri nema svo sé sérstaklega um samið.

          8.2 Einkennis- og hlífðarföt

        • 8.2.1

          Þar sem krafist er einkennisfatnaðar eða sérstök hlífðarföt eru nauðsynleg, t.d. vinnusloppar, skal starfsmönnum séð fyrir slíkum fatnaði, þeim að kostnaðarlausu. Sama gildir um hlífðarföt vegna óþrifalegra starfa og starfa sem hafa óvenjulegt fataslit í för með sér.

        • 8.2.2

          Starfsmönnum skal lagður til þeim að kostnaðarlausu sá hlífðarútbúnaður sem krafist er skv. öryggisreglum, (svo sem öryggisskó, eyrnaskjól, gasgrímur og öryggishjálma), enda er starfsmönnum skylt að nota hann.

        • 8.2.3

          Hreinsun á fatnaði skv. gr. 8.2.1 og 8.2.2 skal látin í té starfsmanni að kostnaðarlausu tvisvar á ári. Meiriháttar viðgerðir og tjón á slíkum fatnaði skal bætt af vinnuveitandans hálfu. Starfsmenn skulu fara vel og samviskusamlega með vinnufatnað og hlífðarföt.

        • 8.2.4

          Ef starfsmaður lætur af starfi, skal hann skila seinasta einkennisfatnaði er hann fékk.

        • 8.2.5

          Samið skal við Sameyki nánar um þessi atriði, svo sem að hvaða marki skuli taka tillit til sérstaklega mikilla óhreininda við störf.

          8.3 Fatapeningar

        • 8.3.1

          Á heilbrigðisstofnunum þar sem þess er krafist, vegna sérstakra meðferðarúrræða, að starfsmaður noti eigin fatnað í stað vinnuslopps eða álíka hlífðarfatnaðar skv. gr. 8.2, er vinnuveitanda í stað þess heimilt að greiða starfsmanni sérstaka fatapeninga að upphæð 3.800 kr. á mánuði miðað við fullt starf í dagvinnu.

          Greiðsla þessi skal breytast á þriggja mánaða fresti í samræmi við breytingu fataliðar í vísitölu neysluverðs (031 Föt) með vísitölu marsmánaðar 2024 sem grunnvísitölu (178,2 stig miðað við undirvísitölur frá 2008).

        9. Afleysingar

          9.1 Staðgenglar

        • 9.1.1

          Aðilar eru um það sammála, að eigi þurfi að jafnaði að fela starfsmanni sérstaklega að gegna starfi yfirmanns nema fjarvera yfirmannsins vari lengur en 7 vinnudaga samfellt.

          9.2 Launað staðgengilsstarf

        • 9.2.1

          Sé aðalstarf starfsmannsins launað sem staðgengilsstarf yfirmanns, ber starfsmanni laun skv. flokki yfirmanns, gegni hann starfi hans lengur en 4 vikur samfellt eða hann hafi gegnt starfi yfirmanns lengur en 6 vikur á hverjum 12 mánuðum. Laun skv. flokki yfirmanns greiðast einungis frá lokum nefndra 4 eða 6 vikna.

          9.3 Aðrir staðgenglar

        • 9.3.1

          Starfsmaður sem ekki er í stöðu staðgengils yfirmanns, en er falið að gegna störfum yfirmanns í forföllum hans eða störfum annars hærra launaðs starfsmanns, skal taka laun skv. launaflokki hins forfallaða starfsmanns þann tíma, er hann gegnir starfi hans.

        10. Fræðslumál

          10.1 Nám á grundvelli endurmenntunar-/starfsþróunaráætlunar

        • 10.1.1

          Í þeim námskerfum sem samningsaðilar standa að, á starfsmaður sem unnið hefur a.m.k. fjóra mánuði hjá sömu stofnun, rétt á leyfi til að stunda þær námsleiðir sem þar er boðið upp á.

          Starfsmaður sem unnið hefur fjögur ár hjá sömu stofnun ávinnur sér einnar viku leyfi á hverju ári til að stunda aðra endurmenntun en um getur í 1. mgr. þessarar greinar, sem fellur að starfsþróunaráætlun stofnunar og/eða starfsmanns, þannig að eftir fyrstu fjögur árin í starfi á starfsmaður uppsafnaðar fjórar vikur í námsleyfi. Þó getur uppsafnaður réttur aldrei orðið meiri en 6 mánuðir og greiðist ekki út við starfslok.

          Starfsmaður sem unnið hefur fjögur ár hjá sömu stofnun og starfs síns vegna sækir sér menntun á hæfnisþrepi 5 (bakkalárpróf) eða ofar samkvæmt hinu íslenska hæfnisþrepakerfi, á grundvelli starfsþróunaráætlunar stofnunar og/eða starfsmanns, ávinnur sér tveggja vikna leyfi á hverju ári. Þó getur uppsafnaður réttur aldrei orðið meiri en 6 mánuðir og greiðist ekki út við starfslok.

          Í stofnun sem ekki hefur sett sér starfsþróunaráætlun á starfsmaður sama rétt til leyfis vegna náms og um getur í 2. og 3. mgr. þessarar greinar, enda sé um nám að ræða sem tengist starfi viðkomandi.

          Heimilt er að veita skemmri eða lengri námsleyfi á skemmra eða lengra árabili.

        • 10.1.2

          Launagreiðslur í námsleyfi
          Í leyfinu skal starfsmaður halda reglubundnum launum sbr. skilgreiningu í gr. 12.2.6.
          Heimilt er að greiða ferða- og dvalarkostnað samkvæmt 5. kafla.

        • 10.1.3

          Stofnun er heimilt að takmarka þann fjölda sem nýtir sér þennan rétt við 10% á ári, annað hvort miðað við fjölda vikna eða fjölda starfsmanna sem nýtir sér leyfið, ef aðsókn verður það mikil að það valdi erfiðleikum í rekstri stofnunar.

          10.2 Launalaust leyfi

        • 10.2.1

          Starfsmaður skal eiga rétt á launalausu leyfi ef honum býðst tækifæri og/eða styrkur til að vinna að tilteknu verkefni, m.a. tengdu starfi hans. Slíkt leyfi skal tekið í samráði við yfirmann stofnunar.

          10.3 Fræðslusjóðir

        • 10.3.1

          Vinnuveitandi greiðir mánaðarlega framlag er nemi 0,82% af heildarlaunum félaga í Sameyki og skiptist sem hér segir:

          10.3.1.1Vinnuveitandi greiðir sérstakt gjald í starfsmenntunarsjóð. Gjald þetta skal nema 0,32% af heildarlaunum félaga í Sameyki.
          10.3.1.2Vinnuveitandi greiðir sérstakt gjald í Þróunar- og símenntunarsjóð. Gjald þetta skal nema 0,50% af heildarlaunum félaga í Sameyki

          10.4 Fræðslusetrið Starfsmennt.

        • 10.4.1

          Launagreiðandi greiðir mánaðarlegt framlag er nemur 0,25% af heildarlaunum félagsmanna Sameykis.

        11. Stofnanasamningar og samstarfsnefndir

          11.1 Skilgreining

        • 11.1.1

          Stofnanasamningur er hluti af kjarasamningi og er meðal annars ætlað að stuðla að skilvirkara launakerfi sem tekur mið af þörfum og verkefnum stofnunar og starfsmanna hennar. Hann er sérstakur samningur milli stofnunar og stéttarfélags um aðlögun tiltekinna þátta kjarasamningsins að þörfum stofnunar og starfsmanna með hliðsjón af eðli starfsemi, skipulagi og/eða öðru því sem gefur stofnun sérstöðu. Samstarfsnefndir eða nefndir samkvæmt gr. 11.4.1 annast gerð og breytingar stofnanasamninga.

          11.2 Markmið

        • 11.2.1

          Aðilar kjarasamningsins eru sammála um að markmið þeirra, með að færa í hendur stofnunar og stéttarfélags/starfsmanna hennar útfærslu tiltekinna þátta kjarasamningsins, er að styrkja starfsemi viðkomandi stofnunar þegar til lengri tíma er litið og skapa þannig forsendur fyrir betri starfsskilyrðum starfsmanna.

          Einnig að færa ákvörðun um launasetningu starfa nær starfsvettvangi þar sem hægt er að bregðast hraðar við breytingum sem eiga sér stað á störfum og skipulagi stofnana.

        • 11.2.2

          Markmið stofnanasamnings er að efla samstarf starfsmanna og stjórnenda á vinnustað til þess að auka gæði opinberrar þjónustu. Einnig að gefa starfsmönnum tækifæri til að þróast og bæta sig í starfi og þar með að auka möguleika á bættum kjörum.

          Samstarfinu er ætlað að bæta rekstrarskipulag stofnunar, bæta nýtingu rekstrarfjármagns og skapa grundvöll fyrir aukinni hagræðingu og skilvirkara launakerfi.

          11.3 Gerð stofnanasamnings

        • 11.3.1

          Við gerð stofnanasamnings skal semja um röðun starfa í launaflokka skv. 11.3.2.1 og þar skulu fyrst og fremst metin þau verkefni og sú ábyrgð sem í starfinu felst auk þeirrar færni (kunnáttustig/sérhæfing) sem þarf til að geta innt starfið af hendi.

          Starfslýsing er ein af forsendum röðunar starfa í launaflokka og skal hún endurskoðuð í takt við þróun viðkomandi starfs og skal þá jafnframt endurmeta röðun starfsins.

          Meta skal persónu- og tímabundna þætti til röðunar í álagsþrep. Slíkt álag skal háð endurmati. Tímabundnir þættir geta verið breytilegir frá einum tíma til annars. Forsendur álagsþátta skulu endurskoðaðar við breytingar á starfssviði starfsmanns eða eftir nánari útfærslu í stofnanasamningi.

          Sinni félagsmaður Sameykis starfi sem jafnframt er samið um í stofnanasamningi annars stéttarfélags við sömu stofnun skal stofnun leitast við að gæta jafnræðis hvað varðar röðunarviðmið og launasetningu fyrir starfið

        • 11.3.2

          Við ákvörðun á röðun starfa verði almennt byggt á því að um sé að ræða þrjá þætti sem mynda samsetningu launa hjá hverjum og einum. Þættirnir eru:

          11.3.2.1Röðun starfs. Röðun miðist við að um viðvarandi/stöðugt verksvið sé að ræða og skulu skilgreiningar starfaflokkunar Hagstofunnar (nú ÍSTARF95, 2. útgáfa) hafðar til hliðsjónar. Þar skulu fyrst og fremst metin þau verkefni og ábyrgð (svo sem stjórnun) sem í starfinu felast auk þeirrar færni (menntun/kunnáttustig/sérhæfing) sem þarf til að geta innt starfið af hendi. Þá skal litið til þess hvar tiltekið starf er staðsett innan skipurits stofnunar eða annars formlegs starfsskipulags.
          11.3.2.2

          Persónubundnir þættir. Laun fyrir persónubundna þætti eru varanleg enda umbun fyrir t.d. kunnáttu eða reynslu viðkomandi starfsmanns. Dæmi um persónubundna þætti:

          Sérstök þekking eða færni sem nýtist í starfi, þar með talin sérstök fagreynsla sem gerir starfsmann verðmætari í starfi.

          Markaðsálag eða eftirspurnarálag.

          Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði eða góður árangur í starfi.

          Aukin hæfni starfsmanns, t.d. formleg menntun eða framtak starfsmanns við að afla sér símenntunar og þekkingar sem að gagni kemur í starfi, t.d. með starfstengdum námskeiðum. Sérstaklega skal meta formlegt nám sem lokið er með viðurkenndri prófgráðu.

          Starfsaldur hjá stofnun (umbun fyrir tryggð við stofnun) eða sambærilegum stofnunum (umbun fyrir yfirfærslu þekkingar eða vinnubragða).

          11.3.2.3

          Tímabundnir þættir eru t.d. frammistaða eða álag vegna tímabundinna viðbótarverkefna. Dæmi um tímabundna þætti:
          Frammistaða umfram kröfur og/eða væntingar byggðar á fyrirfram skilgreindum mælanlegum viðmiðum.

          Tímabundin aukin ábyrgð.

          Innleiðing verkefna.

          Þróun og nýsköpun.

          Sérstakt álag og erfiðleikastig.

          Vinnutímasveigjanleiki og liðlegheit.

          Öflun nýrra verkefna og hugmynda.

          11.3.2.4

          Þættir skv. 11.3.2.3 eru eingöngu metnir til röðunar í álagsþrep. Tímabundnir þættir eru oftast einstaklingsbundnir en geta þó einnig tengst hópum og jafnvel árangri hópa.

          Ofangreindir þættir geta verið breytilegir frá einum tíma til annars og álag á laun því breytilegt. Ofangreinda þætti skal endurskoða við breytingar á starfssviði starfsmanns eða eftir nánari útfærslu í stofnanasamningi.

          11.4 Skipan og hlutverk samstarfsnefnda

        • 11.4.1

          Hjá þeim stofnunum ríkisins sem fara með framkvæmd kjarasamninga í umboði fjármálaráðherra, skal komið á sjálfstæðum samstarfsnefndum, sem skipaðar eru allt að 3 fulltrúum frá hvorum aðila, þ.e. stéttarfélagi/starfsmönnum og stofnun og 3 til vara. Að öllu jöfnu skal trúnaðarmaður á vinnustað vera í forsvari í nefndinni af hálfu Sameykis. Forstöðumaður tilnefnir fulltrúa stofnunar.

          Samstarfsnefnd hafi m.a. það hlutverk að fjalla um forsendur starfaflokkunar, röðun einstakra starfa í launaflokka og koma á sáttum í ágreiningsmálum sem rísa kunna út af samningi þessum. Eins skal nefndin fjalla um röðun starfa skv. 25. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna.

        • 11.4.2

          Hjá þeim stofnunum sem ekki fara með framkvæmd kjarasamninga skulu samningsaðilar með sama hætti tilnefna allt að 3 fulltrúa í samstarfsnefnd og 3 til vara. Fjársýsla ríkisins annast, samkvæmt framsali, þátt fjármálaráðherra fyrir þær stofnanir sem ekki fara með framkvæmd kjarasamninga.

          11.5 Starfshættir samstarfsnefnda

        • 11.5.1

          Vegna gerðar/endurskoðunar stofnanasamnings.

          Fulltrúar í samstarfsnefnd geta óskað eftir endurskoðun stofnanasamnings telji þeir að umtalsverðar breytingar hafi orðið á forsendum hans. Sem dæmi um breytingar á forsendum má nefna breytingar í miðlægum kjarasamningi og breytingar á umfangi, hlutverki eða starfsemi stofnunar. Hvor aðili um sig getur kallað nefndina til starfa.

          Koma skal á samstarfsnefndarfundi svo fljótt sem auðið verður en þó ekki síðar en fjórum vikum eftir að erindið berst.

          Skal þá metið hvort forsendur hafi breyst þannig að ástæða sé til að gera breytingar á samningnum.

          Verði aðilar sammála um breytingar skal fella þær inn í gildandi stofnanasamning og staðfesta hann þannig breyttan. Að jafnaði skal stofnanasamningur endurskoðaður á tveggja ára fresti.

        • 11.5.2

          Hvor aðili um sig getur skotið ágreiningsefnum til nefndarinnar og kallað hana til starfa. Beina skal erindi til gagnaðila með skriflegum hætti. Gagnaðili skal koma á samstarfsnefndarfundi svo fljótt sem auðið verður en þó ekki síðar en fjórum vikum eftir að erindið berst. Samstarfsnefnd skal svara erindum innan 5 vikna frá því að þau voru fyrst borin formlega fram á fundi nefndarinnar. Verði samstarfsnefnd sammála um breytingar á röðun eða öðru því sem til hennar hefur verið vísað, skal sú breyting gilda frá og með næstu mánaðamótum eftir að erindið var fyrst formlega borið fram í nefndinni nema annað sé sérstaklega ákveðið.

        12. Réttur starfsmanna vegna veikinda og slysa

          12.1 Tilkynningar, vottorð og útlagður kostnaður

        • 12.1.1

          Ef starfsmaður verður óvinnufær vegna veikinda eða slyss, skal hann þegar tilkynna það yfirmanni sínum sem ákveður hvort læknisvottorðs skuli krafist og hvort það skuli vera frá trúnaðarlækni hlutaðeigandi stofnunar. Krefjast má læknisvottorðs af starfsmanni vegna óvinnufærni hvenær sem forstöðumanni /yfirmanni stofnunar þykir þörf á.

        • 12.1.2

          Ef starfsmaður kemur ekki til starfa vegna veikinda eða slyss í meira en 5 vinnudaga samfleytt, skal hann sanna óvinnufærni sína með læknisvottorði. Ef um er að ræða endurteknar fjarvistir starfsmanns, skal hann sanna óvinnufærni sína með læknisvottorði eftir nánari ákvörðun forstöðumanns/yfirmanns.

        • 12.1.3

          Ef starfsmaður er óvinnufær vegna veikinda eða slyss um langan tíma, skal hann endurnýja læknisvottorð sitt eftir nánari ákvörðun forstöðumanns/yfirmanns en þó ekki sjaldnar en mánaðarlega. Frá þessu má þó veita undanþágu eftir tillögu trúnaðarlæknis ef hann telur auðsætt að um lengri veikindafjarvist verði að ræða.

        • 12.1.4

          Skylt er starfsmanni sem er óvinnufær vegna veikinda eða slyss að gangast undir hverja þá venjulega og viðurkennda læknisrannsókn sem trúnaðarlæknir kann að telja nauðsynlega til þess að skorið verði úr því hvort forföll séu lögmæt, enda sé kostnaður vegna viðtals við lækni og nauðsynlegra læknisrannsókna greidd af vinnuveitanda.

        • 12.1.5

          Endurgreiða skal starfsmanni gjald vegna læknisvottorða sem krafist er skv. gr. 12.1.1-12.1.4. Sama gildir um viðtal hjá lækni vegna öflunar vottorðs.

        • 12.1.6

          Vinnuveitandi greiði starfsmanni þau útgjöld sem starfsmaður hefur orðið fyrir af völdum slyss á vinnustað og slysatryggingar almannatrygginga bæta ekki skv. lögum nr. 45/2015.

          12.2 Réttur til launa vegna veikinda og slysa

        • 12.2.1

          Starfsmaður sem ráðinn er til starfa á mánaðarlaunum skv. gr. 1.1.1 í kjarasamningi í a.m.k. 2 mánuði, skal halda launum skv. gr. 12.2.6 - 12.2.7 svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir:

          Starfstími Fjöldi daga
          0–3 mánuði í starfi 14 dagar
          Næstu 3 mánuði í starfi 35 dagar
          Eftir 6 mánuði í starfi 119 dagar
          Eftir 1 ár í starfi 133 dagar
          Eftir 7 ár í starfi 175 dagar

          Við framantalinn rétt bætist auk þess réttur til mánaðarlauna skv. gr. 1.1.1 í kjarasamningi í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Við þessi laun bætast ekki greiðslur skv. gr. 12.2.6-12.2.7.

          Starfstími Fjöldi daga
          Eftir 12 ár í starfi 273 dagar
          Eftir 18 ár í starfi 360 dagar

          Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

        • 12.2.2

          Starfsmaður sem ráðinn er í tímavinnu, sbr. þó gr. 12.2.3, eða er ráðinn skemur en 2 mánuði, skal halda launum skv. gr. 12.2.6 til 12.2.7 svo lengi sem veikindadagar hans, taldir í almanaksdögum, verða ekki fleiri á hverjum 12 mánuðum en hér segir:

          Starfstími Fjöldi daga
          Á 1. mánuði í starfi 2 dagar
          Á 2. mánuði í starfi 4 dagar
          Á 3. mánuði í starfi 6 dagar
          Eftir 3 mánuði í starfi 14 dagar
          Eftir 6 mánuði í starfi 30 dagar

          Við framantalinn rétt bætist auk þess réttur til dagvinnulauna í 13 vikur eða 91 dag ef óvinnufærni stafar af vinnuslysi eða atvinnusjúkdómi. Við þessi laun bætast ekki greiðslur skv. gr. 12.2.6-12.2.7.

          Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

        • 12.2.3

          Réttur eftirlaunaþega í tímavinnu, eða annars konar vinnu, til launa vegna óvinnufærni af völdum veikinda eða slysa skal vera 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Laun í veikindum skal miða við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3 mánuði fyrir veikindi.
          Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

        • 12.2.4

          Starfsmaður sem skilar vinnuskyldu sinni óreglubundið eða með öðrum hætti en dagvinnumaður í reglubundinni vinnu, skal teljast hafa verið fjarverandi í eina viku þegar hann hefur verið óvinnufær vegna veikinda eða slysa sem nemur vikulegri vinnuskyldu hans og hlutfallslega þegar um styttri eða lengri fjarvist vegna óvinnufærni er að ræða.

        • 12.2.5

          Við mat á ávinnslurétti starfsmanns skv. gr. 12.2.1 skal auk þjónustualdurs hjá viðkomandi launagreiðanda einnig telja þjónustualdur hjá stofnunum ríkis, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum sem kostaðar eru að meirihluta til af almannafé.

          Á fyrstu 3 mánuðum samfelldrar ráðningar skal þó fyrri þjónustualdur samkvæmt þessari grein ekki metinn nema að viðkomandi starfsmaður hafi samfelldan þjónustualdur hjá framangreindum launagreiðendum í 12 mánuði eða meira.

        • 12.2.6

          Í fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns greiðast auk mánaðarlauna skv. gr. 1.1.1 í kjarasamningi, fastar greiðslur svo sem fyrir yfirvinnu, vaktahvata, vakta-, gæsluvakta- og óþægindaálag og greiðslur fyrir eyður í vinnutíma enda sé um að ræða fyrirfram ákveðinn vinnutíma samkvæmt reglubundnum vöktum eða reglubundinni vinnu starfsmanns sem staðið hefur í 12 almanaksmánuði eða lengur eða er ætlað að standa a.m.k. svo lengi. Í veikindum kennara skal greiða samkvæmt þeirri stundaskrá sem í gildi er eða síðast gilti miðað við upphaf veikinda hans.

        • 12.2.7

          Eftir fyrstu viku veikinda- og slysaforfalla eða þann tíma sem svarar til einnar viku vinnuskyldu starfsmanns, skal hann auk launa sem greidd verða skv. gr. 12.2.6, fá greitt meðaltal þeirra yfirvinnustunda og breytingargjalda skv. gr. 2.6.2 sem hann fékk greiddar síðustu 12 mánaðarleg uppgjörstímabil yfirvinnu eða síðustu 12 heilu almanaksmánuðina. Við útreikning yfirvinnustunda samkvæmt þessari grein skal ekki telja með þær yfirvinnustundir sem greiddar hafa verið skv. gr. 12.2.6.

          Starfsmaður skóla og annarra stofnana þar sem venjuleg starfsemi liggur niðri hluta ársins, skal í stað reglu þessarar aðeins fá greidda aðra yfirvinnu en greinir í gr. 12.2.6 þá mánuði sem venjuleg starfsemi fer fram og skal yfirvinnustundafjöldinn ákveðinn með því að finna mánaðarlegt meðaltal þeirra tilfallandi yfirvinnustunda sem hann fékk greiddar síðustu 9 heilu starfsmánuði stofnunarinnar eða samsvarandi tímalengd ef starfsmánuðir eru færri eða fleiri.

        • 12.2.8

          Ef starfsmaður er fjarverandi vegna orlofs á viðmiðunartímabili skv. gr. 12.2.7, skal telja að hann hafi sama meðaltal yfirvinnu orlofsdagana og hinn hluta tímabilsins.

        • 12.2.9

          Verði starfsmaður óvinnufær af völdum slyss á vinnustað eða á eðlilegri leið til eða frá vinnu, greiðast laun skv. gr. 12.2.7 frá upphafi fjarvistanna.

        • 12.2.10

          Ef starfsmaður að læknisráði og með leyfi forstöðumanns vinnur skert starf vegna slyss eða veikinda, skal miða greiðslu veikindalauna fyrir dagvinnu við það starfshlutfall sem vantar á að hann sinni fullu starfi.

          12.3 Starfshæfnisvottorð

        • 12.3.1

          Starfsmaður sem verið hefur óvinnufær vegna veikinda eða slysa samfellt í 1 mánuð eða lengur, má ekki hefja starf að nýju nema læknir votti að heilsa hans leyfi. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeigandi stofnunar.

          12.4 Lausn frá störfum vegna endurtekinnar eða langvarandi óvinnufærni vegna veikinda eða slysa

        • 12.4.1

          Ef starfsmaður er óvinnufær vegna veikinda eða slysa svo mánuðum skiptir á hverju ári um fimm ára tímabil og ekki er skýlaust vottað samkvæmt ákvæðum gr. 12.3.1 að hann hafi fengið heilsubót sem ætla megi varanlega, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.

        • 12.4.2

          Þegar starfsmaður hefur verið samfellt frá vinnu vegna veikinda eða slysa launalaust í jafnlangan tíma og þann tíma er hann átti rétt á að halda launum í fjarveru sinni skv. gr. 12.2.1, má leysa hann frá störfum vegna heilsubrests.

        • 12.4.3

          Ekki skulu framangreind ákvæði um veikinda- og slysaforföll vera því til fyrirstöðu að starfsmaður láti af störfum er hann óskar þess ef hann er samkvæmt læknisvottorði orðinn varanlega ófær um að gegna starfi vegna vanheilsu. Krefjast má vottorðs trúnaðarlæknis hlutaðeigandi stofnunar.

          12.5 Lausnarlaun og laun til maka látins starfsmanns

        • 12.5.1

          Þegar starfsmaður er leystur frá störfum skv. gr. 12.4.1-12.4.3, skal hann halda föstum launum skv. gr. 12.2.6 í 3 mánuði.

        • 12.5.2

          Sama gildir um greiðslu vegna látins starfsmanns ef hinn látni var í hjúskap, staðfestri samvist, skráðri sambúð eða sambúð sem að öðru leyti má jafna til hjúskapar í merkingu almannatryggingalaga nr. 100/2007.

        • 12.5.3

          Þegar starfsmanni er veitt lausn skv. gr. 12.4.1-12.4.3 eða hann andast, skal greiða laun hans, svo sem ella hefði verið gert, til loka lausnar- eða andlátsmánaðar áður en laun skv. gr. 12.5.1 -12.5.2 koma til álita. Þetta á þó ekki við ef launagreiðslum hefur áður lokið, t.d. vegna þess að réttur til launa í veikindum skv. gr. 12.2.1-12.2.10 var tæmdur.

          12.6 Skráning veikindadaga

        • 12.6.1

          Halda skal skrá yfir veikindadaga starfsmanns við hverja stofnun. Ef starfsmaður flyst milli starfa, skal leggja saman veikindadaga hans í báðum störfum eftir því sem við á.

          12.7 Veikindi og slysaforföll í fæðingarorlofi

        • 12.7.1

          Veikindatími starfsmanns í fæðingarorlofi telst ekki til veikindaforfalla og á starfsmaður ekki rétt til launa í veikinda- og slysatilvikum þann tíma.

          12.8 Veikindi barna yngri en 13 ára

        • 12.8.1

          Annað foreldri á rétt á að vera frá vinnu í samtals 12 vinnudaga (86,4) vinnuskyldustundir miðað við fullt starf) á hverju almanaksári vegna veikinda barna sinna undir 13 ára aldri, enda verði annarri umönnun ekki við komið. Í þessum fjarvistum skal greiða starfsmanni dagvinnulaun og vaktaálag skv. reglubundinni varðskrá/vaktskrá. Réttur þessi hefur ekki áhrif á rétt starfsmanns skv. öðrum greinum.

          12.9 Samráðsnefnd

        • 12.9.1

          Setja skal á fót samráðsnefnd. Skal hún skipuð fulltrúum samningsaðila samkomulags BHM, BSRB og KÍ annars vegar og fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar um tiltekin atriði er varða réttindi starfsmanna í framangreindum samtökum, sem undirritað var 24. október 2000, þremur tilnefndum af hvorum aðila samkomulagsins. Samráðsnefndin skal fjalla um túlkun og útfærslu einstakra ákvæða um veikindarétt skv. samkomulagi þessu.

          12.10 Ákvæði til bráðabirgða

        • 12.10.1

          Starfsmaður sem hefur fyrir 1. janúar 2001, áunnið sér fleiri veikindadaga skv. áðurgildandi reglum, skal halda þeim á meðan á samfelldri ráðningu stendur en um frekari ávinnslu fer skv. kafla þessum.

        13. Tilhögun fæðingarorlofs

          13.1 Gildissvið

        • 13.1.1

          Kafli þessi tekur til foreldris sem er í a.m.k. 25% starfi og starfað hefur í samfellt 6 mánuði fyrir fæðingu barns síns hjá hlutaðeigandi launagreiðanda og er með gilda ráðningu við upphaf orlofsins.

          13.2 Réttarstaða starfsmanna í fæðingarorlofi

        • 13.2.1

          Um uppsöfnun og vernd réttinda í fæðingarorlofi fer skv. 14. gr. laga nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, þó með þeirri viðbót sem talin er upp hér á eftir.

        • 13.2.2

          Starfsmaður sem hefur töku fæðingarorlofs, telst skv. framangreindu vera leystur undan vinnuskyldu á meðan á fæðingarorlofi hans stendur, sbr. 29. gr. framangreindra laga.

        • 13.2.3

          Starfsmaður launagreiðanda sem er í fæðingarorlofi nýtur réttinda til greiðslu sumarorlofs, persónu- og orlofsuppbótar. Starfsmaður er áfram í þeim lífeyrissjóði(um) sem hann hefur tilheyrt sem starfsmaður launagreiðanda en launagreiðandi ber ábyrgð á réttindaávinnslu starfsmanns í b-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

        • 13.2.4

          Starfsmaður sem nýtur fyrirframgreiðslu launa, skal eiga rétt til fyrirframgreiðslu frá launagreiðanda þann mánuð sem hann hefur töku fæðingarorlofs og fellur sá réttur niður þann mánuð sem hann kemur til baka úr fæðingarorlofi.

          13.3 Mæðravernd og tæknifrjóvgun

        • 13.3.1

          Barnshafandi konur eiga rétt til nauðsynlegra fjarvista frá vinnu vegna mæðraskoðunar og skulu halda rétti til greiðslu dagvinnulauna og eftir atvikum vaktaálags skv. reglubundinni vaktskrá (eins og vegna veikinda barns), þurfi slík skoðun að fara fram í vinnutíma.

        • 13.3.2

          Þeir starfsmenn sem þurfa að vera fjarverandi vegna tæknifrjóvgunar halda rétti til greiðslu dagvinnulauna og eftir atvikum vaktaálags skv. reglubundinni vaktskrá (eins og vegna veikinda barns) í allt að 15 vinnudaga. Starfsmaður skal skila vottorði frá viðkomandi lækni.

        14. Iðgjöld í Fjölskyldu- og styrktarsjóð og Starfsendurhæfingarsjóð

          14.1 Iðgjaldagreiðslur launagreiðanda í Fjölskyldu- og styrktarsjóð

        • 14.1.1

          Iðgjald launagreiðanda skal nema 0,75% af heildarlaunum þeirra starfsmanna hlutaðeigandi launagreiðanda sem falla undir samkomulag þetta. Iðgjaldið skal greitt mánaðarlega eftirá skv. útreikningi launagreiðanda.

          14.2 Iðgjaldagreiðslur launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð

        • 14.2.1

          Iðgjald launagreiðanda í Starfsendurhæfingarsjóð skal nema 0,13% af heildarlaunum félagsmanna.

        15. Lífeyrissjóður og viðbótarframlag til lífeyrissparnaðar

          15.1 Aðild að lífeyrissjóði

        • 15.1.1

          Starfsmenn sem heyra undir samning þennan skulu eiga aðild að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), ýmist A- eða B-deild eftir því sem lög og samþykktir sjóðsins segja til um.

          15.2 Iðgjaldagreiðslur

        • 15.2.1

          Sé starfsmaður í A-deild LSR skal iðgjald hans vera 4% og mótframlag launagreiðanda 11,5%, hvoru tveggja af heildarlaunum.

        • 15.2.2

          Sé starfsmaður í B-deild LSR skal um iðgjald starfsmanns, mótframlag launagreiðanda og annað fara eftir þeim lögum og samþykktum sem um sjóðinn gilda.

          15.3 Viðbótarframlög til lífeyrissparnaðar

        • 15.3.1

          Nýti starfsmaður lögbundinn rétt sinn til séreignarsparnaðar, greiðir vinnuveitandi mótframlag til jafns á móti séreignarlífeyrissparnaði starfsmanns, allt að 2%.

        16. Uppsagnarfrestur

          16.1 Uppsagnarfrestur á ótímabundnum ráðningarsamningi

        • 16.1.1

          Uppsögn á reynslutíma
          Gagnkvæmur uppsagnarfrestur á reynslutíma er einn mánuður. Reynslutími er þrír mánuðir nema annað sé ákveðið í viðkomandi ráðningarsamningi.

        • 16.1.2

          Uppsögn að loknum reynslutíma
          Gagnkvæmur uppsagnarfrestur að loknum reynslutíma er 3 mánuðir.

        • 16.1.3

          Uppsagnarfrestur eftir tíu ára samfellt starf
          Sé starfsmanni sagt upp, eftir a.m.k. 10 ára samfellt starf hjá sömu stofnun, er uppsagnarfrestur sem hér segir:

          1.4 mánuðir ef starfsmaður er orðinn 55 ára
          2.5 mánuðir ef hann er orðinn 60 ára
          3.6 mánuðir þegar hann er orðinn 63 ára

          Starfsmaður getur hins vegar sagt upp starfi sínu með þriggja mánaða fyrirvara.

          16.2 Uppsagnarfrestur tímabundið ráðinna og tímavinnumanna

        • 16.2.1

          Tímabundin ráðning fellur úr gildi án uppsagnar við lok samningstíma.

          Ef annar hvor aðila vill slíta ráðningarsambandinu fyrr, gilda eftirfarandi ákvæði:

          1. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímabundið ráðinna skal vera einn mánuður.
          2. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur tímavinnumanna á fyrstu 3 mánuðum starfstímans skal vera ein vika miðað við vikuskipti. Vikuskipti miðast við föstudag. Eftir þriggja mánaða samfellt starf skal gagnkvæmur uppsagnarfrestur vera einn mánuður.

        17. Launaseðill og félagsgjöld

          17.1 Félagsgjöld

        • 17.1.1

          Nú óskar Sameyki þess að launagreiðandi sjái um innheimtu félagsgjalda og skal félagið þá afhenda honum véltæk gögn yfir þá félagsmenn sem gjaldskyldir eru, með þeim upplýsingum sem launagreiðandi óskar. Félagsgjöld skv. þessari grein skulu tekin af kaupi félaga 1. hvers mánaðar og skilað fyrir 10. næsta mánaðar á eftir.

          Launagreiðanda er rétt að krefjast staðfestingar Sameyki á félagaskránni, svo og að fella niður af henni starfsmenn ef vafi þykir leika á hvort um aðild að félaginu sé að ræða.

        18. Félagsmálefni

          18.1 Félagsmálefni

        • 18.1.1

          Félagið fer með forsvar fyrir félagsmenn sína í þjónustu ríkisins, sem gegna störfum á samningssviði félagsins sbr. ákv. laga nr. 94/1986 og í samræmi við 2. lið yfirlýsingar fjármálaráðherra frá 3. september 1982.

        • 18.1.2

          Öll ákvæði persónulegra sérsamninga stofnana við félagsmenn Sameyki sem fela í sér skerðingu á kjörum sem starfsmönnum ber skv. lögum, reglugerðum og kjarasamningi skulu ógild.

          Óheimilt er að gera samninga sem fela í sér slíka skerðingu lögbundinna eða umsaminna réttinda.

        19. Gildistími, samningsforsendur og atkvæðagreiðsla

          19.1 Gildistími samningsins

        • 19.1.1

          Kjarasamningur þessi gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 og fellur þá úr gildi án frekari fyrirvara.

        • 19.1.2

          Aðilar eru sammála um að miða heildarútgáfu þessa við 1. nóvember 2024 þrátt fyrir að gildistaka samningsins sé frá og með 1. apríl 2024. Ástæða þess er að breytingar á kjarasamningnum, svo sem breytingar er snúa að fylgiskjölum 1 og 2 um betri vinnutíma, tóku ekki gildi fyrr en 1. nóvember 2024.

          19.2 Samningsforsendur og atkvæðagreiðsla

          Kjarasamningur þessi er gerður í kjölfar kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í mars 2024. Komi til þess að launa- og forsendunefnd ASÍ og SA ákveði launa- eða kjarabreytingar vegna forsendubrests skulu aðilar taka upp viðræður um með hvaða hætti slík breyting gildi fyrir samning þennan. Slíkar breytingar skulu skila sambærilegum kjarabreytingum og á almennum markaði enda feli þær ekki í sér breytingar á kjörum sem þegar er að finna í kjarasamningi aðila.

          Komi til þess að kjarasamningum á almennum markaði verði sagt upp á grundvelli forsenduákvæðis þeirra á gildistíma samnings þessa er hvorum aðila heimilt að segja samningi þessum upp með þriggja mánaða fyrirvara miðað við mánaðamót.

          Samningsaðilar skulu bera samning þennan upp til samþykktar, ásamt bókunum og fylgiskjölum. Hafi gagnaðila ekki borist tilkynning um niðurstöðu fyrir klukkan 16:00 þann 28. júní 2024 skoðast hann samþykktur.

Desember- og orlofsuppbætur

ÁrOrlofsuppbótDesemberuppbót

2024

58.000 kr.

106.000 kr.

2025

60.000 kr.

110.000 kr.

2026

62.000 kr.

114.000 kr.

2027

64.000 kr.

118.000 kr.

Ár
2024
Orlofsuppbót

58.000 kr.

Desemberuppbót

106.000 kr.

Ár
2025
Orlofsuppbót

60.000 kr.

Desemberuppbót

110.000 kr.

Ár
2026
Orlofsuppbót

62.000 kr.

Desemberuppbót

114.000 kr.

Ár
2027
Orlofsuppbót

64.000 kr.

Desemberuppbót

118.000 kr.

Reglur um desemberuppbót

Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar.

Tímavinnufólk skal fá greidda persónuuppbót  í desember og hefur óskert upphæð miðast við 1.504 unnar dagvinnustundir á ofangreindu tímabili.

Reglur um orlofsuppbót

Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall.  Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins.  Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé.

Akstur og dagpeningar

Fatapeningar, fæðisfé og meðaltalsverð

Fatapeningar

Á heilbrigðisstofnun þar sem þess er krafist að starfsmaður noti eigin fatnað í stað vinnuslopps eða álíka hlífðarfatnaðar skv. gr. 8.2, er vinnuveitanda í stað þess heimilt að greiða starfsmanni sérstaka fatapeninga. 3.800 kr. á mánuði* m.v. fullt starf í dagvinnu.

*Greiðslan breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við fatalið vísitölu neysluverðs (031 Föt). Grunnvísitala er mars 2024, 178,2 stig (miðað við undirvísitölur frá 2008).

Fæðispeningar

Starfsmenn sem hafa ekki aðgang að matstofu

Fæðispeningar eru 638 kr. Starfsmenn sem eiga að hafa aðgang að matstofu en hafa það ekki fá greidda fæðispeninga. Upphæðin breytist á þriggja mánaða fresti í samræmi við matar- og drykkjarvörulið vísitölu neysluverðs.

Fæðispeningar

Vaktavinnufólk

Fæðispeningar eru 638 kr. Vaktavinnufólk fær fæðispeninga ef matstofa er lokuð og vinnuskylda er að minnsta kosti 1 klst. fyrir og eftir kvöldmat (kl. 19–20), matartíma um nætur (kl. 03–04) eða á frídögum (kl. 11:30–13:30).

Meðaltalsverð

Meðaltalsverð í mötuneyti Stjórnarráðsins var 795 kr. 1. ágúst 2018.

Orlofsréttur

Orlofsárið er frá 1. maí–30. apríl og á því tímabili ávinna starfsmenn sér orlof.

Orlofsréttur er 30 dagar miðað við fullt starf. Ávinnsla orlofs skal vera hlutfallsleg miðað við starfshlutfall og starfstíma starfsmanns. (240 stundir miðað við 40 stunda vinnuviku).

Starfsmenn eiga ávallt rétt á fullu orlofi. Réttur starfsmanna til launa í orlofi miðast hins vegar við starfstíma og starfshlutfall.

Sumarorlofstímabil

1․ maí til 15. september

Sumarorlof er á tímabilinu 1. maí til 15. september. Starfsmenn eiga rétt á að taka út að minnsta kosti 120 vinnustundir. (15 daga) á sumarorlofstímabili.

Ef orlofið er tekið eftir að sumarorlofstímabili lýkur skal sá hluti orlofsins lengjast um 25% sé það að ósk yfirmanns, fá það skriflegt. Ath. þetta á aðeins við um það orlof sem eftirstendur þegar sumarorlofstímabili lýkur en á ekki við þegar starfsmenn taka út orlof fyrirfram fyrir orlofstíma.

Útreikningur orlofsstunda að vetri

Ef ósk yfirmanns er um að starfsmaður taki orlof eftir að sumarorlofstímabili lýkur skal sá hluti orlofsins lengjast um 25%.

Einnig má hugsa þetta þannig að í staðinn fyrir að fjölga (eða fækka) orlofsstundum eftir árstímum, þá drögum við mismikið frá áunnum orlofstímum eftir því hvenær fríið er tekið. Áunnar orlofsstundir mynda því nokkurs konar höfuðstól.

  • Á sumrin kostar 1 klukkustund í fríi 1 orlofstíma.
  • Á veturna kostar 1 klukkustund í fríi 0,8 orlofstíma.

Ákvörðun orlofs

Yfirmanni er skylt að koma til móts við óskir starfsmanna um orlofstíma verði því við komið vegna starfa stofnunarinnar og ákveður í samráði við starfsmenn hvenær orlof skuli veitt.

Yfirmanni ber að kanna óskir starfsmanna um orlofstöku, að veita orlof á sumarorlofstíma sé þess óskað af hálfu starfsmanna og tilkynna um tímasetningu orlofs eins fljótt og auðið er og í síðasta lagi mánuði áður en orlofstaka hefst.

Orlofsfé

Starfsmenn ávinna sér orlofslaun (orlofsfé) af yfirvinnu og álagsgreiðslum. Orlofsféð er:
13,04% af yfirvinnu og álagsgreiðslum hjá starfsmönnum. Orlofsfé er lagt í banka og er laust til útborgunar eftir 10. maí ár hvert.

Veikindi í orlofi

Starfsmönnum ber að tilkynna yfirmönnum án tafar um veikindi í orlofi og ávallt skal framvísa læknisvottorði veikist starfsmaður í orlofi.

Starfsmaður kallaður til vinnu í orlofi

Ef starfsmaður er kallaður til vinnu í orlofi er valkvætt að:

  • Greiða starfsmanni yfirvinnu fyrir þá vinnu sem unnin á orlofstímanum en þá lengist orlof starfsmanns ekki.
    eða
  • Starfsmaður fær hefðbundin laun fyrir fyrir vinnu sína á orlofstímanum og orlofið lengist sem unnum tíma í orlofi nemur.

Þar sem báðar leiðir eru færar er best fyrir starfsmann að ganga frá því fyrirfram hvernig vinna á orlofstíma er gerð upp.

Veikindaréttur

Veikindaréttur ræðst af þjónustualdri hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjáfseignarstofnunum kostuðum af almennafé. Veikindaréttur starfsmanna sem vinna hjá ríki, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum færist á milli stéttarfélaga.

Á fyrstu þremur mánuðum ráðningar er fyrri þjónustualdur hjá ríkinu, sveitarfélögum og sjálfseignarstofnunum ekki metinn nema viðkomandi starfsmaður hafi unnið samfellt hjá fyrri vinnuveitenda í 12 mánuði eða meira.

Við mat á veikindarétti eru skoðaðir síðustu 12 mánuðir.

Allir dagar eru taldir í veikindum líka laugardagar og sunnudagar.

Réttur til launa vegna veikinda og slysa

Gildir um fast- og lausráðna í minnst tvo mánuði

StarfstímiVeikindarétturRéttur v. slys/atvinnusj.
0–3 mánuði í starfi14 dagar+91 dagur
Næstu 3 mánuði35 dagar+91 dagur
Eftir 6 mánuði119 dagar+91 dagur
Eftir 1 ár133 dagar+91 dagur
Eftir 7 ár175 dagar+91 dagur
Eftir 12 ár273 dagar 
Eftir 18 ár360 dagar 

Í fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastar greiðslur (þ.m.t. fasta yfirvinnu og vaktaálag). Eftir það greiðist meðaltal breytilegrar yfirvinnu síðustu 12 mánaða.

Laun greiðast þó ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

Hlutaveikindi

Um útreikning hlutaveikinda

Ekki er tekið fram í kjarasamningum hvernig skuli telja veikindadagana þegar heimildin um hlutaveikindi er nýtt en framkvæmdin hefur verið með þeim hætti að aðskilja talninguna líkt og um tvo starfsmenn væri að ræða sem gegna hvor sínu hlutastarfinu, annar er veikur en hinn frískur.

Vottorð

Læknisvottorð skal leggja fram ef þess er krafist og ef veikindi vara lengur en 5 daga. Vinnuveitandi endurgreiðir kostnað vegna læknisvottorðs og viðtals við öflunar þess.

Eftir 1 mánaðar veikindi þarf starfshæfisvottorð áður en störf hefjast að nýju.

Veikindi barna

Foreldri má vera heima hjá veiku barni (yngra en 13 ára) í allt að 12 daga á ári. Réttur foreldris miðast við almanaksár.

Orlof og veikindi

Starfsmaður í veikindum eða hlutaveikindum telst annaðhvort í fullu orlofi eða fullum veikindum (og fer þá ekki í orlof).

Langvarandi veikindi

Starfsmaður á rétt á launalausu leyfi jafn lengi og veikindaréttur hans er. Að honum loknum má sækja um sjúkradagpeninga hjá Styrktarsjóði Sameykis (80% af meðaltalslaunum).

StarfstímiRéttur til sjúkradagpeninga hjá Styrktarsjóði
6–12 mánuðir45 dagar
yfir 1 ár90 dagar
yfir 18 ár45 dagar (ef viðkomandi á ekki rétt annars staðar)

Sjúkradagpeningar greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

Lausnarlaun

Starfsmaður á rétt á að halda starfi sínu launalaust jafn lengi og veikindaréttur hans er, að þeim tíma liðnum getur vinnuveitandi gert kröfu um starfslok. Ef ljóst er að starfsmaðurinn kemur ekki til með að vera meira úti á vinnumarkaði er hægt að fara fram á lausnarlaun. Lausnarlaun eru starfslokalaun í þrjá mánuði (ATH þetta á aðeins við þegar um endanleg starfslok er að ræða).

Við andlát starfsmanns eru greidd þriggja mánaða laun til maka hafi veikindaréttur ekki verið tæmdur.

StarfstímiVeikindarétturRéttur til v.slys/atvinnusj.
Á 1. mánuði í starfi2 dagar+91 dagur
Á 2. mánuði í starfi2+91 dagur
Á 3. mánuði í starfi6+91 dagur
Eftir 3 mánuði í starfi14 dagar+91 dagur
Eftir 6 mánuði í starfi30 dagar+91 dagur

Greiðslur fylgja sömu reglum um fasta og breytilega yfirvinnu og hjá öðrum starfsmönnum. Á fyrstu viku veikinda fær starfsmaður allar fastur greiðslur en eftir fyrstu viku fær starfsmaður að auki meðaltal af breytilegri yfirvinnu síðustu 12 mánaða.

Laun eftirlaunaþega í tímavinnu skal vera 1 mánuður á hverjum 12 mánuðum. Launin miðast við meðaltal dagvinnulauna síðustu 3 mánaða.

Laun greiðast ekki lengur en ráðningu er ætlað að standa.

Valkvæðar aðgerðir

Lýtaaðgerðir, glasa- og tæknifrjóvganir eða áfengismeðferð

Fjarvistir vegna lýtaaðgerða, glasa- og tæknifrjóvgunar eða áfengismeðferðar teljast ekki veikindi samkvæmt kjarasamningum.

Starfsmaður sem er frá vinnu vegna slíkra aðgerða getur átt von á að þurfa þarf að nýta orlof eða óska eftir launalausu leyfi nema annað sé ákveðið á vinnustað.

Misjafnt er hvernig stofnanir koma til móts við starfsmenn en margar stofnanir hafa sett sér reglur varðandi þessi mál.

Yfirvinnu breytt í frí

Heimilt er með samkomulagi að safna frídögum vegna yfirvinnu á þann hátt að yfirvinnutímar komi til uppsöfnunar og frítöku á dagvinnutímabili en yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun. Samkomulag skal vera um töku frísins og það skipulagt þannig að sem minnst röskun verði á starfssemi stofnunar.

Frí samkvæmt framsögðu, vegna undanfarandi almanaksárs, sem ekki hefur verið nýtt fyrir 15. apríl ár hvert, eða við starfslok, skal greitt út á dagvinnutaxta viðkomandi starfsmanns við næstu reglulegu útborgun.

  • Starfsmaður fær þá 8 tíma frí fyrir 8 tíma yfirvinnu og yfirvinnuálagið er greitt við næstu reglulegu útborgun, og er það 44,44% af tímakaupi í yfirvinnu.
  • Ef starfsmaður tekur út einn tíma í dagvinnu á móti einum tíma í yfirvinnu, hlutfallið 1:1, þá skal atvinnurekandi undantekningarlaust greiða starfsmanni út yfirvinnuálagið!
  • Ef samkomulag er um á milli aðila má einnig veita 1,62 klst. í frí fyrir hvern yfirvinnutíma og fellur þá greiðsla yfirvinnuálags niður.

Samningar við starfsmenn sem fela í sér aðrar og minni greiðslur fyrir yfirvinnu skv. ofansögðu eru undirboð á kjarasamningi og því óheimilir

Viðauki

Launatöfluauki fyrir kjarasamningstímabilið 2024–2028

Tekinn skal upp launatöfluauki fyrir stéttarfélagið á kjarasamningstímabilinu 2024-2028. Launatöfluauka er ætlað að stuðla að því að þróun launakostnaðar starfsfólks á opinberum markaði innan vébanda hlutaðeigandi heildarsamtaka haldi að jafnaði í við þróun launa­kostnaðar sambærilegra hópa á almennum markaði en honum er ekki ætlað að tryggja þróun launakostnaðar einstakra stéttar­félaga eða starfsmanna. Samanburðarhópar á almennum markaði eru tilgreindir með bálkum íslenskrar starfaflokkunar Hagstofu Íslands (ÍSTARF) á tilgreindu tímabili. Launatöfluauki hefur ekki áhrif á umsamdar launahækkanir í kjarasamningum. Áhrif launabreytinga í tengslum við útfærslu 7. gr. samkomulags um breytingar á skipan lífeyrismála opinbers starfsfólks frá árinu 2016, hafa eftir atvikum ekki áhrif til lækkunar á launatöfluauka.

Samanburðarhópar heildarsamtaka

Bera skal saman þróun á launakostnaði þeirra heildarsamtaka ríkisstarfsfólks sem stéttarfélagið á aðild að, við þróun launakostnaðar sambærilegra stétta á almennum markaði. Samanburðarhópar heildarsamtaka eru sem hér segir:

HeildarsamtökLaunagreiðandiStétt á almennum markaði
BHMRíkiSérfræðingar (ÍSTARF bálkur 2)
RíkiSérfræðingar (ÍSTARF bálkur 2)
BSRBRíki45% tæknar og sérmenntaðir (ÍSTARF bálkur 3),
35% Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk (ÍSTARF bálkur 5), 
15% skrifstofufólk (ÍSTARF bálkur 4) og 
5% sérfræðingar (ÍSTARF bálkur 2)
ASÍRíki50% verkafólk (ÍSTARF 7,8,9 og stöðutala 0,1)
43% Þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólk (ÍSTARF bálkur 5), 
7% iðnaðarmenn (ÍSTARF 7 og stöðutala 2,3)

Viðmiðunartímabil og uppgjör launatöfluauka

Á gildistíma kjarasamningsins skal í þrjú skipti bera saman þróun á launakostnaði milli markaða þar sem upphaf tímabils í öllum mælingum er desember 2023. Þá skal horft til þróunar tímakaups reglulegra launa (launavísitölu Hagstofu Íslands) á viðmiðunartímabilinu en að undanskildum hækkunum tengdum útfærslu 7 gr. samkomulagsins. Auk þess skal horft til þróunar annars launakostnaðar sem samið er um í kjarasamningi og reiknast almennt til kostnaðar við kjarasamningsgerð s.s. hækkun iðgjalda í sjóði, breytinga á vinnufyrirkomulagi eða réttindum.

Mældur launatöfluauki miðast við útreikninga á breytingum á launavísitölu og launakostnaði sem hér segir:

ViðmiðunartímabilBreytt launatafla tæki gildi
desember 2023–20241. september 2025
desember 2023–20251. september 2026
desember 2023–20261. september 2027

Leiði niðurstöður mælinga til breytinga á launatöflu tekur breytt launatafla gildi samkvæmt ofangreindu.

Forsenda launatöfluauka

Forsenda þess að uppgjör launatöfluauka taki gildi er að fyrir liggi samþykktur kjarasamningur á ofangreindu viðmiðunartímabili og að kjarasamningsbundnar hækkanir hafi verið greiddar út á því tímabili. Þannig kemur ekki til uppgjörs launatöfluauka hafi samningar ekki náðst og komið til útgreiðslu kjarasamningsbundinna launahækkana innan viðmiðunartímabils.

Nefnd um launatöfluauka

Heildarsamtök launafólks (BHM, KÍ, BSRB og ASÍ), Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitarfélaga skulu skipa hvert um sig einn aðalfulltrúa og einn til vara en ríki tvo og tvo til vara, í nefnd sem hefur það hlutverk að skilgreina nánar hvaða forsendur verði lagðar til grundvallar mælingum á þróun launakostnaðar á milli markaða. Fulltrúi ríkisins stýrir fundum nefndarinnar en nefndarmaður getur óskað eftir aðkomu og fundarstjórn ríkissáttasemjara og skal verða við því.

Nefndin skal yfirfara og staðfesta niðurstöður útreikninga hvers tímabils vegna mögulegs launatöfluauka hvers hóps ríkisstarfsmanna út frá:

  1. Þróun launavísitölu viðkomandi hóps m.v. þróun launavísitölu samanburðarhóps á almennum markaði að undanskildum áhrifum af útfærslu 7 gr. samkomulagsins
  2. Þróun annars launakostnaðar á milli markaða sem reiknast almennt til kostnaðar við kjarasamningsgerð

Nefndin skal leita eftir samstarfi við stjórnvöld m.a. um söfnun og vinnslu upplýsinga og meta hvort tilefni sé til að endurmeta vogir samanburðarhópa eða taka til skoðunar óvæntar breytingar í launavísitölu sem rekja megi til annarra þátta en launa eða raunverulegs vinnuframlags. Auk þess sem nefndin skal setja sér nánari starfsreglur.

Reikningur launatöfluauka

Komi í ljós að mæld þróun launakostnaðar hlutaðeigandi heildarsamtaka sé lakari en hjá saman­burðar­hópnum á almennum vinnumarkaði sbr. framangreinda töflu og mismunurinn er yfir 0,5% skal launatafla skv. gr. 1.1.1 hækkuð sem nemur 80% af mældum mismun. Sé þróunin lakari á síðasta viðmiðunar­tíma­bilinu þá fellur niður skil­yrði um mismun yfir 0,5% og launa­taflan skv. gr. 1.1.1 hækkuð sem nemur 90% af mældum mis­mun þann 1.september 2027. Þessi tilhögun, að bæta aðeins tiltekið hlut­fall, er valin í ljósi þess að launa­þróun liðins tíma og launa­þróun við­komandi hóps gæti hafa breyst frá því tímabili sem mælingin tekur til. Verði þróunin aftur á móti opin­berum starfs­mönnum í hag skal ekkert aðhafst.

Ef heildarfjöldi ársverka stéttarfélaga sem eiga rétt á launatöfluauka, í samræmi við skilgreiningar hér að ofan, er undir 80% af heildarfjölda ársverka hlutaðeigandi heildar­samtaka skal vigta mismun í þróun launa­kostnaðar á milli markaða með hlutfalli þeirra ársverka stéttar­félaga sem rétt eiga á launatöfluauka með heildarfjölda ársverka hlutaðeigandi heildarsamtaka. Miða skal við ársverk á síðastliðnu almanaksári. Þessi tilhögun sem felur í sér að vigta mismuninn er gerð til að fyrirbyggja ofgreiðslu launatöfluauka sem rekja mætti til þess að hlutfall þess félagsfólks með samþykktan kjarasamning og útgreidda kjara­samnings­bundna hækkun væri lágt þannig að verulegt ofmat yrði á mismuni á þróun launa­kostnaðar á milli markaða.

Sýnidæmi um fyrir­komulag á launa­töfluauka – mat og uppgjör

 Stétt/Almennur markaðurBandalag/Opinber launagreiðandi
Vísitala launakostnaðar í desember 2023100100
Hækkun reglulegra launa (launavísitölu) skv. mati Hagstofu Íslands16,5%12,5%
Hækkun launa vegna útfærslu 7. gr. samkomulagsins -0,2%
Hækkun á launakostnaði s.s. framlag í orlofssjóð0,1%0,5%
Vísitala launakostnaðar síðasta desember mánaðar116,6112,8
Mismunur % (116,1/112,8-1) 3,37%
Launatöfluauki (80% af mismun) 2,70%

Sýnidæmi um fyrirkomulag á launatöfluauka ef 70% eiga rétt á launatöfluauka – mat og uppgjör

 Stétt/Almennur markaðurBandalag/Opinber launagreiðandi
Vísitala launakostnaðar í desember 2023100100
Hækkun reglulegra launa (launavísitölu) skv. mati Hagstofu Íslands16,5%12,5%
Hækkun launa vegna útfærslu 7. gr. samkomulagsins -0,2%
Hækkun á launakostnaði s.s. framlag í orlofssjóð0,1%0,5%
Vísitala launakostnaðar síðasta desember mánaðar116,6112,8
Mismunur % (116,1/112,8-1) 3,37%
Vigtun m.v. hlutfall samþykktra samninga og réttar til launatöfluauka (70%) 2,36%
Launatöfluauki (80% af mismun) 1,89%