Bókanir í kjarasamningum við ríkið

Bókun 8 (2020)

frá 9. mars 2020

Við sameiningu Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur var samþykkt að starfsmenn sem þá voru í ráðningarsambandi á Sjúkrahúsi Reykjavíkur fengju að halda óbreyttri stéttarfélagsaðild. Hópur háskólamenntaðra starfsmann kaus að halda áfram aðild að Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar sem nú hefur sameinast SFR – stéttarfélagi í almannaþjónustu undir heitinu Sameyki.

Samningsaðilar hafa verið sammála um að heppilegast sé að launaröðun og launaþróun háskólamenntaðra starfsmanna í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, nú Sameyki, sé með sambærilegum hætti og hjá þeim stéttarfélögum háskólamenntaðra starfsmanna sem þeir ella myndu tilheyra. Viðkomandi starfsmönnum verður því raðað til launa í viðkomandi launatöflu BHM og munu taka sömu hækkunum á samningstímanum og kveðið er á um í viðkomandi kjarasamningi.

Vegna ofangreinds eru kaflar 10 og 11 hjá háskólamenntuðum starfsmönnum Sameykis sem áður voru í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar frábrugðnir því sem kveðið er á um í kjarasamningi þessum, sbr. fylgiskjal 4.

Aðild að öllum sjóðum, s.s. fjölskyldusjóði, starfsendurhæfingarsjóði og lífeyrissjóði (Brú eða LSR B-deild), helst óbreytt. Iðgjald í orlofssjóð hækkar úr 0,25% í 0,5% sbr. grein 4.9.1 í fylgiskjali 4.