Bókanir í kjarasamningum við ríkið

Bókun 3 (2020)

frá 9. mars 2020

Stofnanir ríkisins eru þekkingarvinnustaðir og starfsemi þeirra byggir á þeim mannauði sem þær búa yfir. Tæknibreytingar munu hafa áhrif á starfsumhverfi og inntak starfa hjá ríkinu í náinni framtíð. Slíkar breytingar leiða til þess að stuðla þarf að því með markvissum hætti að starfsfólk hafi viðeigandi hæfni til að takast á við breytt verkefni. Samningsaðilar eru sammála um að fara skuli fram heildarmat á umgjörð þeirra fræðslumála sem mælt er fyrir um í kjarasamningum og hvernig þau nýtast starfsfólki, stofnunum og ríkinu í heild til sí- og endurmenntunar. Auk þess verði skoðað hvernig starfsþróunaráætlanir, framkvæmd fræðslu og námsleyfi nýtast í sama tilgangi. Samhliða verður lagt mat á hvaða áhrif aukin áhersla á stafræna þjónustu og breytingar á vinnumarkaði munu hafa á hæfniskröfur til starfsmanna ríkisins sem eiga aðild að aðildarfélögum BSRB. Jafnframt skal meta áhrif breytinganna á fjölda stöðugilda og starfsmanna. Vinna hefst í september 2020 og gert er ráð fyrir að niðurstöður matsins liggi fyrir í apríl 2021.

Þegar niðurstaða matsins liggur fyrir munu Sameyki og KMR ræða hvernig fræðslusjóðir Sameykis og eftir atvikum fleiri geta nýst til að ná framangreindum markmiðum, eftir atvikum endurmeta stefnu þeirra og leggja fram sérstaka áætlun. Jafnframt verði leitast við að starfsfólk geti þróast í starfi innan sömu stofnunar og/eða fái möguleika á að flytjast milli starfa innan ríkisins. Sérstök áhersla verður lögð á þau störf og starfsfólk í störfum sem fyrirséð er að taki verulegum breytingum eða leggist af.