Bókanir í kjarasamningum við ríkið
Aðilar að samkomulagi þessu eru tiltekin aðildarfélög BSRB², ásamt viðsemjendum hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Fræðslusetrið Starfsmennt vinnur að öflugu og fjölbreyttu námsframboði og góðri þjónustu, þar sem hagur starfsmanna og stofnana fara saman. Setrið vinnur að þessu markmiði með því að gera tillögur um fræðslu, vera umsjónaraðili og/eða framkvæmdaaðili náms og þjálfunar, veita ráðgjöf og leiðsögn, bjóða upp á greiningar og vera stefnumótandi á vettvangi góðrar þjónustu á sviði menntamála. Fræðslusetrið Starfsmennt leggur áherslu á að meta þörf fyrir fræðslu og þróa leiðir til að mæta breytilegum kröfum um þjálfun og nám, bæði meðal starfsmanna og stofnana.
Stjórn Fræðslusetursins skal skipuð þremur fulltrúum frá stéttarfélögunum og þremur fulltrúum frá atvinnurekendum nema viðsemjendur ákveði annað.³
Starfsemi setursins skal fjármögnuð með framlagi sem nemur 0,25% af heildarlaunum þeirra félagsmanna er starfa hjá þeim atvinnurekendum sem aðild eiga að setrinu.
² Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu, Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Samflot bæjarstarfsmannafélaga, Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag starfsmanna Stjórnarráðsins.
³ Stjórnina skipa fulltrúar frá samningsaðilum hjá ríki, Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum.