Bókanir í kjarasamningum við ríkið
Í heimildarákvæði í grein 1.1.3 er mælt fyrir um að auk mánaðarlauna sé heimilt að greiða svokölluð önnur laun. Önnur laun eru til komin vegna starfstengdra þátta, svo sem vegna reglubundinnar yfirvinnu og starfstengds álags sem ekki verður mælt í tíma og kann að koma í stað yfirvinnukaups skv. gr. 1.5.
Heimildarákvæðinu er m.a. ætlað að styðja við þær breytingar sem leiða af betra skipulagi vinnutíma. Önnur laun taka ekki sjálfkrafa kjarasamningsbundnum hækkunum og með því er hvatt til samtals á milli starfsmanna og stjórnenda um inntak starfs.
Breyting á inntaki starfs er ein af forsendum endurskoðunar á öðrum launum. Af því leiðir að önnur laun kunna að vera breytileg frá einum tíma til annars þar sem forsendur að baki þeirra geta tekið breytingum, að efni og umfangi.
Þrátt fyrir ofangreint eru aðilar sammála um að á samningstímanum taki önnur laun skv. gr. 1.1.3 hækkun um 3,25% þann 1. apríl 2024, 3,5% 1. apríl 2025, 3,5% 1. apríl 2026 og 3,5% 1. apríl 2027.
¹ Var áður bókun 9 og kom inn í kjarasamning aðila árið 2020. Bókun 9 verðu bókun 6. Aðilar eru hins vegar sammála um að gera breytingar á umræddri bókun og bæta við útgáfu heildarkjarasamnings þó svo ekki hafi verið samið um hana þann 12. júní 2024 þegar samkomulag um breytingar og framlengingu kjarasamnings aðila var undirritað.