UPPLÝSINGAR UM KJARAMÁL

Desemberuppbót og orlofsuppbót

Desemberuppbót

Starfsmaður sem er í starfi fyrstu viku nóvembermánaðar fær greidda desemberuppbót miðað við fullt starf tímabilið frá 1. janúar til 31. október. Desemberuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins og skal hún greidd út eigi síðar en 15. desember ár hvert. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall, sjá nánar í viðkomandi kjarasamningi.
Tímavinnufólk á einnig rétt á desemberuppbót. Á desemberuppbót reiknast ekki orlofsfé. Tímavinnufólk þarf að hafa skilað 1504 dagvinnustundum á tímabilinu 1. janúar til 31. október til að fá 100% desemberuppbót. Tímavinnustarfsmaður sem vinnur færri klukkustundir á tímabilinu fær greitt hlutfallslega samkvæmt því.

Upphæðir desemberuppbótar eru misháar eftir kjarasamningum. Best er að skoða kjarasamninginn undir Kaup og kjör/kjarasamningar (https://www.sameyki.is/kaup-og-kjor/kjarasamningar/).

Orlofsuppbót

Starfsmaður sem er í starfi allt orlofsárið, þ.e. 1. maí til 30. apríl, fær greidda orlofsuppbót 1. júní. Sé viðkomandi í hlutastarfi eða starfar hluta árs fær hann greidda orlofsuppbót í samræmi við starfshlutfall eða starfstíma.

Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3ja mánaða (13 vikna) samfellt starfs á orlofsárinu skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum.

Upphæðir orlofsuppbótar eru misháar eftir kjarasamningum. Best er að skoða kjarasamninginn undir Kaup og kjör/kjarasamningar (https://www.sameyki.is/kaup-og-kjor/kjarasamningar/).