UPPLÝSINGAR UM KJARAMÁL
Aðild að stéttarfélagi, félagafrelsi
Aðild opinberra starfsmanna að stéttarfélögum byggir á lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna frá 1986.
Aðild að stéttarfélögum er bundin við starfsstétt/störf og í lögunum segir að eigi skuli nema eitt stéttarfélag hafa rétt til samningsgerðar við sama vinnuveitanda fyrir sömu starfsstétt.
Þetta þýðir að ef starfsmaður tekur að sér starf sem ákveðið stéttarfélag gerir kjarasamninga fyrir, þá greiðir viðkomandi starfsmaður félagsgjald til þess félags.
Í stjórnarskránni er þó kveðið á um að ekki megi skylda einstaklinga til aðildar að félagi. Það þýðir að starfsmenn geta kosið að standa utan félaga. Þeir sem svo gera hafa þó áfram greiðsluskyldu iðgjalds til félagsins hafi það samningsumboð vegna starfsins.
Lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna (https://www.althingi.is/lagas/nuna/1986094.html)