Kjarasamningur við Ás styrktarfélag

Kjarasamningur

Hér getur þú skoðað kjarasamning Sameykis við Ás styrktarfélag sem launin þín og réttindi byggja á. Um er að ræða fjögur skjöl, þrjú samkomulög um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila og heildstæðan kjarasamning, skoða þarf skjölin fjögur til að fá heildarsýn á réttindin.

Launatöflur

Svona virka helstu ákvæði kjarasamningsins

Hér útskýrum við helstu ákvæði kjarasamningsins og hvað þau þýða.

Akstur og dagpeningar

Upplýsingar um akstursgjald og ferðakostnað.

Upplýsingar um akstursgjald og ferðakostnað má finna á vef Fjármálaráðuneytisins.

Desember- og orlofsuppbætur

Reglur um desember- og orlofsuppbætur

Reglur um desemberuppbót. Starfsmaður sem er við störf í fyrstu viku nóvembermánaðar skal fá greidda persónuuppbót 1. desember ár hvert miðað við fullt starf tímabilið 1. janúar til 31. október. Persónuuppbót er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamningsins. Á persónuuppbót reiknast ekki orlofsfé. Hafi starfsmaðurinn gegnt hlutastarfi eða unnið hluta úr ári, skal hann fá greitt miðað við starfshlutfall á framangreindu tímabili. Á sama hátt skal einnig starfsmaður sem látið hefur af starfi en starfað hefur samfellt í a.m.k. 3 mánuði (13 vikur) á árinu, fá greidda persónuuppbót, miðað við starfstíma og starfshlutfall. Sama gildir þótt starfsmaður sé frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur.

Reglur um orlofsuppbót. Hinn 1. júní ár hvert skal starfsmaður sem er í starfi til 30. apríl næst á undan, fá greidda sérstaka eingreiðslu, orlofsuppbót, er miðast við fullt starf næstliðið orlofsár. Greitt skal hlutfallslega miðað við starfshlutfall og starfstíma. Hafi starfsmaður látið af störfum á orlofsárinu vegna aldurs eða eftir a.m.k. 3 mánaða/13 vikna samfellt starf á orlofsárinu, skal hann fá greidda orlofsuppbót hlutfallslega miðað við unninn tíma og starfshlutfall. Sama gildir ef starfsmaður var frá störfum vegna veikinda eftir að greiðsluskyldu stofnunar lýkur eða vegna fæðingarorlofs allt að 6 mánuðum. Orlofsuppbót er föst fjárhæð og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum samningsins. Á orlofsuppbót reiknast ekki orlofsfé.

Ferðalög með skjólstæðingum

  • Þegar starfsmaður annast skjólstæðinga á ferðalögum, skal hver vinnudagur reiknaður allt að 12 klst.  Að auki ber að greiða 4 klst. vegna eftirlitsstarfa með skjólstæðingum vegna næturgistingar á ferðastað.
  • Ef starfsmaður er einn á ferð með skjólstæðingi og annast hann einn skal greitt fyrir þá sólarhringa alla.
  • Ef starfsmaður fer í ferðalag (með skjólstæðingi) að beiðni yfirmanns á frídegi sínum skal hann bættur með öðrum frídegi eða greiðslu yfirvinnu.

Orlofs- og desemberuppbót

Miðað við fullt starf

ÁrOrlofsuppbótDesemberuppbót

2024

58.000 kr.

106.000 kr.

2025

60.000 kr.

110.000 kr.

2026

62.000 kr.

114.000 kr.

2027

64.000 kr.

118.000 kr.

Ár
2024
Orlofsuppbót

58.000 kr.

Desemberuppbót

106.000 kr.

Ár
2025
Orlofsuppbót

60.000 kr.

Desemberuppbót

110.000 kr.

Ár
2026
Orlofsuppbót

62.000 kr.

Desemberuppbót

114.000 kr.

Ár
2027
Orlofsuppbót

64.000 kr.

Desemberuppbót

118.000 kr.

Aðrir kjarasamningar Sameykis