- júlí 2025
Sameyki undirritar tvo nýja stofnanasamninga við Land og skóg og MAST
Sameyki undirritar tvo nýja stofnanasamninga við Land og skóg og MAST
Sameyki hefur lokið gerð tveggja stofnanasamninga, annars vegar við Land og skóg og hins vegar við Matvælastofnun (MAST).
Stofnanasamningur við Land og skóg var undirritaður þann 24. júní 2025 og er þetta fyrsti stofnanasamningurinn sem gerður hefur verið við Land og Skóg, sem varð til við sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar. Um er að ræða mikilvægt skref í að samræma og efla kjör starfsfólks innan nýrrar stofnunnar.
Stofnanasamningur við MAST var undirritaður í dag, 7. júlí 2025. Með honum er lögð áhersla á að skýra starfssvið, ábyrgð og kjör þess starfsfólks sem heyra undir stofnanasamning Sameykis og MAST.
Sameyki fagnar þessum áföngum og þakkar samninganefndum fyrir vel unnin störf.
Við hvetjum allt félagsfólk sem starfar hjá þessum stofnunum til að kynna sér efni samninganna sem nú eru aðgengileg hér á Kaup og kjör.
Sjá einnig tengla á samningana hér að neðan: