Stofnanastyrkir
Reykjavíkurborg, ríkisstofnanir, sjálfseignastofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki geta sótt um styrki vegna starfsþróunarverkefna.
Flýtileiðir
Fræðslustyrkir Reykjavíkurborg
Deildir innan starfseininga og sviða Reykjavíkurborgar geta sótt um styrki til skipulagðra fræðsluferða og sérhæfðra ráðstefna. Styrkirnir eru ætlaðir til að þróa starf og hæfni tiltekins hóps á vinnustaðnum og ná til sjóðsfélaga sem þar starfa.
Styrkbeiðnir vegna annarra fræðsluverkefna skulu sendar í Torgssjóð. Torgssjóður styður fræðslu- og mannauðstengd verkefni innan starfseininga og sviða. Nánari upplýsingar má finna í úthlutunarreglum Torgssjóðs á Fróða, innri vef Reykjavíkurborgar.
Styrkir fyrir verkefni erlendis geta að hámarki numið 85% af heildarkostnaði
Aðrar borgarstofnanir
Félagsbústaðir, Faxaflóahafnir og Strætó geta sótt um styrki til verkefna sem efla fræðslu og mannauðsþróun á vinnustöðum. Verkefnin þurfa að taka til starfsfólks sem greidd eru iðgjöld fyrir í Fræðslusjóð.
Fræðslustyrkir ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana
Þróunar- og símenntunarsjóður er fyrir stofnanir, ráðuneyti og atvinnurekendur sem greiða í sjóðinn. Þar á meðal eru Ás styrktarfélag, Isavia, Klettabær, Matís, Rarik, ríkisstofnanir, ráðuneyti, SÁÁ, Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu (SFV), sjálfseignarstofnanir og Vinakot.
Markmið sjóðsins er að styðja markvissa starfsþróun á vinnustöðum og efla mannauð. Sjóðurinn veitir styrki til fræðsluverkefna sem hjálpa starfsfólki að auka þekkingu sína, þróa færni og nýta hana í starfi.
Styrkir fyrir verkefni erlendis geta að hámarki numið 85% af heildarkostnaði
Mannauðssjóðurinn Hekla
Mannauðssjóðurinn Hekla styrkir markviss starfsþróunarverkefni hjá sveitarfélögum og stofnunum þeirra. Hægt er að sækja um styrk vegna:
- fræðsluverkefna á vegum greiðenda í sjóðinn
- verkefna stéttarfélaga sem eiga aðild
- verkefna sem sjóðsstjórn skipuleggur eða tekur þátt í
Sótt er um í umsóknargátt á heimasíðu sjóðsins. Þar þarf að lýsa verkefni, framkvæmd, kostnaði og framlagi umsækjanda.