Úthlutunarreglur starfsmenntunarstyrkja
1. gr.
Um sjóðinn og rétt félagsmanna
1.1. Um sjóðinn
Starfsemi sjóðsins byggir á reglum, sem settar eru samkvæmt 20. gr. laga Sameykis, sem samþykktar voru á aðalfundi Sameykis 17. september 2020.
1.2. Réttur til að sækja um styrki
1.2.1. Þegar atvinnurekandi hefur greitt iðgjöld í sjóðinn í 6 mánuði af síðustu 12 öðlast félagsmaður aðild að sjóðnum.
2. gr.
Styrkhæft nám/námskeið
2.1. Hvað er styrkt?
Skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjald, raunfærnimat og faglega skipulagðar náms- og kynnisferðir. Greitt er vegna hótel- og gistikostnaðar og flugfargjalda í tengslum við námsferðir erlendis. Ekki er veittur styrkur vegna slíkra ferða fyrir maka, barn/börn eða aðra nákomna þrátt fyrir að sá aðili sé félagsmaður Sameykis og sjóðsfélagi. Veittir eru staðlaðir styrkir vegna ferða- og gistikostnaðar innanlands (sbr. 3.1.5). Félagsmaður skal leitast við að finna sem hægstæðust kjör á flugi og gistingu.
2.2. Hvað er ekki styrkt?
Uppihald (fæðiskostnaður), ferðir innan borga og sveitarfélaga, bílaleigubíll, bensínkostnaður, launatap, námsgögn.
3. gr.
Styrkupphæð
Eftirfarandi hámarksupphæðir gilda um neðangreindar styrkveitingar:
3.1. Náms- og kynnisferðir erlendis, hámark 140.000 kr. á 24 mánaða tímabili. Skipulögð fræðsludagskrá þarf að liggja fyrir og vera að lágmarki 8 klukkustundir af faglegri fræðslu.
4. gr.
Umsóknir og greiðsla styrks
4.1. Umsóknir og fylgiskjöl
Senda þarf inn rafræna umsókn í gegnum Mínar síður Sameykis á www.sameyki.is. Reikninga, greiðslukvittanir og önnur fylgigögn skal hengja á rafrænu umsóknina eða senda á starfsmenntun@sameyki.is. Einnig er hægt að skila þeim á skrifstofu Sameykis, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
4.2. Staðfesting á náms- og kynnisferð
Sé sótt um styrk vegna skipulagðrar náms- og kynnisferðar þarf til viðbótar reikningi að framvísa áritaðri staðfestingu á þátttöku frá yfirmanni eða umsjónarmanni ferðarinnar. Í staðfestingunni skal ferðinni lýst og tilgangur hennar útskýrður. Ef um er að ræða náms- eða kynnisferð erlendis, þarf að leggja fram staðfestingu frá viðkomandi aðila/aðilum erlendis á ítarlegri dagskrá sem skal vera að lágmarki 8 klst. af faglegri fræðslu. Umsóknir eru ekki samþykktar ef leiðbeinandi fer frá Íslandi til að halda námskeið/kynningu á erlendri grundu. Náms- og kynnisferðum innanlands skal fylgja staðfest ítarleg dagskrá að lágmarki 6 klst. af faglegri fræðslu. Í báðum tilvikum skal gera grein fyrir hvaða staðir verða heimsóttir, efni kynninga á hverjum stað og tímasetningar. Umsókn þarf einnig að fylgja áætlaður fjöldi Sameykisfélaga sem taka þátt í viðkomandi ferð. Umsækjanda ber að tilkynna forföll til sjóðsins. Styrkur er eingöngu veittur til sjóðsfélaga sem starfar hjá þeirri stofnun/fyrirtæki sem skipuleggur kynnisferðina.
4.3. Útborgun styrks
Greiðsla er innt af hendi gegn framvísun reiknings og greiðslukvittunar sem sýnir að reikningur er sannanlega greiddur af umsækjanda sjálfum. Almennt er ekki gerð krafa um frumrit, en stjórn sjóðsins áskilur sér þó rétt til þess ef þörf er talin á. Ef annar aðili, t.d. fyrirtæki, stofnun eða samstarfsfélagi, leggur út fyrir kostnaði þá þarf viðkomandi styrkumsækjandi að sýna fram á að hann hafi endurgreitt þeim aðila sinn hluta kostnaðar. Ekki er unnt að skila inn reikningi sem er eldri en 12 mánaða.
Styrkir úr sjóðnum eru greiddir eins fljótt og aðstæður leyfa hverju sinni. Alla jafna er greitt í lok hverrar viku. Forsenda greiðslu er að fulltrúi eða stjórn Starfsmenntunarssjóðs hafi samþykkt umsókn og að nauðsynleg fylgigögn hafi borist í tíma. Stjórn Starfsmenntunarsjóðs Sameykis sker úr um vafaatriði og getur lækkað styrki taki aðrir þátt í kostnaði.
Greiðslutilkynning er hengd við umsókn þegar styrkur er greiddur út og hægt er að nálgast hana inni á mínum síðum, þar sem einnig má fylgjast með afgreiðslu umsóknar.
4.4. Frágangur umsókna og afgreiðsla.
Félagsmaður skal vanda frágang umsóknar, vel útfyllt umsókn er forsenda fyrir afgreiðslu styrkja. Þegar leggja þarf umsókn fyrir fund stjórnar sjóðsins er niðurstaða tilkynnt með tölvupósti þar sem fram kemur hvaða gögnum þarf að framvísa til að fá styrkinn greiddan. Ef öll gögn hafa borist bíður umsókn næsta greiðsludags.