Starfsmenntunarstyrkir

Réttur félaga til styrkja getur verið mismunandi eftir kjarasamningum. Sótt er um á Mínum síðum, þar sem birtast aðeins þeir styrkir sem þú átt rétt á. Best er að sækja um áður en námið eða fræðslan hefst, því sumar umsóknir fara fyrir stjórn sjóðanna áður en afgreiðsla liggur fyrir.

Hvaða styrkur hentar þér?

Starfsmenntunarstyrkir ná yfir breitt nám og námskeið, líka án beinnar tengingar við starf. Starfsþróunarstyrkir eru eingöngu fyrir fræðslu sem tengist starfsþróun í starfi eða starfsáætlun.

Starfsmenntunarstyrkir

Hér finnur þú samantekt á öllum styrkjum sem félagar eiga kost á úr sjóðnum. Samtals geta félagar fengið að hámarki 140.000 kr. í styrk á 24 mánaða tímabili.
Sækja um styrk á mínum síðumÚthlutunarreglur starfsmenntunarstyrkjaRules for Vocational GrantsZasady przyznawania dofinansowania szkolenia zawodowego

Afgreiðsla umsókna getur tekið um tvær vikur

Styrkhæft nám

Framhalds- og háskólanám

Framhalds- og háskólanám sem eykur almenna hæfni á sviði tækni og tungumála óháð starfi.

Náms- og kynnisferðir erlendis

Ákveðin styrkupphæð er veitt vegna skipulagðra náms- og kynnisferða sem tengjast starfi.

Náms- og kynnisferðir innanlands

Ákveðin styrkupphæð er veitt vegna skipulagðra náms- og kynnisferða sem tengjast starfi.

Starfsréttindanáms án beinnar tengingar við starf

Námskeið til starfsréttinda án beinnar tengingar við starf eru styrkhæf og hámarksstyrkur er 100.000 kr. á 24 mánaða tímabili.

Lífsleikninámskeið

Lífsleikninámskeið eru styrkhæf samkvæmt reglum sjóðsins og hámarksstyrkur er 50.000 kr. á 24 mánaða tímabili þegar námskeiðið er án beinnar tengingar við starf.

Hvað er styrkt?

Skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjald

Skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjöld eru styrkt. Heildarhámarksstyrkur úr sjóðnum er 140.000 kr. á 24 mánaða tímabili (70.000 kr. með hálfum rétti), en þó aldrei hærri en framlögð reikningsupphæð.

Raunfærnimat

Raunfærnimat er styrkt samkvæmt upptalningu á því sem fellur undir styrk í gr. 2.1.

Faglega skipulagðar náms- og kynnisferðir

Faglega skipulagðar náms- og kynnisferðir eru styrktar. Hámark er 140.000 kr. erlendis og 55.000 kr. innanlands á 24 mánaða tímabili, með kröfu um skipulagða faglega fræðsludagskrá.

Gisting og flugfjargjöld vegna námsferða til útlanda

Greitt er vegna hótel- og gistikostnaðar og flugfargjalda í tengslum við námsferðir erlendis. Ekki er veittur styrkur vegna slíkra ferða fyrir maka, börn eða aðra nákomna.

Hvað er ekki styrkt?

Fæði, uppihald og námsgögn

Uppihald (fæðiskostnaður) og námsgögn eru ekki styrkhæf.

Ferðir innan borga og sveitarfélaga

Ferðir innan borga og sveitarfélaga eru ekki styrkhæfar.

Bílaleigubíll og bensínkostnaður

Bílaleigubíll og bensínkostnaður eru ekki styrkhæf.

Launatap

Launatap er ekki styrkt.

Starfsþróunarstyrkir

Yfirlit yfir styrkhæft nám, styrktan kostnað og undanskilda kostnaðarliði samkvæmt úthlutunarreglum starfsþróunarstyrkja. Hámarksstyrkur er 370.000 kr. á 24 mánaða tímabili (185.000 kr. með hálfum rétti).
Sækja um styrk á mínum síðumÚthlutunarreglur starfsþróunarstyrkjaAllocation Rules for Job Development GrantsZasady przyznawania dofinansowania rozwojowego

Afgreiðsla umsókna getur tekið um tvær vikur

Styrkhæft nám

Nám á háskólastigi og aðfarðarnám að háskólastigi

Nám á háskólastigi og aðfararnám að háskólastigi er styrkhæft. Fyrir háskólanám sem ekki tengist starfsþróun í núverandi starfi gildir lægra hámark, allt að 185.000 kr. eða 92.500 kr. á 24 mánaða tímabili eftir réttindastöðu.

Faglegt nám, námskeið og ráðstefnur sem tengjast starfs- eða starfsferilsþróun

Faglegt nám, námskeið og ráðstefnur sem tengjast starfsþróun eða starfsferilsþróun eru styrkhæf. Hámarksstyrkur er allt að 370.000 kr. á 24 mánaða tímabili (185.000 kr. með hálfum rétti).

Tungumála-, upplýsinga­tækninám eða námskeið sem tengjast starfsþróun

Tungumála- og upplýsingatækninám, sem og námskeið sem tengjast starfsþróun, eru styrkhæf. Hámarksstyrkur er allt að 370.000 kr. á 24 mánaða tímabili (185.000 kr. með hálfum rétti).

Hvað er styrkt?

Skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjald

Styrkir eru veittir vegna skólagjalds, námskeiðsgjalds og ráðstefnugjalds. Heildarhámarksstyrkur til starfsþróunarverkefna er 370.000 kr. á 24 mánaða tímabili (185.000 kr. með hálfum rétti).

Ferðakostnaður vegna náms

Ferðakostnaður vegna styrkhæfra skóla-, námskeiðs- og ráðstefnugjalda getur m.a. tekið til flugs, gistingar og samgangna til/frá millilandaflugvelli. Einnig er veittur fastur innanlandsstyrkur (m.a. 15.000 kr. / 30.000 kr. eftir vegalengd og 7.000 kr. í tilteknum tilvikum vegna millilandaflugvallar).

Hvað er ekki styrkt?

Fæði, uppihald og námsgögn

Uppihald (fæðiskostnaður) og námsgögn eru ekki styrkt.

Ferðir innan borga og sveitarfélaga

Ferðir innan borga og sveitarfélaga eru ekki styrktar.

Bílaleigubíll og bensínkostnaður

Bílaleigubíll og bensínkostnaður eru ekki styrkt.

Launatap

Launatap er ekki styrkt.