Styrkir og sjóðir

Félagsmenn Sameykis geta sótt um styrki til fræðslu, heilsueflingar og sjúkradagpeninga, auk starfsþróunarstyrkja fyrir vinnustaði.

Þú sækir um styrki og sjóði á Mínum síðum

Starfsmenntunar- og starfsþróunarstyrkir

Finnur þú ekki svar við spurningunni þinni? 
Hafðu samband og við svörum þér við fyrsta tækifæri.

hafa samband

Hvenær fæ ég greidda út styrki?

Við reiknum með að greiða út styrki innan 2 vikna frá því að öll nauðsynleg gögn hafa borist.

Hversu lengi á ég rétt til styrkja eftir að ég hætti að borga í félagið?

Þú hefur 2 mánuði til að sækja um styrk í gegnum „Mínar síður“ en greiðsla fyrir nám eða námskeið
þarf að hafa átt sér stað á tímabili þegar þú varst enn að borga í félagið.

Úr hvaða sjóði á ég að sækja fyrir háskólanám eða framhaldsskólanám?

Þú getur sótt um styrk úr starfsmenntunarsjóði fyrir háskólanám eða framhaldsskólanám. Einnig
er hægt að nýta allt að helming réttinda sinna úr starfsþróunarsjóði, jafnvel þó nám sé ekki tengt
núverandi starfi.

Hvernig sæki ég um styrk fyrir starfstengt nám eða námskeið?

Þú getur sótt um styrk fyrir starfstengt nám eða námskeið úr starfsþróunarsjóði. Það þarf að
fylgja með staðfesting frá yfirmanni sem staðfestir að verkefnið tengist núverandi starfi þínu.

Er einhver tímarammi til að sækja um styrk?

Hægt er aðeins að sækja um styrk fyrir greiðslum sem fóru fram innan síðustu 12 mánaða.

Hvaða gögn þarf að skila inn?

Öllum umsóknum þarf að fylgja reikningur frá söluaðila og greiðslukvittun (staðfesting á greiðslu)
þar sem nafn eða kennitala greiðanda koma fram. Athugið að skjáskot úr heimabanka eru ekki
fullnægjandi ef upplýsingar um greiðanda eru ekki sýnilegar þar.

Hver er munurinn á starfsmenntunar- og starfsþróunarstyrkjum?

Starfsmenntunarsjóður er almennur fræðslusjóður fyrir nám eða námskeið sem tengjast ekki
endilega núverandi starfi þínu. Einnig er hægt að nýta sjóðinn fyrir náms- og kynnisferðir eða
ráðstefnur.

Hvað get ég fengið háan styrk?

Þú getur fengið starfsmenntunarstyrk allt að 140.000 kr. og starfsþróunarstyrk allt að 370.000 kr.
Upphæðir miðað við 24 mánaða tímabil.

Hvernig get ég athugað réttindi mín í sjóðunum?

Þú getur skoðað réttindi þín inn á „Mínum síðum“ á www.sameyki.is.

Hvað þarf ég að vera lengi hjá Sameyki til að öðlast rétt til styrkja?

Þú þarft að hafa greitt iðgjöld til Sameykis í að minnsta kosti 6 mánuði af síðustu 12 mánuðum og
vera virkur félagsmaður þegar þú sækir um styrk.

Starfsþróunarsjóður er sjóður fyrir starfstengt nám eða námskeið. Þú þarft að skila staðfestingu
frá yfirmanni þess efnis að verkefnið tengist starfinu þínu. Að auki er hægt að nýta allt að helming
réttinda sinna úr þessum sjóði fyrir háskólanám eða framhaldsskólanám sem tengist
ekki beint núverandi starfi þínu.

Styrktar og sjúkrasjóður