Fylgiskjöl í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Fylgiskjal XII: Leiðbeiningar um leyfi og sveigjanleika vegna náms

Leiðbeiningar um leyfi og sveigjanleika vegna náms samhliða starfi hjá Reykjavíkurborg

Í starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar er kveðið á um að starfsmenn skuli „leitast við að laga sig að þeim kröfum sem starf gerir til þeirra, svo sem vegna tæknilegrar og faglegrar þróunar og vera reiðubúnir að þjálfa sig til nýrra starfa.“ Þess er jafnframt getið að starfsþróun sé á ábyrgð bæði starfsmanns og yfirmanns og henni sé sinnt m.a. með þátttöku starfsmanns í starfsþróunarsamtölum og símenntun. Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa ýmsar leiðir til að auka starfshæfni sína og faglega þekkingu, m.a. með þátttöku í námskeiðum eða viðameira námi. Þegar um það síðarnefnda er að ræða eru þrjár leiðir færar: Stunda nám í launuðu námsleyfi, í launalausu leyfi eða með auknum sveigjanleika í starfi, sem gerir starfsmanni kleift að sækja kennslustundir og próf á vinnutíma. Eftirtalin viðmið gilda hjá Reykjavíkurborg um þetta:

1. Launað námsleyfi

Launað námsleyfi vegna náms samhliða starfi getur stjórnandi í samráði við starfsmannastjóra sviðs veitt skv. heimildum í kjarasamningi (sjá t.d. gr. 12.3.2 í kjarasamningi St.Rv., um viðmið um lengd námsleyfis). Umsókn um námsleyfi er gerð á sérstakt eyðublað sem Mannauðsskrifstofa gefur út (sjá Innri vef/verkfærakista /eyðublöð). Stjórnandi getur samþykkt umsóknina í samræmi við heimildarákvæði, fjárheimildir og aðstæður á vinnustað. Með umsókn um námsleyfi þarf að fylgja greinargerð, sbr. leiðbeiningar á umsóknareyðublaði. Samþykkta umsókn skaljafnframt senda til launadeildar og skrá leyfið í Vinnustund.

2. Launalaust leyfi

Launalaust leyfi vegna náms samhliða starfi er heimilt að veita skv. reglum Reykjavíkurborgar (sjá Innri vef /upplýsingabrunnur/mannauður /starfsþróun). Gera skal skriflegt samkomulag um leyfið þar sem fram kemur lengd leyfis og hvernig því verði háttað. Tilkynning um það berist launadeild, auk þess sem skrá þarf leyfið í Vinnustund.

Sveigjanleiki í starfi

Heimilt er að koma til móts við starfsmann, sem hyggst stunda nám samhliða starfi, með auknum sveigjanleika, hafi hann starfað samfleytt hjá Reykjavíkurborg í a.m.k. tvö ár. Gera skal skriflegt samkomulag um sveigjanleika í starfi vegna náms, þar sem fram kemur hvernig sveigjanleika skuli háttað og hvernig skil verða á vinnuskyldu það tímabil, sem námið stendur yfir. Samkomulagið skal senda til launadeildar og haft til hliðsjónar við skil á vinnuskyldu. Við veitingu námsleyfa eða sveigjanleika í starfi vegna náms skal horft til eftirfarandi þátta:

  • Að námið nýtist í starfi.
  • Að námið styðji við stefnu og meginmarkmið vinnustaðar. Ef velja þarf milli umsókna sem uppfylla framangreind skilyrði skal styðjast við eftirfarandi þætti:
    – Að breytt verkefni eða staða umsækjanda geri kröfu um aukna þekkingu og færni.
    — Að umsækjandi hafi sýnt metnað og árangur í starfi að mati næsta yfirmanns.
    — Starfsaldur umsækjenda

Áréttað er að námsleyfi og viðmið um sveigjanleika í starfi vegna náms eru heimildarákvæði og skal veiting leyfis og sveigjanleika taka mið af ákvæðum kjarasamnings og fjárhagsstöðu vinnustaðar hverju sinni.

Reykjavík, 22. október 2010
Hallur Páll Jónsson
mannauðsstjóri