Fylgiskjöl í kjarasamningum við Reykjavíkurborg

Fylgiskjal VII: Reglugerð starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóðs

1. gr. Nafn sjóðsins

Sjóðurinn heitir Starfsmenntunar- og starfsþróunarsjóður og er til hans stofnað á grundvelli kjarasamnings Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar. Sjóðurinn starfar með því skipulagi sem segir í reglugerð þessari og starfsreglum. Heimili sjóðsins og varnarþing er í Reykjavík. Aðild að sjóðnum eiga félagsmenn starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem starfa hjá Reykjavíkurborg, auk annarra félagsmanna liggi fyrir samkomulag þar um.

2. gr. Markmið sjóðsins

Markmið sjóðsins er að efla sí- og starfsmenntun sjóðsfélaga til að auka hæfni þeirra og möguleika til starfsþróunar í samræmi við stefnu vinnustaðarins. 
Sjóðstjórn er heimilt að veita fjárstyrki úr sjóðnum til eftirfarandi aðila, vegna verkefna er samræmast markmiðum sjóðsins:

  • Félagsmanna Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar sem aðild eiga að sjóðnum
  • Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar
  • Sviða og stofnana Reykjavíkurborgar

Sjóðstjórn setur sér starfsreglur um styrkúthlutanir og upphæðir styrkja.

3. gr. Stjórn og skoðunarmenn

Stjórn sjóðsins skal skipuð fjórum mönnum til fjögurra ára í senn. Tveir skulu skipaðir af Reykjavíkurborg og tveir af stjórn Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, hvor aðili skipar einn varamann. Auk þess skal skipa tvo skoðunarmenn, einn frá hvorum aðila. Stjórn sjóðsins skal halda reglubundna fundi. Stjórnin skal halda gerðabók og rita í hana allar samþykktir sínar. Til þess að samþykkt sé lögmæt þarf meirihluti stjórnarmanna að greiða henni atkvæði.

4. gr. Tekjur sjóðsins

Tekjur sjóðsins eru:

  1. Framlag úr borgarsjóði samkvæmt kjarasamningi aðila
  2. Vaxtatekjur
  3. Aðrar tekjur
    Tekjum sjóðsins skal einungis varið í samræmi við markmið hans sbr. 2. gr. 
    Ávöxtun sjóðsins skal vera með ábyrgum hætti.

5. gr. Umsóknir

Umsóknir um styrk úr sjóðnum skulu sendar stjórn sjóðsins þar sem fram kemur lýsing á því námi eða verkefni sem styrkurinn skal renna til, áætlaður kostnaður, hvenær fyrirhugað er að stunda námið eða vinna verkefnið og aðrar þær upplýsingar er sjóðstjórn kann að telja nauðsynlegar. Á grundvelli ofangreindra gagna tekur sjóðstjórn ákvörðun um hvort og hve háan styrk viðkomandi umsækjandi skuli fá.

6. gr. Reikningshald og innheimta

Skrifstofa Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar annast reikningshald sjóðsins, innheimtir tekjur hans og innir af hendi greiðslur úr honum, allt eftir tilvísun sjóðstjórnar.

7. gr. Reikningsár sjóðsins

Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Reikningar skulu liggja fyrir í síðasta lagi í apríl ár hvert og skulu endurskoðaðir af til þess kjörnum skoðunarmönnum ásamt löggiltum endurskoðendum sem aðilar koma sér saman um.

8. gr. Breytingar á reglugerð

Stjórn sjóðsins fjallar um breytingar á reglugerð þessari. Tillögur stjórnar um breytingar á reglugerðinni skulu hljóta staðfestingu Starfskjaranefndar Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Reykjavíkurborgar.