Námskeið fyrir þig

Sameyki býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félaga þeim að kostnaðarlausu. Nauðsynlegt er að skrá sig, fyrstur kemur fyrstur fær.

Fjölbreytt námskeið í boði

Fræðsluhlaðborðið er öllu jafna kynnt í ágúst fyrir haustönn og í janúar fyrir vorönn. Fræðslan sem er í boði í samstarfi við Fræðslusetrið Starfsmennt er félagsfólki að kostnaðarlausu í flestum tilvikum. Fræðslan sem er í samstarfi við Framvegis miðstöð símenntunar, Farskóla Norðurlands vestra og Símey er félagsfólki að kostnaðarlausu.
Hvenær skráning á námskeið hefst getur verið misjafnt eftir fræðsluaðilum. 
Námskeið framundan munu birtast hér á þessari síðu sem er ennþá í vinnslu. Á meðan má skoða námskeiðin hjá Starfsmennt hér.

Sameyki er í samstarfi við Framvegis miðstöð um símenntun varðandi framboð fræðslu á höfuðborgarsvæðinu. Þetta haustið verða flestir viðburðir í húsi, ýmist hjá Framvegis Borgartúni 20, eða víðs vegar um höfuðborgarsvæðið. En einnig verður boðið upp á fræðslu í fjarnámi og fá þátttakendur senda krækju á viðburði þegar nær dregur. Þau sem ekki eru vön fjarnámi eru hvött til að hafa samband við Framvegis og fá leiðbeiningar áður en viðburður sem þau skrá sig á hefst.

Þegar þú skráir þig á námskeið þarftu að smella á Skrá umsókn, annars skráist umsókn ekki.

Nám, fræðsla og önnur þjónusta Starfsmenntar er án kostnaðar fyrir langflest félagsfólk Sameykis af því búið er að semja um greiðslur ýmist í kjarasamningum eða samstarfssamningum við sjóði, sjá nánar hér.

Hjá Starfsmennt finnurðu fjölbreytt úrval námskeiða sem miða að því að auka starfshæfni sem þarf í opinberum störfum. Starfshæfni er bæði almenn og sértæk. Þess vegna finnurðu námskeið til að efla sjálfstraust, auka færni í notkun upplýsingatækni og að efla seiglu í að takast á við breytingar. Allt þetta nýtist þvert á störf.

Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi eystra

Vefur Símeyjar

Námskeið og fyrirlestrar á Norðurlandi vestra

Vefur Farskólans

Sameyki, Kjölur, Aldan, Samstaða og Verslunarmannafélag Skagafjarðar í samstarfi við Farskólann - Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra, bjóða upp á spennandi viðburði fyrir félagsfólk á haustönn 2026 þeim að kostnaðarlausu, bæði á vefnum og í raunheimum.

Vefnámskeið og veffyrirlestrar á Vestfjörðum

Vefur Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða