EKKO viðbragðsáætlun

Stefna og viðbragðsáætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi

Stefna Sameykis um EKKO-mál

Það er stefna Sameykis að starfsfólk sýni samstarfsfólki, félagsfólki og öðrum sem koma að starfsemi félagsins virðingu og kurteisi í samskiptum óháð aldri, þjóðerni, kynferði, kynvitund, fötlun, kynhneigð, trúarbrögðum eða öðrum þáttum.

Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni, ofbeldi eða önnur ótilhlýðileg háttsemi verður ekki umborin á vinnustaðnum og er bæði stjórnendum og starfsfólki með öllu óheimil. Slík hegðun getur leitt til áminningar, tilflutnings í starfi, uppsagnar og eftir atvikum fyrirvararlausrar brottvikningar úr starfi.

Sameyki stendur ávallt með þolendum. Meðvirkni starfsfólks í öllum tilvikum er jafnframt óásættanleg og fordæmd. Á sama tíma og ætlast er til þess að starfsfólk Sameykis sýni hvert öðru umburðarlyndi fyrir mannlegum fjölbreytileika er starfsfólk hvatt til að setja hvert öðru mörk í samskiptum og minnka þannig líkur á að samskipti þróist á neikvæðan veg. Æskilegt er að starfsfólk leysi ágreining sín á milli eins og kostur er.

Markmið

Markmið Sameykis er að koma í veg fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum og tryggja að úrræði séu til staðar telji aðili sig hafa orðið fyrir slíkum brotum. Lögð er áhersla á eftirfarandi atriði:

  • Að starfsfólki sé ljóst hvað telst einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi.

  • Að starfsfólk geti treyst því að til sé viðbragðsáætlun telji þeir sig verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustaðnum.

  • Að til sé skilvirkt ferli sem fylgt er þegar upp koma ábendingar um hugsanlegt eða staðfest einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni og ofbeldi.

  • Að ferli slíkra mála sé öllum í starfsumhverfinu ljóst og að upplýsingar séu aðgengilegar.

  • Að stuðla að jákvæðum samskiptum sem byggja á gagnkvæmri virðingu.

Skilgreiningar

Einelti

Síendurtekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá  þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítð úr, móðga, særa eða ógna viðkomandi eða að vald honum ótta. Skoðanaágreiningur eða ágreiningur vegna ólíkra hagsmuna fellur ekki hér undir.

Kynbundin áreitni

Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkomandi og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi og skapa aðstæður sem eru ógnandi, fjandsamlegar, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi fyrir viðkomandi.

Kynferðisleg áreitni

Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann tilgang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkomandi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógnandi, fjandsamlegra, niðurlægjandi, auðmýkjandi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn eða líkamleg.

Ofbeldi

Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáninga þess sem fyrir henni verður, einnig hótun um slíkt, þvingun eða handahófskennda sviptingu frelsis.

Þolandi

Sá aðili sem verður fyrir einelti, kynferðislegri eða kynbundinni áreitni eða ofbeldi.

Gerandi

Sá aðili sem beitir einelti, kynferðislegri eða kynbundinni áreitni eða ofbeldi.

Hlutverk starfsmanna

Það er hlutverk alls starfsfólks að koma í veg fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi eða aðra ótilhlýðilega háttsemi í vinnu. Mikilvægt er að starfsfólk sýni samkennd og séu vakandi gagnvart allri slíkri háttsemi. Allt starfsfólk Sameykis á að þekkja viðbragðsáætlun þessa.

Starfsfólk á að vera meðvitað um hegðun sína og stuðla að því að tekið sé á ágreiningsmálum strax. Stjórnendur skulu kynna viðbragðsáætlunina fyrir nýju starfsfólki og sjá til þess að hún sé höfð í hávegi á vinnustaðnum. Áætlunina skal rifja upp reglulega á starfsmannafundum og skal hún vera aðgengileg öllu starfsfóki á innri vef Sameykis.

Það er hlutverk skrifstofustjóra Sameykis að tryggja að þessari viðbragðsáætlun sé fylgt þegar tilkynning berst. Hann getur unnið málið sjálfur í samráði við stjórnendur og/eða falið öðrum utanaðkomandi fagaðilum að annast málið eða vinna það að hluta. Ef upp koma ágreiningsmál, samskiptaerfiðleikar eða hagsmunaárekstrar er mikilvægt að skrifstofustjóri bregðist við með viðeigandi hætti án tafar áður en þau þróast til verri vegar.

Viðbrögð

Starfsfólk sem telur sig verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi skal tilkynna um atvikið til næsta yfirmanns eða skrifstofustjóra. Ef næsti yfirmaður er meintur gerandi málsins, sinnir ekki erindi eða þolandi óskar frekar eftir því er hægt að snúa sér til trúnaðarmanns Sameykis eða stjórnar. Sé skrifstofustjóri Sameykis meintur gerandi máls skal formaður Sameykis kalla til óháðan aðila til að vinna málið áfram skv. þessari viðbragðsáætlun.

Starfsfólk sem telur annað starfsfólk verða fyrir einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni eða ofbeldi skal tilkynna slíkt á sama hátt. Stjórnandi sem fær tilkynningu um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi skal hafa samvinnu við skrifstofustjóra. Fyrstu viðbrögð eru að meta þörf starfsfólks á stuðningi og svo eru næstu skref ákveðin í samvinnu við þann er tilkynnir. Hægt er að velja á milli óformlegrar eða formlegrar málsmeðferðar.