Kosning trúnaðarmanna

Kosning trúnaðarmanna

Kosið er til trúnaðarmanns í maí á oddatöluári og gildir kjörið í tvö ár. Trúnaðar­maður er fulltrúi starfs­fólks gagnvart atvinnu­rekanda og Sameyki. Kosning fer fram í samráði við Sameyki og trúnaðarmaður fær kjör sitt og umboð staðfest af félaginu.

Sameyki leggur áherslu á að trúnaðarmenn starfi á öllum vinnustöðum. Þar sem fimm eða fleiri félagar starfa er hvatt til þess að kjósa trúnaðar­mann. Allir félagar í Sam­eyki geta boðið sig fram. Hlut­verk trúnaðar­manns er meðal annars að gæta hags­muna félaga á vinnu­staðnum, miðla upp­lýsingum, fylgja eftir kjara­samningum og aðstoða við ágreiningsmál.

Starfið er lærdómsríkt og gefandi og veitir innsýn í mannauðsmál, starfsemi vinnustaða og stéttarfélaga. Trúnaðarmenn hafa aðgang að fræðslu og þjálfun sem nýtist bæði í starfi og daglegu lífi.

Núverandi kjörtímabil trúnaðarmannaráðs er frá 31. maí 2025 til 31. maí 2027.

Framkvæmd kosninga

Kjörgögn fyrir kosningu trúnaðarmanna eru send öllum trúnaðarmönnum í vefpósti í apríl á oddatöluári. Félagar sem vilja fá gögnin send geta haft samband við tengilið trúnaðarmanna á netfangið kristin@sameyki.is.

Fráfarandi trúnaðarmaður skipar umboðsmann og sér um að auglýsa væntanlega kosningu á vinnustaðnum. Auglýsingin skal vera sýnileg í sameiginlegu rými og má einnig senda í tölvupósti til starfsfólks. Þar kemur fram nafn umboðsmanns og hvatning til félaga að bjóða sig fram.

Allir félagar á vinnustaðnum geta boðið sig fram til trúnaðarmanns. Ef fleiri en einn eru í framboði fer kosning fram á vinnustaðnum. Áhugasamir félagar hafa samband við umboðsmann til að skrá framboð.