Að verða trúnaðarmaður
Hlutverk og verkefni trúnaðarmanna
Trúnaðarmenn eru mikilvægur hluti þess að vernda réttindi og kjör félagsmanna á vinnustöðum. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í þessu starfi stendur þú aldrei einn. Sameyki veitir fullan stuðning, þjálfun og leiðbeiningar í hverju skrefi.
Þú þarft ekki að vita allt um kjarasamninga eða vinnurétt. Það sem skiptir máli er áhugi á vellíðan félaga þinna.
Helstu verkefni
* Vera fulltrúi Sameykis á vinnustað og fylgjast með framkvæmd kjarasamnings.
* Koma upplýsingum til starfsfólks.
* Vinna að lausn vandamála sem upp koma.
* Mæta mánaðarlega á fund trúnaðarmannaráðs.
* Fá þjálfun í starfi trúnaðarmanns.
Komi ágreiningur upp þarf trúnaðarmaður að kynna sér málavexti, taka við ábendingum samstarfsfólks og krefjast úrbóta eigi brot sér stað. Trúnaðarmaður getur alltaf leitað til Sameykis. Hjá félaginu bjóðast reglulega námskeið fyrir trúnaðarmenn.
Vinnustaðir félagsfólks eru sumir stórir og fólk sinnir ólíkum störfum. Til þess að raddir flestra heyrist er nauðsynlegt að starfsfólk úr ólíkum áttum bjóði sig fram í starf trúnaðarmanns.
Góður trúnaðarmaður
- Hefur áhuga á vellíðan og öryggi félaga sinna.
- Vakandi fyrir vinnuumhverfinu.
- Á gott með mannleg samskipti.
- Óhræddur við að axla ábyrgð.
- Þekkir til fjölbreyttra starfa á sínum vinnustað.
Kostir starfsins
Trúnaðarmannaráð
Umfjöllunarefni trúnaðarmannaráðs
* Aðstöðu og vinnu trúnaðarmanna í störfum sínum.
* Þjóðfélagsmál sem geta hjálpað trúnaðarmönnum.
* Kjara- og réttindamál félaga.
* Undirbúning kjarasamninga.
* Stefnu félagsins.
* Aðalfund félagsins og undirbúning hans.