Málþing um mannauðsmál 2026
Þema málþingsins árið 2026 var virkni og vellíðan á vinnumarkaði. Málþingið var haldið 12. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica.
Virkni og vellíðan á vinnumarkaði
Málþing Sameykis, Virkni og vellíðan á vinnumarkaði, fór fram í gær og hlaut mikla athygli. Fjölbreytt erindi sneru að streitu og kulnun í starfi, fjarvistum, veikindum og heilsueflingu á vinnustöðum, og þátttakendur fengu innsýn í nýjar nálganir og vísindalegar niðurstöður um virkni og vellíðan á opinberum vinnumarkaði.
Hvers vegna eru það hæfustu einstaklingarnir sem brenna út?
Jens Näsström
Jens Näsström, sálfræðingur og stofnandi Ambition Profile, hélt erindi um streitu og kulnun þar sem hann lagði áherslu á að hefðbundnar aðferðir við að greina streitu nái ekki yfir rót vandans því að persónuleikaþættir geti haft mikil áhrif á kulnun í starfi og vellíðan starfsfólks. Jens lagði til fjölbreyttari nálgun sem tekur tillit til einstaklinga og samfélagslegra þátta.
Nánar um erindi Jens NäsströmDýpri skilningur á fjarvistum vegna kvíða ungs fólks
Torfi Már Jónsson, sálfræðingur
Torfi Már Jónsson, sálfræðingur hjá Muni sálfræðistofu, fjallaði um muninn á streitu og klínískum kvíða og undirstrikaði mikilvægi þess að draga ekki alla veikindafjarveru undir einn hatt. Hann benti á að markmiðið sé ekki að refsa starfsfólki vegna fjarvista heldur að bregðast snemma við, hvatti til opinna samtala og gera stjórnendum kleift að stuðla að vellíðan starfsfólks.
(laga link)Áhrif starfsumhverfis á veikindafjarvistir
Harpa Hrund Berndsen
Fram kom í erindi Hörpu Hrundar Berndsen að starfsumhverfi hefur bein áhrif á veikindafjarvistir, þar sem upplifun starfsfólks af kröfum, stjórnunarstíl og stuðningi á vinnustaðnum hefur áhrif á tíðni veikindadaga og vellíðan. Gestir málþingsins fengu yfirlit yfir rannsóknir sem sýna hvernig vinnuumhverfið mótar bæði líkamlega og sálræna heilsu.
(laga link)Heildræn viðverustefna Reykjavíkurborgar
Hulda Sólveig Jóhannsdóttir
Hulda Sólveig Jóhannsdóttir, sérfræðingur í heilsueflingu hjá Reykjavíkurborg, kynnti heildræna viðverustefnu borgarinnar sem hefur það að markmiði að lágmarka fjarveru með samræmdum aðgerðum sem byggja á umhyggju, forvörnum og skýrum viðbrögðum. Hún lagði áherslu á að stjórnendur gegni lykilhlutverki í því að styðja starfsfólk og efla vellíðan á vinnustöðum.
(laga link)