Framkvæmd könnunar
Framkvæmd Stofnunar ársins 2025
Um könnunina
Stofnun ársins var framkvæmd í október til desember 2025. Þátttökulistar (netfangalistar) ríkisstofnanna komu almennt frá Skrifstofu kjara- og mannauðsmála. Við gerð þátttökulista var miðað við að starfsfólk væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfshlutfalli. Listi yfir starfsfólk borgarinnar kom frá Mannauðs- og starfsumhverfissviði borgarinnar.
Sjálfseignarstofnanir, fyrirtæki og fleiri vinnustaðir geta óskað eftir þátttöku fyrir allt starfsfólk óháð félagsaðild og senda þá þessir vinnustaðir þátttökulista til Gallup. Sex slíkir vinnustaðir tóku þátt í ár og greiða sjálfir fyrir þátttöku starfsfólks utan Sameykis. Þetta voru Ás styrktarfélag, Félagsbústaðir, Heilsustofnun NLFÍ, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), Matís ohf. og Orkubú Vestfjarða (OV).
Samstarfsaðilar
Stofnun ársins er samstarfsverkefni margra aðila; Sameykis, Skrifstofu kjara- og mannauðsmála, Mannauðs- og starfsumhverfissviðs borgarinnar og svo stofnananna og vinnustaðanna sjálfra. Niðurstöður könnunarinnar veita afar mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.
Í könnuninni er hægt að bera saman starfsumhverfi ríkis og borgar með góðum hætti. Einnig er hægt að bera saman niðurstöður þessarar könnunnar við niðurstöður á almennum markaði þar sem VR framkvæmir sambærilega könnun, „Fyrirtæki ársins,“ meðal félagsfólks VR og fyrirtækja á almennum markaði.
Tilgangur könnunarinnar
Hvernig fer könnunin fram?
Hvernig eru þættirnir búnir til?
Þáttagreining (factor analysis) er notuð til að greina þá undirliggjandi þætti sem eru mældir.
Í megindráttum komu fram níu þættir, en þeir eru: stjórnun, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleiki í vinnu, sjálfstæði í starfi, ímynd, ánægja og stolt og jafnrétti.
Vægi þáttanna í heildareinkunn ákvarðast af þáttagreiningunni (sjá mynd) en vinnustöðunum er síðan raðað eftir heildareinkunninni. Áreiðanleiki þáttanna (Cronbach's Alpha) er mikill og mældist hæstur fyrir stjórnun (0,95), en lægstur fyrir sveigjanleika (0,82).
Alls fengust gild svör frá nærri 18.000 einstaklingum og hafa svörin aldrei verið fleiri. Þar af voru rúmlega 11.000 svör frá starfsfólki ríkisstofnana, ríflega 6.000 svör frá starfsfólki Reykjavíkurborgar og ríflega 800 svör frá öðrum vinnustöðum. Svarhlutfall, gildir listar af endanlegu úrtaki, var tæplega 52%, sem er sama hlutfall og á síðasta ári.
Þátttökuskilyrði
Stofnanir sem uppfylla þátttökuskilyrði (35% svarhlutfall og að lágmarki 5 svör) komast á lista. Þessum stofnunum er skipt í flokka eftir eðli þeirra og stærð. Stofnanaflokkarnir eru þrír: starfsstaðir borgarinnar (274 starfsstaðir), ríkisstofnanir (139 stofnanir) og svo fyrirtæki og sjálfseignarstofnanir (7 fyrirtæki/sjálfseignarstofnanir). Þessi hluti könnunarinnar byggir á 8.949 svörum frá starfsfólki ríkisins, 5.482 svörum frá starfsfólki borgarinnar og 463 svörum frá starfsfólki sjálfseignarstofnana og fyrirtækja.
Til að stofnun, starfsstaður eða fyrirtæki komi til greina í vali á Stofnun ársins þurfa svör að vera að lágmarki fimm og svarhlutfall að lágmarki 35% – þá er miðað við innsenda lista sem hlutfall af útsendum spurningalistum. Ef vinnustaður býður ekki öllu starfsfólki þátttöku eru þátttökuskilyrði önnur og þá eru auk þess gerðar kröfur um fjölda þátttakenda eftir því sem vinnustaðurinn stækkar.
Könnunin nær til allra starfsstaða Reykvíkurborgar, allra ríkisstofnana sem og til alls félagsfólks Sameykis sem er í 20% starfshlutfalli eða meira og hefur verið félagsfólk í a.m.k. þrjá mánuði. Félagsfólk Sameykis starfar víða, t.d. hjá ríki og sveitarfélögum, sjálfseignarstofnunum og fyrirtækjum í annarri opinberri eigu. Þessir vinnustaðir eru einnig með í vali á Stofnun ársins svo fremi sem þeir uppfylli þátttökuskilyrðin (sjá ofan). Þá geta þessir vinnustaðir óskað eftir þátttöku í Stofnun ársins og boðið öllu starfsfólki að svara könnuninni.
Viltu vita meira?
Hjá Reykjavíkurborg verða niðurstöður starfsstaða birtar stjórnendum í skýrslu ef sviðið sem starfstaðurinn tilheyrir hefur náð 35% svarhlutfalli og að lágmarki hafi borist 5 svör frá starfsstaðnum.
Allar ríkisstofnanir sem eru þátttakendur í könnuninni fá senda skýrslu með niðurstöðum svo fremi sem skilyrði um lágmarkssvörun séu uppfyllt (þ.e. 35% svarhlutfall og fimm svör að lágmarki). Hver stofnun fær samanburð við stofnanaflokk og ríkisstofnanir í heild.
Öðrum vinnustöðum og fyrirtækjum sem tóku þátt fyrir allt starfsfólk gefst kostur á að kaupa skýrslu frá Gallup, svo framarlega sem skilyrði um svörun séu uppfyllt (sbr. ofan).
Í skýrslunni sem vinnustaðir fá er borin saman meðaltalseinkunn hverrar spurningar hjá viðkomandi vinnustað við meðaltalseinkunn allra vinnustaða. Einnig eru breytingar frá síðustu mælingu skoðaðar þegar það á við.
Ef óskað er frekari upplýsinga má hafa samband við Tómas Bjarnason (tomas.bjarnason@gallup.is).