Veiði og útilega
Hagkvæmari veiði fyrir félaga
Félagar í Sameyki geta keypt eitt veiðikort á ári á Orlofshúsavefnum eða skrifstofunni. Kortið kostar 6.300 kr. hjá félaginu (9.900 kr. í almennri sölu). Með kortinu má veiða í 34 vötnum víðs vegar um landið og tjalda endurgjaldslaust við mörg þeirra. Kortið er einstaklingsbundið og þarf að merkja með kennitölu. Frekar upplýsingar má finna á vef Veiðikortsins.
Skelltu þér í fleiri útilegur
Félagar geta keypt Útilegukortið á 17.500 kr. (24.900 kr. í almennri sölu). Kortið gildir fyrir 28 gistinætur og má gista allt að fjórar nætur samfellt á hverju tjaldsvæði. Hægt er að kaupa kortið á Orlofshúsavefnum eða á skrifstofunni. Kynntu þér kortið á vef Útilegukortsins.