Úthlutun orlofshúsa

Á Orlofshúsavef Sameykis getur þú bókað og sótt um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísanir og fleira. Hér finnur þú upplýsingar um úthlutanir orlofshúsa.

Á Orlofshúsavef Sameykis bókar þú og sækir um orlofshús og orlofsíbúðir. Þar er einnig hægt að kaupa gjafabréf í flug, veiðikort, útilegukort, ferðaávísanir og fleira undir liðnum Gjafabréf í flug og fl. í valmyndinni.

Einnig finnur þú afslætti af ýmsum vörum og þjónustu fyrir félagsfólk Sameykis undir Afslættir. Framvísa þarf félagsskírteini, sem er aðgengilegt á Mínum síðum Sameykis.

Úthlutunartímabil

Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks.

Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti. Umsóknartímabil opna klukkan 9 að morgni á upphafsdegi og loka klukkan tólf á hádegi á lokadegi. Greiðslufrestur er til tólf á hádegi.

StaðurUmsóknartímabilÚthlutaðGreiðslufr.2. úthlutunAlmenn opnun

Páskar erlendis

18. des. 2025 til 12. jan.

14. jan.

21. jan.

22. jan.

29. jan.

Sumar erlendis

12. jan. til 9. feb.

11. feb.

18. feb.

19. feb.

26. feb.

Páskar innanlands

15. jan. til 16. feb.

18. feb.

25. feb.

26. feb.

5. mars

Sumar innanlands

23. feb. til 23. mars

27. mars

8. apríl

13. apríl

20. apr.

Sumar dagleiguhús

  1. apríl
Staður
Páskar erlendis
Umsóknartímabil

18. des. 2025 til 12. jan.

Úthlutað

14. jan.

Greiðslufr.

21. jan.

2. úthlutun

22. jan.

Almenn opnun

29. jan.

Staður
Sumar erlendis
Umsóknartímabil

12. jan. til 9. feb.

Úthlutað

11. feb.

Greiðslufr.

18. feb.

2. úthlutun

19. feb.

Almenn opnun

26. feb.

Staður
Páskar innanlands
Umsóknartímabil

15. jan. til 16. feb.

Úthlutað

18. feb.

Greiðslufr.

25. feb.

2. úthlutun

26. feb.

Almenn opnun

5. mars

Staður
Sumar innanlands
Umsóknartímabil

23. feb. til 23. mars

Úthlutað

27. mars

Greiðslufr.

8. apríl

2. úthlutun

13. apríl

Almenn opnun

20. apr.

Staður
Sumar dagleiguhús
Umsóknartímabil
Úthlutað
Greiðslufr.
2. úthlutun
Almenn opnun
  1. apríl

Vetrarleiga 2025–2026

Haust 2025

Opnaði fyrir bókanir 15. apríl 2025.

Vor 2025

Opnaði fyrir bókanir 15. apríl 2025.

Páskar, sumar og Tenerife allt árið

Ekki skiptir máli hvenær á umsóknartímabili sótt er um, kerfið raðar umsóknum eingöngu eftir punktastöðu félagsfólks. Niðurstöður úthlutunar eru sendar í tölvupósti með tilgreindum greiðslufresti. Það er á ábyrgð umsækjenda að vera með rétt netfang skráð, athugið að pósturinn getur farið í ruslpóst.

Félagar í lífeyrisdeild getur ekki sótt um í páskaúthlutun og á tímabilinu 19. júní–07. ágúst 2026. Þeir geta bókað á þessu tímabili þegar opnað verður fyrir allt félagsfólk eftir að úthlutun lýkur – fyrstur kemur fyrstur fær.

Páskar á Spáni 2026

Opið er fyrir páskaúthlutun á orlofseignum Sameykis á Spáni frá 18. desember 2025 til 12. janúar 2026 á Orlofshúsavef Sameykis. Í boði eru raðhús í Los Cristianos á Tenerife, íbúð í Quesada í Alicante og íbúð við ströndina í Los Arenales í Alicante.

Úthlutað verður vikunni 2.–9. apríl 2026 (fim–fim). Úthlutun fer fram 14. janúar 2026 og er greiðslufrestur til 21. janúar 2026.

Þann 22. janúar opnast bókunarvefurinn fyrir þá félaga sem fengu neitun í úthlutun og stendur það tímabil til 29. janúar. Að því loknu opnar bókun fyrir alla félaga samkvæmt reglunni fyrstur kemur, fyrstur fær á þeim eignum sem enn eru lausar um páska.

Athugið: Félagar sem leigðu orlofseign á Tenerife árið 2025 geta ekki tekið þátt í úthlutun á Tenerife árið 2026.

Páskar innanlands 2026

Umsóknartímabilið er 15. janúar til 16. febrúar og er hægt að senda inn umsóknir á Orlofshúsavefnum á því tímabili. Úthlutun fer fram 18. febrúar og er greiðslufrestur til 25. febrúar.

Þann 26. febrúar opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun í úthlutun og stendur það tímabil til 5. mars. Að því loknu opnar bókun fyrir alla félaga samkvæmt reglunni _fyrstur kemur, fyrstur fær_á þeim eignum sem enn eru lausar um páska.

Sumar innanlands 2026

Umsóknartímabil er 23. febrúar til 23. mars og er hægt að senda inn umsóknir á bókunarvefnum á því tímabili. Úthlutun fer fram 27. mars samkvæmt punktakerfi og er greiðslufrestur til 8. apríl.

Þann 13. apríl opnast bókunarvefurinn fyrir það félagsfólk sem fékk neitun í úthlutun og stendur það tímabil til 20. apríl. Að því loknu opnar bókun fyrir allt félagsfólk samkvæmt reglunni fyrstur kemur, fyrstur fær á þeim eignum sem enn eru lausar yfir sumarið.

Opnað verður fyrir leigu á dagleiguhúsum 13. apríl