Gjafabréf og ávísanir
Hægt er að kaupa gjafabréf á Orlofshúsavef Sameykis sem veita afslátt þegar keyptur er flugmiði.
Gjafabréf hjá Icelandair
Félagar í Sameyki geta keypt allt að fimm gjafabréf hjá Icelandair á hverju ári. Hvert gjafabréf kostar 22.500 kr. en er að andvirði 30.000 kr. inneignar.
Gjafabréfin gilda bæði í innanlands- og utanlandsflugi. Á gjafabréfinu er númer sem þarf að nota við bókun flugs.
Orlofssjóður Sameykis niðurgreiðir gjafabréfin. Þau eru seld á Orlofshúsavef Sameykis.
Flugfélagið Ernir
Félagar Sameykis sem hafa lögheimili á landsbyggðinni, þar sem Flugfélagið Ernir flýgur til, geta fengið endurgreiðslu á flugfargjaldi.
Endurgreiðslan getur numið allt að 33.000 kr. á ári. Framvísa þarf flugmiða með nafni félagsmanns og kvittun.