Skráning í Lífeyrisdeild

Félagar í lífeyrisdeild eiga rétt á að nýta sér fjölmarga orlofskosti.

Aðild að Lífeyrisdeild Sameykis

Lífeyrisdeild Sameykis er fyrir félaga sem hafa lokið starfsævi eða fá örorkulífeyri. Í deildinni halda félagar tengslum við félagið og njóta áfram ákveðinna réttinda, til dæmis aðgangs að orlofshúsum, styrkjum og viðburðum.

Hér finnur þú upplýsingar um hverjir eiga rétt á aðild, hvenær hægt er að sækja um og hvaða réttindi fylgja. Einnig er útskýrt hvað gildir um öryrkja og hvernig farið er með vafaatriði.

Þú þarft að sækja formlega um aðild þegar launagreiðslum frá vinnuveitanda lýkur.

Hverjir eiga rétt á aðild?

Ef þú lýkur starfsævinni sem félagi í Sameyki

  • þú lýkur starfsævinni sem félagi í Sameyki (áður SFR eða Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar)
  • þú hefur verið í félaginu samfellt síðustu 5 ár áður en þú ferð á lífeyri

Ef þú varst ekki félagi við starfslok getur þú sótt um aðild ef:

  • þú hefur að minnsta kosti 10 ára félagsaldur
  • þú varst orðinn 60 ára þegar þú hættir sem félagi

Þetta á meðal annars við um félaga sem hættu vegna þess að störf voru lögð niður. Almennt er miðað við við að skráning fari fram innan 10 ára frá starfslokum.

Félgar sem voru í eldri deildum.

Þú heldur aðild þinni ef þú varst skráður í: Eftirlaunadeild Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eða Lífeyrisdeild SFR.

Aðild öryrkja

Öryrkjar geta sótt um aðild ef:

  • þeir fá örorkulífeyri frá lífeyrissjóði
  • þeir stunda ekki launaða vinnu

Senda þarf inn staðfestingu frá lífeyrissjóði um örorkulífeyri.

Hvenær og hvernig sæki ég um?

Þú getur sótt um þegar öllum launagreiðslum frá vinnuveitanda er lokið.

Það þarf að sækja formlega um aðild að Lífeyrisdeildinni.

Ef vafi kemur upp um rétt til aðildar tekur stjórn Sameykis afstöðu.

Hvaða réttindi fylgja aðild?

Félagar í deildinni greiða ekki félagsgjöld.

Þeir geta meðal annars:

  • leigt orlofshús og nýtt sér það sem orlofssjóður býður upp á með takmörkunum yfir sumar og páska
  • fengið styrk úr Símenntunarsjóði Lífeyrisdeildar
  • sótt námskeiðið Gott að vita
  • tekið þátt í viðburðum á vegum Menningar- og skemmtinefndar, til dæmis jólaballi, aðventukvöldi og bingói
  • fengið tímarit Sameykis
Fulltrúar og starf deildarinnar

Stjórn Lífeyrisdeildar getur tilnefnt 14 fulltrúa úr sínum hópi í trúnaðarmannaráð.

Stjórnin skipuleggur einnig viðburði fyrir félaga í deildinni, til dæmis:

  • sumarferðir
  • vorfagnað
  • haustfagnað

Ég vil skrá mig í deildina