- febrúar 2026
Verkalýðsbarátta á tímamótum í nýjasta Tímariti Sameykis
Verkalýðsbarátta á tímamótum í nýjasta Tímariti Sameykis
Tímarit Sameykis er nú í prentun og von er á að það fari í pósti til félagsfólks í vikunni. Við vekjum athygli á að til að fá tímaritið sent, án endurgjalds, í pósti þarf að skrá sig á póstlista.
Þema tímaritsins að þessu sinni er saga verkalýðsbaráttunnar fyrr og nú – og staða launafólks, stéttarfélaga og velferðarsamfélagsins á tímamótum. Í tímaritinu er ítarlegt viðtal við Ögmund Jónasson, fyrrv. formann BSRB, um verkalýðsbaráttu, verkalýðspólítík og mikilvægi sýnilegrar baráttu gegn vaxandi misskiptingu í samfélaginu og er hann ómyrkur í máli um þjóðfélagsmálin.
Einnig er fjallað um alvarlega aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum opinberra starfsmanna með frumvarpi um afnám áminningarskyldu, afregluvæðingu vinnumarkaðarins, og hvernig það brýtur gegn norrænum og alþjóðlegum viðmiðum vinnuréttar.
Í tilefni 100 ára afmælis Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar eru viðtöl við fyrrverandi formenn félagsins, Sjöfn Ingólfsdóttur og Garðar Hilmarsson, um sögu, gildi samstöðu og áfangasigra í verkalýðsbaráttu opinberra starfsmanna.
Þá er fjallað um sameiningarviðræður Póstmannafélags Íslands og Sameykis í viðtali við formann PFÍ, Jóhönnu Fríði Bjarnadóttur, og að sjálfsögðu eru fastir liðir á sínum stað.