- mars 2026
Á vefsíðunni Góð áminning hefur verið opnað fyrir þann möguleika að almenningur sendi umsagnir beint til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna fyrirhugaðs afnáms áminningarskyldu ríkisstarfsmanna.
Í gegnum síðuna geta einstaklingar sent inn umsögn í eigin nafni með einföldum hætti. Boðið er upp á staðlaðan texta sem hægt er að styðjast við, en jafnframt er eindregið hvatt til þess að fólk bæti við persónulegum athugasemdum, svo sem um starf sitt og hvaða áhrif breytingarnar hefðu á þeirra vinnuumhverfi.
Í staðlaða textanum er meðal annars bent á að áminningarskylda sé mikilvæg réttindavernd á vinnumarkaði sem tryggi fagleg vinnubrögð og verndi starfsfólk gegn geðþóttaákvörðunum stjórnenda. Þar er jafnframt varað við því að afnám hennar feli í sér afturför í mannauðsmálum fremur en umbætur.
Sameyki hvetur félagsfólk sitt og aðra til að nýta sér þennan möguleika og koma sjónarmiðum sínum á framfæri við Alþingi. Mikilvægt sé að raddir launafólks heyrist í umræðunni um réttindi á vinnumarkaði.
Athygli er vakin á því að aðeins er hægt að senda eina umsögn úr hverju netfangi.
Tengt efni
Góð áminning
Góð áminning nr. 1
Sendu umsögn til Alþingis í eigin nafni
Á vefsíðunni Góð áminning er hægt að senda umsögn beint til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vegna fyrirhugaðs afnáms áminningarskyldu. Hægt er að nota staðlaðan texta eða bæta við persónulegum athugasemdum um áhrif breytinganna á starf og vinnuumhverfi.
Útúrsnúningar ríkisstjórnarinnar
Frétt
Útúrsnúningar ríkisstjórnarinnar duga skammt þegar réttindi launafólks eru skert
Sameyki gagnrýnir málflutning stjórnvalda og bendir á að fyrirhugað afnám áminningarskyldu feli í sér skerðingu á grundvallarréttindum opinberra starfsmanna.
Ríkisstjórn útúrsnúninga
Pistill
Ríkisstjórn útúrsnúninga?
Formenn BSRB, Kennarasambands Íslands og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýna málflutning stjórnvalda og vara við skerðingu á réttindum opinberra starfsmanna.