- mars 2026
Harðorð gagnrýni um niðrandi orð Diljár Mistar um opinbert starfsfólk
Harðorð gagnrýni um niðrandi orð Diljár Mistar um opinbert starfsfólk
Formenn BSRB, KÍ og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýna harðlega í sameiginlegum pistli orð Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem lýsti opinberum starfsmönnum sem „Birkenstock-liði“ á Alþingi.
„Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum,“ segir í pistli þeirra.
Sjá umræður um málið á vef Alþingis.
Í pistlinum benda þau á að slík orðræða sýni alvarlegan skort á virðingu fyrir því fólki sem heldur uppi grunnþjónustu samfélagsins. Um er að ræða starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu og víðar sem sinnir krefjandi störfum við aukið álag, manneklu og sífellt meira ofbeldi í starfi. Formennirnir segja að á sama tíma og þessi staða versni sé brugðist við með því að veikja réttindi starfsfólks, meðal annars með áformum um afnám áminningarskyldu. Slíkt sé skýr forgangsröðun hjá ríkisstjórninni; minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi grunnþjónustuna í samfélaginu.
Í pistli formannanna er undirstrikað að áminningarskyldan sé lágmarksvernd gegn geðþótta og óréttlæti stjórnenda gagnvart starfsfólki auk þess sé áminningarskyldan nauðsynlegur ferill í að bæta vinnustaði og hjálpar stjórnendum að bregðast rétt við. Að afnema hana muni ekki leysa raunveruleg vandamál heldur grafa undan trausti og gera opinber störf síður eftirsóknarverð.