- mars 2026
Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi tafarlaust til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna. Formannaráðið segir í ályktun sem það sendi frá sér að með frumvarpinu sé ráðist að grundvallarréttindum launafólks og að um eina stærstu réttindaskerðingu á íslenskum vinnumarkaði í áratugi sé að ræða.
Formannaráð BSRB bendir einnig á að áminningarskyldan hindri ekki uppsagnir heldur tryggi að þær séu málefnalegar og sanngjarnar. Hún sé lágmarksvernd gegn geðþótta og misbeitingu valds og sambærileg vernd sé viðurkennd bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum. Afnám hennar myndi veikja starfsöryggi ríkisstarfsmanna verulega og gæti haft víðtæk áhrif á allan opinbera vinnumarkaðinn, þar sem sveitarfélög gætu fylgt í kjölfarið.
Formannaráð BSRB mótmælir áformunum harðlega og krefst þess að stjórnvöld einbeiti sér í staðinn að raunverulegum lausnum; að bæta starfsaðstæður og tryggja að hið opinbera laði að og haldi í hæft starfsfólk.
Lesa má ályktunina hér sem Formannaráð BSRB sendi frá sér í dag.
Tengt efni
Sameyki tekur undir með gagnrýni Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar
Frétt
Sameyki tekur undir með gagnrýni Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar
Sameyki styður harða gagnrýni á áform ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu og skerðingu réttinda opinberra starfsmanna.
Lesa grein →
Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum
Frétt
Ríkisstjórnin hyggst svipta launafólk réttindum sínum
Sameyki hvetur félagsfólk til að kynna sér áformin og áhrif þeirra á ráðningarvernd og réttindi opinberra starfsmanna.
Lesa grein →
Góð áminning um sanngirni
Pistill formanna BSRB, KÍ og Fíh
Góð áminning um sanngirni
Formenn BSRB, KÍ og Fíh fjalla um mikilvægi áminningarskyldu og réttlátrar málsmeðferðar í starfi.
Lesa pistil →
Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli
Frétt
Ný vefsíða útskýrir hvers vegna áminningarskylda skiptir máli
Upplýsingasíðan Góð áminning varpar ljósi á mikilvægi réttlátrar málsmeðferðar og réttindaverndar launafólks.
Lesa grein →