- mars 2026
Beitt satíra sem birtist í Morgunblaðinu um uppsögn fjármálaráðherrans Daða Más hefur vakið athygli og ekki síst hans sjálfs þegar honum svelgdist á molasopanum yfir lestri Morgunblaðsins í morgun. „Það var nokkuð áfall yfir kaffinu í morgun að lesa uppsagnarbréfið,“ sagði fjármálaráðherra þegar hann las uppsagnarbréfið sem minnti á afleiðingar þess fyrir tugþúsundir launafólks að afnema áminningarskyldu úr lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, og ráðherrann svaraði með kaldhæðni um efni frumvarpsins sjálfs.
Í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi sagði Daði Már að ríkisstjórnin hygðist enn leggja til að afnám áminningarskyldu færi í gegn og að hann teldi víðtæka samstöðu um breytingarnar. Þegar hann var spurður út í auglýsinguna sagði hann meðal annars að hún hefði verið áfall að sjá og að hún hefði „víst ekki staðist þær reglur sem hann sjálfur vill lögfesta“.
Af kaldhæðnum orðum fjármálaráðherrans að dæma þar sem hann lýsir óþægindum yfir því að vera sagt upp „án aðvörunar“ er greinilegt að það sem honum þykir ósanngjarnt gagnvart sjálfum sér er nákvæmlega það sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði heimilt gagnvart öðrum.
Áminningarskylda er í dag grundvallarþáttur í ráðningarvernd ríkisstarfsmanna og tryggir sanngjarna málsmeðferð áður en gripið er til uppsagnar, en miðað við frumvarpsdrög ríkisstjórnarinnar yrði hún lögð af. Breytingin hefur valdið mikilli gagnrýni frá stéttarfélögum, bandalögum og heildarsamtökum, sem hafa sagt að með henni sé stefnt réttaröryggi launafólks í hættu.
Sameyki tekur undir áhyggjur samtaka launafólks og hvetur félagsfólk til að kynna sér málið nánar á upplýsingavefnum godaminning.is, þar sem farið er yfir mikilvægi áminningarskyldu, hvaða áhrif afnám hennar kann að hafa og hvaða réttarstöðu starfsfólk á vinnumarkaði hefur rétt til.
Tengt efni
Varð fyrir áfalli að sjá uppsagnarbréf
Frétt á Vísi
Varð fyrir áfalli að sjá uppsagnarbréf
Daði Már lýsir „áfalli“ eftir að hafa séð uppsagnarbréfið sem tengist satírubirtingu um uppsögn fjármálaráðherra – og það vakti upp kaldhæðin viðbrögð hjá ráðherranum.
Fjármálaráðherra sagt upp störfum
Frétt á Sameyki
Fjármálaráðherra sagt upp störfum
Beitt satíra speglar afleiðingar afnáms áminningarskyldu og dregur upp skýra mynd af því hvað slík lagabreyting gæti þýtt í framkvæmd.
Öfugmæli forsætisráðherra
Frétt á Sameyki
Öfugmæli forsætisráðherra
Formenn gagnrýna harðlega orð Kristrúnar Frostadóttur um að standa vörð um réttindi launafólks á sama tíma og ríkisstjórnin leggur fram frumvarp um réttindaskerðingu.
Góð áminning um virðingu
Pistill
Góð áminning um virðingu
Formenn BSRB, KÍ og Fíh gagnrýna mótsögn milli orða og verka ríkisstjórnarinnar og segja forsætisráðherra skorta virðingu fyrir opinberu starfsfólki.