Image for Article

  1. mars 2026

Aðalfundur Sameykis: Öflug réttindabarátta og lagabreytingar samþykktar

Aðalfundur Sameykis fór fram í dag á Grand Hótel Reykjavík þar sem farið var yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og helstu verkefni fram undan.

Á fundinum kom fram að árið 2025 einkenndist af öflugri réttindabaráttu, markvissri þjónustu og áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Sameyki er í dag þriðja stærsta stéttarfélag landsins og gegnir mikilvægu hlutverki í að standa vörð um kjör og réttindi félagsfólks.

Formaður Sameykis, Kári Sigurðsson, lagði áherslu á mikilvægi samstöðu í ræðu sinni:
„Styrkur Sameykis liggur ekki einungis í stærðinni – heldur í samstöðunni. Og þegar við stöndum saman, þá skiptir rödd okkar máli.“

Á aðalfundinum voru jafnframt samþykktar lagabreytingar sem miða að því að einfalda stjórnskipulag félagsins, skýra hlutverk stjórnar og auka gagnsæi í starfsemi þess.

Fundurinn fjallaði einnig um tillögu um sameiningu Sameykis og Póstmannafélags Íslands sem miðar að því að styrkja félagið enn frekar og sameina krafta í þágu félagsfólks. Póstmannafélag Íslands hélt sinn aðalfund á sama tíma og samþykktu bæði félögin með miklum meirihluta að sameinast Sameyki og er nú PFÍ gengið inn í Sameyki og munu starfsmenn félagsins verða hluti af starfshópi Sameykis.

Þá samþykkti aðalfundur tvær ályktanir þar sem gagnrýnd eru áform stjórnvalda um afnám áminningarskyldu annars vegar og um stjórn efnahagsmála ríkisstjórnarinnar hons vegar. Sjá má ályktanir aðalfundar hér fyrir neðan.

Aðalfundur Sameykis 2026

Ályktanir aðalfundar 2026

Ályktanir samþykktar á aðalfundi Sameykis

Aðalfundur Sameykis, sem haldinn var í gær, samþykkti ályktanir þar sem stjórnvöld eru gagnrýnd fyrir áform um breytingar á starfsmannalögum og fyrir efnahagsstefnu sína sem talin er bitna á launafólki.




Lesa meira →

Ársskýrsla Sameykis komin á vefinn

Frétt

Ársskýrsla Sameykis komin á vefinn

Ársskýrsla Sameykis hefur verið birt á vef félagsins og veitir yfirlit yfir starfsemi, áherslur og helstu verkefni á liðnu ári.




Lesa meira →

Fundur trúnaðarmannaráðs

Frétt

Lagabreytingar og staða kjarasamninga rædd

Lagabreytingar og staða kjarasamninga voru meðal helstu umræðuefna á fundi trúnaðarmannaráðs Sameykis þar sem farið var yfir stöðuna og næstu skref.




Lesa meira →