- febrúar 2026
Opnað verður fyrir umsóknir um orlofshús innanlands fyrir sumarið mánudaginn 23. febrúar næstkomandi. Umsóknarfrestur stendur til 23. mars 2026. Um er að ræða tímabilið 29. maí til 21. ágúst 2026 og lýkur úthlutun 27. mars nk.
Úthlutun fer fram á grundvelli punktastöðu félagsmanna. Því fleiri punktar, þeim mun meiri möguleikar á úthlutun. Vikuleiga „kostar“ 40 punkta, en ekki er nauðsynlegt að eiga 40 punkta inni við úthlutun. Athugið að punktastaðan getur farið í mínus og jafnast síðan út með tímanum. Aðeins er úthlutað einni viku til hvers umsækjanda. Sótt er um á Mínum síðum Sameykis.
Nánari upplýsingar um úthlutanir má finna á vef Sameykis.
Dagleiguhús opna fyrir bókanir 13. apríl og 29. apríl verður opnað fyrir umsóknir vegna hausttímabils.